Bændablaðið - 22.09.2022, Page 48
48 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
Þessa dagana eru merk tímamót
í orkuskiptum hjá bændum
að eiga sér stað í Vallanesi á
Fljótsdalshéraði hjá Eymundi
Magnússyni og Eygló Björk
Ólafsdóttur.
Eftir að hafa tekið nýjan
brennsluofn í notkun fyrir viðarkurl
og -perlur verður allur húsakostur
á bænum hitaður upp ásamt korn
úr ræktuninni þurrkað með trjám
úr eigin skógi á jörðinni. Hjónin
Eymundur og Eygló Björk hafa
verið í orkuskiptaáætlun í nokkurn
tíma og eftir að þau fengu úthlutað
styrk úr Orkusjóði og komust
í samstarf við Tandrabretti á
Reyðarfirði fóru hjólin að snúast og
segja má að nú loki þau hringrásinni
með því að hita allan húsakost,
þurrka eigið bygg og annað korn
ásamt því að spara töluverðan
rafmagnskostnað með afurðum úr
eigin skógi.
„Við höfum plantað um einni
milljón trjáa og erum nú með
samning við Skógræktina sem
grisjar skóginn og það sem fellur til
verður efniviður fyrir Tandrabretti
á Reyðarfirði sem framleiða
viðarperlur úr hráefninu.
Það er algjör forsenda að
skógurinn haldi áfram að vaxa
og binda kolefni og viðhalda
skóginum. Verkefnið í heild sinni
á svo vel við á Austurlandi sem
er vagga skógræktar hérlendis og
kalt svæði þar að auki,“ útskýrir
Eymundur.
Kornþurrkun með eigin orku
Hjónin segja að nú séu skógar á
Austurlandi komnir í fyrstu grisjun
en þau hafa um tíma gert eigið kurl
sem þau hafa meðal annars notað í
göngustíga á jörðinni.
„Þetta er auðvitað eina vitið á
svona köldum svæðum þar sem
hitaveita stendur ekki til boða.
Húshitun fer í gang á næstu
dögum og næsta vor bætast svo
ylræktarhúsin við og þar munum
við vinna með tegundir sem þurfa
jafnt og gott hitastig. Þetta er
nýtt ræktunarform fyrir okkur en
hingað til höfum við fyrst og fremst
verið í útiræktun svo við erum
mjög spennt fyrir þessari viðbót,“
segir Eygló Björk og Eymundur
bætir við, „við erum með eina
hreyfanlega stöð í hlöðunni til að
þurrka kornið.
Nú hefjum við kornþurrkun í
haust í fyrsta sinn með eigin orku
svo það er mjög spennandi að sjá
hvernig það gengur í stað þess að
nota dísilolíu til verksins. Síðan
munum við nota hitann sem kemur
frá frystunum og kælunum sem við
erum með í varmaskipti. Það er
vatnskerfi í íbúðarhúsunum okkar
og á veitingastaðnum en það verður
ekki á sama kerfi og hin húsin.
Við getum einnig forhitað
neysluvatnið inn í túpuna með
varmaskiptum en rafmagnstúpan
sem er inni hjá okkur núna þarf
minna eftir þetta og því erum við
í leiðinni að spara rafmagn. Núna
fáum við inn þessa nýju tækni sem
felast í ofnunum sem brenna perlur.
Þetta er mun öruggara flæði og
kerfi en hefur áður verið notað og
það kemur nánast reyklaus eldur
úr þessu og sáralítil aska. Þetta er
mikil bylting og mjög spennandi
verkefni í alla staði.“
Þarf breytingar á styrkjakerfinu
Eygló Björk er formaður VOR –
Verndun og ræktun, sem er félag
lífrænna ræktenda á Íslandi, en hún
segir félagið hafa lagt fram tillögur
um breytingar á styrkjakerfinu til
að gera þessa grein landbúnaðar
samkeppnishæfari og til að nýliðun
geti átt sér stað í meira mæli en nú.
„Við þurfum að sjá breytingar
á styrkjakerfinu, sem er mjög
mikilvægt, en við í VOR höfum
rýnt í kerfið og höfum mótaðar
hugmyndir um hvernig megi koma
hlutum á hreyfingu og við treystum
því að ráðherra og ríkisstjórnin
standi við það sem áður hefur verið
fyrirhugað, að gera aðgerðaráætlun
um lífrænan landbúnað. Stjórnvöld
þurfa að gefa tóninn um að koma
hlutum á meiri hreyfingu,“ útskýrir
Eygló Björk.
„Til langs tíma þarf að veita
meiri stuðning þannig að lífrænn
landbúnaður geti blómstrað eins
og þessi atvinnugrein á skilið.
Það er oft meiri handavinna og
jarðvinnsla í lífrænum landbúnaði
sem felur í sér meiri vinnu og
kostnað sem oft er bættur upp með
álagi á stuðningsgreiðslur. Þessu
höfum við mælt með, einnig er
t.d. húsakostur í búfjárrækt rýmri
og bæta þarf geymslu og nýtingu
á lífrænum áburði. Í lífrænni
ræktun erlendis, s.s. í garðyrkju
og akuryrkju, er notast við nýjustu
tækni og vélar sem hannaðar eru til
jarðvinnslu án eiturefna.
