Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 22.09.2022, Blaðsíða 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022 Þessa dagana eru merk tímamót í orkuskiptum hjá bændum að eiga sér stað í Vallanesi á Fljótsdalshéraði hjá Eymundi Magnússyni og Eygló Björk Ólafsdóttur. Eftir að hafa tekið nýjan brennsluofn í notkun fyrir viðarkurl og -perlur verður allur húsakostur á bænum hitaður upp ásamt korn úr ræktuninni þurrkað með trjám úr eigin skógi á jörðinni. Hjónin Eymundur og Eygló Björk hafa verið í orkuskiptaáætlun í nokkurn tíma og eftir að þau fengu úthlutað styrk úr Orkusjóði og komust í samstarf við Tandrabretti á Reyðarfirði fóru hjólin að snúast og segja má að nú loki þau hringrásinni með því að hita allan húsakost, þurrka eigið bygg og annað korn ásamt því að spara töluverðan rafmagnskostnað með afurðum úr eigin skógi. „Við höfum plantað um einni milljón trjáa og erum nú með samning við Skógræktina sem grisjar skóginn og það sem fellur til verður efniviður fyrir Tandrabretti á Reyðarfirði sem framleiða viðarperlur úr hráefninu. Það er algjör forsenda að skógurinn haldi áfram að vaxa og binda kolefni og viðhalda skóginum. Verkefnið í heild sinni á svo vel við á Austurlandi sem er vagga skógræktar hérlendis og kalt svæði þar að auki,“ útskýrir Eymundur. Kornþurrkun með eigin orku Hjónin segja að nú séu skógar á Austurlandi komnir í fyrstu grisjun en þau hafa um tíma gert eigið kurl sem þau hafa meðal annars notað í göngustíga á jörðinni. „Þetta er auðvitað eina vitið á svona köldum svæðum þar sem hitaveita stendur ekki til boða. Húshitun fer í gang á næstu dögum og næsta vor bætast svo ylræktarhúsin við og þar munum við vinna með tegundir sem þurfa jafnt og gott hitastig. Þetta er nýtt ræktunarform fyrir okkur en hingað til höfum við fyrst og fremst verið í útiræktun svo við erum mjög spennt fyrir þessari viðbót,“ segir Eygló Björk og Eymundur bætir við, „við erum með eina hreyfanlega stöð í hlöðunni til að þurrka kornið. Nú hefjum við kornþurrkun í haust í fyrsta sinn með eigin orku svo það er mjög spennandi að sjá hvernig það gengur í stað þess að nota dísilolíu til verksins. Síðan munum við nota hitann sem kemur frá frystunum og kælunum sem við erum með í varmaskipti. Það er vatnskerfi í íbúðarhúsunum okkar og á veitingastaðnum en það verður ekki á sama kerfi og hin húsin. Við getum einnig forhitað neysluvatnið inn í túpuna með varmaskiptum en rafmagnstúpan sem er inni hjá okkur núna þarf minna eftir þetta og því erum við í leiðinni að spara rafmagn. Núna fáum við inn þessa nýju tækni sem felast í ofnunum sem brenna perlur. Þetta er mun öruggara flæði og kerfi en hefur áður verið notað og það kemur nánast reyklaus eldur úr þessu og sáralítil aska. Þetta er mikil bylting og mjög spennandi verkefni í alla staði.“ Þarf breytingar á styrkjakerfinu Eygló Björk er formaður VOR – Verndun og ræktun, sem er félag lífrænna ræktenda á Íslandi, en hún segir félagið hafa lagt fram tillögur um breytingar á styrkjakerfinu til að gera þessa grein landbúnaðar samkeppnishæfari og til að nýliðun geti átt sér stað í meira mæli en nú. „Við þurfum að sjá breytingar á styrkjakerfinu, sem er mjög mikilvægt, en við í VOR höfum rýnt í kerfið og höfum mótaðar hugmyndir um hvernig megi koma hlutum á hreyfingu og við treystum því að ráðherra og ríkisstjórnin standi við það sem áður hefur verið fyrirhugað, að gera aðgerðaráætlun um lífrænan landbúnað. Stjórnvöld þurfa að gefa tóninn um að koma hlutum á meiri hreyfingu,“ útskýrir Eygló Björk. „Til langs tíma þarf að veita meiri stuðning þannig að lífrænn landbúnaður geti blómstrað eins og þessi atvinnugrein á skilið. Það er oft meiri handavinna og jarðvinnsla í lífrænum landbúnaði sem felur í sér meiri vinnu og kostnað sem oft er bættur upp með álagi á stuðningsgreiðslur. Þessu höfum við mælt