Bændablaðið - 22.09.2022, Qupperneq 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 22.september 2022
LÍF&STARF
Vatnsdalur:
Ungir bændur taka við keflinu á Brúsastöðum
Skafti Vignisson og Lisa Inga
Hälterlein tóku um síðustu
áramót við búinu á Brúsastöðum
í Vatnsdal. Tóku þau við af þeim
Sigurði Ólafssyni og Gróu
Margréti Lárusdóttur sem höfðu
stundað þar búskap frá árinu
1994. Á Brúsastöðum er rekið bú
með nálægt 60 mjólkurkúm sem
hefur oft ratað í fréttirnar vegna
árangurs.
Skafti er 33 ára, uppalinn á
Höfnum á Skaga, og Lisa er 34 ára,
uppalin í Slésvík-Holtsetalandi í
Norður-Þýskalandi. Þau hafa búið á
Blönduósi undanfarin ár þar sem Lisa
starfar sem sjúkraþjálfari og Skafti
var í vélavinnu.
Hugur þeirra leitaði alla tíð til
landbúnaðarstarfa. Skafti útskrifaðist
sem búfræðingur frá Hvanneyri
árið 2014 og Lisa hefur stundað
hestamennsku frá æskuárum.
Íslenski hesturinn heillaði
Lisa umgekkst íslenska hesta úti í
Þýskalandi sem varð til þess að vekja
hjá henni áhuga á Íslandi. Fyrstu
kynni hennar af landinu voru þegar
hún kom í hestaferð hingað 14 ára
gömul og fann þá að til Íslands þyrfti
hún að koma aftur.
Árið 2008 fékk hún vinnu á
hestabúgarði í Vestur-Húnavatnssýslu
og dvaldi á árinu í eitt ár. Árið
2013 kemur hún aftur með það
fyrir augum að setjast hér að
og starfaði á hrossaræktarbúi í
Austur-Húnavatnssýslu. Skafti og
Lisa kynnast árið 2015 og grínast
hjónaleysin með að af þeim tveimur
sé Skafti mun áhugasamari um búsetu
í Þýskalandi.
Sveitin kallar
Fljótlega fluttu þau út á Hafnir og
tóku þátt í búskapnum með fjölskyldu
Skafta. Bæði voru þau búin að einsetja
sér að fara í búskap, en foreldrar
Skafta voru ekki tilbúin til að bregða
búi og þurftu þau því að leita annað.
Heimaslóðir Lisu kallast sveit á
þýskan mælikvarða og dreymdi hana
alltaf um að eignast sinn eigin bæ þar
sem hún gæti verið í tengslum við
náttúruna og gæti ræktað sína hesta.
Sjálfur segir Skafti að hann kunni best
við sig við sveitastörf og hann vilji
helst ekki starfa við neitt annað.
„Við höfum alltaf verið að tala
um að fara út í sveit,“ segir Lisa.
Samt sem áður höfðu þau ekki gert
kauptilboð í neina jörð þar sem lítið
sé um að bújarðir séu auglýstar til
sölu á svæðinu.
Létu vaða
Árið 2020 ákvað Skafti að hringja
í Sigurð, þáverandi bónda á
Brúsastöðum, og athuga að fyrra
bragði hvort hjónin hefðu íhugað
að selja.
„Þetta kemur kannski svolítið flatt
upp á fólk þegar maður spyr bara si
svona hvort þetta væri til sölu,“ segir
Skafti. Fljótlega eftir þetta fyrsta
símtal ræddu þeir lengi saman án
þess að það leiddi til nokkurs fyrst
um sinn. Sumarið 2021 fór hins vegar
að færast alvara yfir viðræðurnar.
Skafti og Lisa eru ekkert tengd
Sigurði og Gróu. Þegar ábúendaskipti
eru á bújörðum er algengast að
ættingjar taki við eða einhver
vandalaus kaupi eftir að jörðin hefur
verið kynnt í gegnum fasteignasölu.
Hins vegar er algjör undantekning að
ótengdir aðilar kaupi bújörð í rekstri
án þess að nokkuð hafi verið auglýst,
eins og í tilfelli Brúsastaða.
„Ef maður er búinn að skoða
hlutina vel og allt virðist ganga upp
þá á maður bara að láta vaða,“ segir
Lisa aðspurð um ráð til fólks sem vill
fara sömu leið.
Fjármögnunin púsluspil
Þau þurftu sjálf að sjá hvort fjár-
festingin gengi upp áður en þau
púsluðu saman fjármögnun inni.
Leituðu þau því til Ráðgjafar-
miðstöðvar landbúnaðarins (RML)
til að reikna rekstraráætlun og skoða
búskapinn frá nokkrum hliðum.
Þeir útreikningar sýndu að dæmið
gengi upp og voru þau komin
með gögn í hendurnar til að sýna
lánastofnunum.
„Hjá okkur byrjaði þetta bara sem
hugmynd. Þegar hugmyndin fór að
verða að einhverri alvöru fórum við
að leita að fjármagni úr öllum áttum
– hjá fjölskyldu, í eignum, bönkum,
Byggðastofnun og nýliðunarstyrk.
Ég var ekki bjartsýn á að þetta
gengi upp, en síðan náðum við með
skipulagningu að finna út úr þessu,“
segir Lisa.
„Við áttum mikið í íbúðarhúsinu
okkar á Blönduósi sem auðveldaði
helling. Svo klórar maður saman
einhverjum krónum og þetta sleppur
fyrir horn,“ segir Skafti um það
hvernig þeim gekk að fjármagna
útborgunina.
Þau leituðu til allra banka
og Byggðastofnunar til þess að
fjármagna jarðarkaupin. Ferlið
segja þau hafa verið flókið og
krafist margra símtala. Þrátt fyrir
að Byggðastofnun veiti sérstök lán
til ungra bænda þá enduðu þau á að
fjármagna í gegnum Landsbankann.
Endanleg ákvörðun um að þau
skyldu taka við búinu um áramót
kom þegar liðið var á nóvember.
Því þurftu þau að hafa hraðar hendur
og sex vikna biðtími eftir svari frá
Byggðastofnun gekk ekki í þeirra
tilfelli. „Við vorum búin að lenda
í þessu hjá bankanum áður en við
fengum svar frá Byggðastofnun,“
segir Lisa.
Þau segjast hafa verið heppin
varðandi tímasetningu á kaupunum
og telja ólíklegt að fjármögnun hefði
fengist eins og ástandið er í dag. Öll
aðföng, sem og vextir á lánum, hafa
hækkað svo mikið að dæmið myndi
ekki ganga upp.
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Lisa Inga Hälterlein og Skafti Vignisson tóku nýlega við búi á Brúsastöðum. Þar er rekið kúabú með tæplega 60 mjólkandi kúm og 97 hekturum af ræktarlandi.
Þau eru ekkert tengd fyrri ábúendum og spurðu að fyrra bragði hvort jörðin væri til sölu. Mynd / ÁL
Brúsastaðir er kúabú með nútímalega aðstöðu, góðan kúastofn og
metnaðarfulla jarðrækt. Fyrri ábúendur slógu met í afurðasemi mjólkurkúa
á sínum tíma. Mynd / Aðsend
Yngstu ábúendurnir hafa áhuga á bústörfum. Mynd / Aðsend
Með ábúendaskiptum á Brúsastöðum hefur samfélagið í Vatnsdalnum fengið
til liðs við sig ungt fjölskyldufólk. Börn Skafta og Lisu eru þrjú, Ingimar Emil,
5 ára, Anton, Þór 4 ára og Eyrún Alma, 1 árs. Mynd / Aðsend