Við höfum lagt mikla áherslu
á vel skilgreindan tækjastuðning
til þess að slíkar lausnir séu
gerðar aðgengilegri hér á landi.
Þar erum við eftirbátar miðað við
nágrannalöndin sem þarf að laga.
Þetta er nútímaleg grein þar sem
búið er að þróa alls kyns tæki til að
stunda nútíma jarðrækt. Annað eru
vottunargjöldin sem þarf að borga
fyrir fullu gjaldi en víða annars
staðar er það ríkisstyrkt sem dæmi.
Þetta getur verið einn þáttur
í að hafa það meira aðlaðandi
fyrir bændur að koma nýir inn
en einnig fyrir þá sem fyrir eru
að þröskuldurinn sé ekki alveg í
byrjun.“
Vottuð sláturhús í hvern
landsfjórðung
„Ef menn ætla virkilega að fást
við áskoranir í dag þá þarf að
koma bændum frá tilbúnum
áburði yfir í aðrar lausnir eða
framleiðslu hérlendis sem vinnur
að hringrásarkerfi. Þá þarf að nýta
tækifærið núna og ekki verra að
auka verðmætasköpun í leiðinni
með fleiri vottuðum afurðum.
Heildin hlýtur að standa betur
eftir á og þó þetta væri ekki nema
til að ná lífrænni ræktun upp í 5
prósent ræktarlands til að geta
verið væn sneið og sterkari í
samkeppni við innflutta vöru. En
til þess að sjá breytingar þarf fyrst
samtalið og beina fjármagni inn á
þessar brautir með breytingum á
stuðningskerfinu,“ segir Eygló
Björk og bætir við:
„Við finnum fyrir miklum
meðbyr með lífrænum vörum
hérlendis og neytendur eru
mjög jákvæðir. Það varð sýnileg
aukning í heimsfaraldrinum og
framleiðsluvörum hefur fjölgað
jafnt og þétt. Það hefur verið örlítil
endurnýjun í sauðfjárrækt en hún
er hægfara og ræðst það sennilega
að hluta til af skorti á vottuðum
sláturhúsum hérlendis. Það er
þó markmið okkar í félaginu að
koma upp vottuðum sláturhúsum
í hverjum landsfjórðungi. Einnig
hefur verið aukning í lífrænni
garðyrkju og lífrænum eggjum
hefur verið vel tekið. Þar að auki
er komið lífrænt nautakjöt á markað
svo flóran er alltaf að aukast.“
Erla Hjördís
Gunnarsdóttir
ehg@bondi.is
LÍF&STARF
Nýtt til undirburðar
og kyndingar
„Ilmur er vörumerki Tandrabretta
ehf. á Eskifirði en framleiðsla
á viðarperlum úr afgangsvið
og grisjunarvið úr skógum á
Héraði hefur verið að þróast
og aukast á undanförum árum
hjá fyrirtækinu. Varan hefur
verið notuð sem undirburður
og nú nýlega til kyndingar og
settir hafa verið upp nokkrir
sérhæfðir katlar á Austurlandi.
Þetta minnkar kolefnisspor og
styður við hringrásarhagkerfið
ásamt nýtingu skóga. Nýting
þessa hráefnis er athyglisvert
innlegg í kyndingu á köldum
svæðum á Íslandi og hefur hlotið
stuðning frá Orkusjóði sem er
mjög jákvætt,“ segir Magnús
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Tandrabrettis.
Vallanes á Fljótsdalshéraði:
Allur húsakostur hitaður upp
með afurð úr eigin skógi
Við finnum fyrir
miklum meðbyr
með lífrænum vörum
hérlendis og neytendur
eru mjög jákvæðir. Það
varð sýnileg aukning í
heimsfaraldrinum og
framleiðsluvörum hefur
fjölgað jafnt og þétt.“
Bændurnir Eygló Björk Ólafsdóttir og Eymundur Magnússon í Vallanesi á Fljótsdalshéraði eru svo sannarlega að
stíga hringrásarhagkerfissporið til fulls á bænum með því að taka í notkun nýjan brennsluofn fyrir viðarperlur og
-kurl sem mun hita allan húsakost á bænum. Myndir / ehg
Vonandi verður skref bændanna í Vallanesi hvatning fyrir aðra bændur,
sérstaklega þeirra sem búa á köldum svæðum, í að nýta afurðir úr eigin
skógi til orkuskipta.
Viðarperlur (wood pellets) eru
mikið nýttar í Evrópu til kyndingar
og henta mjög vel til þess. Þar að
auki eru þær kolefnishlutlausar
þar sem skógurinn batt kolefnið
í vexti og notkun þeirra stuðlar
að nýtingu á afgangsviði.