með, einnig er t.d. húsakostur í búfjárrækt rýmri og bæta þarf geymslu og nýtingu á lífrænum áburði. Í lífrænni ræktun erlendis, s.s. í garðyrkju og akuryrkju, er notast við nýjustu tækni og vélar sem hannaðar eru til jarðvinnslu án eiturefna. Við höfum lagt mikla áherslu á vel skilgreindan tækjastuðning til þess að slíkar lausnir séu gerðar aðgengilegri hér á landi. Þar erum við eftirbátar miðað við nágrannalöndin sem þarf að laga. Þetta er nútímaleg grein þar sem búið er að þróa alls kyns tæki til að stunda nútíma jarðrækt. Annað eru vottunargjöldin sem þarf að borga fyrir fullu gjaldi en víða annars staðar er það ríkisstyrkt sem dæmi. Þetta getur verið einn þáttur í að hafa það meira aðlaðandi fyrir bændur að koma nýir inn en einnig fyrir þá sem fyrir eru að þröskuldurinn sé ekki alveg í byrjun.“ Vottuð sláturhús í hvern landsfjórðung „Ef menn ætla virkilega að fást við áskoranir í dag þá þarf að koma bændum frá tilbúnum áburði yfir í aðrar lausnir eða framleiðslu hérlendis sem vinnur að hringrásarkerfi. Þá þarf að nýta tækifærið núna og ekki verra að auka verðmætasköpun í leiðinni með fleiri vottuðum afurðum. Heildin hlýtur að standa betur eftir á og þó þetta væri ekki nema til að ná lífrænni ræktun upp í 5 prósent ræktarlands til að geta verið væn sneið og sterkari í samkeppni við innflutta vöru. En til þess að sjá breytingar þarf fyrst samtalið og beina fjármagni inn á þessar brautir með breytingum á stuðningskerfinu,“ segir Eygló Björk og bætir við: „Við finnum fyrir miklum meðbyr með lífrænum vörum hérlendis og neytendur eru mjög jákvæðir. Það varð sýnileg aukning í heimsfaraldrinum og framleiðsluvörum hefur fjölgað jafnt og þétt. Það hefur verið örlítil endurnýjun í sauðfjárrækt en hún er hægfara og ræðst það sennilega að hluta til af skorti á vottuðum sláturhúsum hérlendis. Það er þó markmið okkar í félaginu að koma upp vottuðum sláturhúsum í hverjum landsfjórðungi. Einnig hefur verið aukning í lífrænni garðyrkju og lífrænum eggjum hefur verið vel tekið. Þar að auki er komið lífrænt nautakjöt á markað svo flóran er alltaf að aukast.“ Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is LÍF&STARF Nýtt til undirburðar og kyndingar „Ilmur er vörumerki Tandrabretta ehf. á Eskifirði en framleiðsla á viðarperlum úr afgangsvið og grisjunarvið úr skógum á Héraði hefur verið að þróast og aukast á undanförum árum hjá fyrirtækinu. Varan hefur verið notuð sem undirburður og nú nýlega til kyndingar og settir hafa verið upp nokkrir sérhæfðir katlar á Austurlandi. Þetta minnkar kolefnisspor og styður við hringrásarhagkerfið ásamt nýtingu skóga. Nýting þessa hráefnis er athyglisvert innlegg í kyndingu á köldum svæðum á Íslandi og hefur hlotið stuðning frá Orkusjóði sem er mjög jákvætt,“ segir Magnús Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Tandrabrettis. Vallanes á Fljótsdalshéraði: Allur húsakostur hitaður upp með afurð úr eigin skógi Við finnum fyrir miklum meðbyr með lífrænum vörum hérlendis og neytendur eru mjög jákvæðir. Það varð sýnileg aukning í heimsfaraldrinum og framleiðsluvörum hefur fjölgað jafnt og þétt.“ Bændurnir Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon í Vallanesi á Fljótsdalshéraði eru svo sannarlega að stíga hringrásarhagkerfissporið til fulls á bænum með því að taka í notkun nýjan brennsluofn fyrir viðarperlur og -kurl sem mun hita allan húsakost á bænum. Myndir / ehg Vonandi verður skref bændanna í Vallanesi hvatning fyrir aðra bændur, sérstaklega þeirra sem búa á köldum svæðum, í að nýta afurðir úr eigin skógi til orkuskipta. Viðarperlur (wood pellets) eru mikið nýttar í Evrópu til kyndingar og henta mjög vel til þess. Þar að auki eru þær kolefnishlutlausar þar sem skógurinn batt kolefnið í vexti og notkun þeirra stuðlar að nýtingu á afgangsviði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.