Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 12
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Öllum, börnum sem öðrum, er fullkom- lega frjálst að vera í sambandi við Jesú, með eða án milligöngu þjóðkirkj- unnar. Orku- skiptaverk- efni eru mikilvæg- ustu verk- efni sam- tímans. benediktboas@frettabladid.is Menningarsnobb Þeim íþróttamönnum sem voga sér að tala um hvað þeir séu spenntir fyrir komandi HM í Katar hefur yfirleitt verið hent á bál. Flautaðir jafnvel úr leik. David Beckham hefur aldeilis fengið að kenna á því fyrir að tala fallega um Katar og stórvinur hans Gary Neville vogaði sér að hlakka til. Það var alveg bannað. Nú hefur okkar eigin Ólafur Elíasson frumsýnt milljarða verk sitt í tengslum við listahátíð- ina Qatar Creates Week. Verk hans er smíðað úr málmi, trefjagleri og speglagleri. Listahátíðin er liður í sjarmasókn Katara í aðdraganda HM. En Ólafur er listamaður og það er allt annað en fótbolti. Þar gilda aðrar reglur. Allt fyrir peninga Í skýrslu mannréttindasamtak- anna Human Rights Watch kemur fram að allt að sjö þúsund hafi látist við uppbyggingu mannvirkja fyrir HM og eru réttindi annarra verkamanna virt að vettugi. Sam- kynhneigðir séu lamdir án dóms og laga og hárið rakað af konum sem eru grunaðar um að vera eitt- hvað öðruvísi. En Ólafi er alveg sama um þetta. Hann þarf að fá greitt og listasamfélagið hér heima og erlendis stendur bara upp og klappar. Því list er ekkert fótbolti. Jafnvel þó margir haldi því fram að fótbolti sé einmitt list. Enda fátt fallegra en 22 leikmenn að elta tuðru. n Garðar Örn Úlfarsson gar @frettabladid.is Nýr fyrsti varaforseti á kirkjuþingi dró um helgina upp dökka mynd af stöðu þjóðkirkjunnar. Sagði Kristrún Heimisdóttir kirkjuna vera á stjórnlausu undanhaldi. „Ég vil nota mína rödd og ég vil nota mína krafta til þess að berjast gegn þessu undan- haldi,“ sagði Kristrún er hún ávarpaði kirkju- þingið í aðdraganda kjörs fyrsta varaforseta þingsins. Að því er Kristrún sagði liggur hluti skýr- ingarinnar á undanhaldi þjóðkirkjunnar í breytingum sem Alþingi hefur gert á lögum um trúfélög. „Lögin um trúfélög eru að mínu mati bastarður og Zúistahneykslið segir allt sem segja þarf um það hversu slæm þau lög eru,“ sagði Kristrún og vísaði til umdeildra fjármála trúfélagsins Zuism á Íslandi. „Held ég að sé eitt af því mikilvægasta til bjargar kirkjunni og til að styðja kirkjuna og styrkja hana sé að þarna verði gerð alger grund- vallarendurskoðun á öllu saman. Og það er til dæmis verkefni sem ég hefði mjög mikinn áhuga á að leggja gjörva hönd á,“ útskýrði Kristrún fyrir þingheimi. Nánari útskýringar á göllum laganna um trúfélög voru ekki í framboðsræðunni nema ef vera skyldi er Kristrún vék að börnum. Kvaðst hún ávallt benda fermingarbörnum á að Jesús Kristur væri besti áhrifavaldurinn. „Og hvers vegna er búið að banna öllum börnum á Íslandi að hafa aðgang að þeim áhrifavaldi? En öll mega þau horfa á TikTok,“ spurði Kristrún fulltrúa á kirkjuþingi sem síðan kusu hana sem fyrsta varaforseta með átján atkvæðum gegn tíu atkvæðum Steindórs R. Haraldssonar frá Skagaströnd. Ekki fylgdi hjá Kristrúnu útlistun á því banni sem hún segir íslensk börn sæta gagnvart Jesú Kristi. Það er skiljanlegt því alls ekkert slíkt bann er á Íslandi. Öllum, börnum sem öðrum, er fullkomlega frjálst að vera í sambandi við Jesú, með eða án milligöngu þjóðkirkjunnar. Í ræðu sinni kvaðst Kristrún hafa notið kristi- legs uppeldis. Sagði hún þjóðkirkjuna hafa verið lykilatriði í því samfélagi sem hún hefði alist upp í og að hún vildi að afkomendur sínir og Íslendingar framtíðarinnar gætu notið. Þeir sem hlotið hafa kristilegt uppeldi muna eftir boðorðunum tíu sem sumum reynist erfitt að fylgja og sneiða jafnvel hjá til að tryggja eigin hugmyndum framgang, hvort sem það er í stjórnmálum, viðskiptum eða trúmálum. Helst virðist níunda boðorðið vefjast fyrir fólki og það boðar aldrei gott: Þú skalt ekki bera ljúg- vitni gegn náunga þínum. n Að helga meðal Í gær ávarpaði ég fund Orkusjóðs og Orkustofnunar sem haldinn var í samvinnu við Grænu Orkuna. Á fundinum stigu á stokk fulltrúar verkefna sem hljóta styrki í ár úr Orkusjóði. Markmið fundarins var að sýna þá breidd og fjölda verkefna sem sjóðurinn styrkir. Orkusjóður sem úthlutar styrkjum til orkuskipta- verkefna, hefur styrkst ár frá ári og hefur á þessu ári úthlutað langstærstu upphæð hingað til. Umsóknir voru margar og námu fjárhæðir þeirra fjórfaldri þeirri upphæð sem sjóðurinn hafði úr að spila. Sem betur fer er áhugi fjárfesta og frumkvöðla mikill, en þeir leggja til meirihluta fjármagnsins til verkefna á móti sjóðnum. Við þurfum svo sannar- lega að virkja áfram þennan slagkraft sem þar er að finna. Það er afar hvetjandi að sjá áhugann á orku- skiptum og þann fjölda raunhæfra verkefna sem eru í deiglunni. Verkefnin eiga það sammerkt að þau eru strax frá gangsetningu að vinna að orkuskiptum. Ég hef því ákveðið að bæta 200 milljónum króna við þá fjárveitingu sem Orkusjóður úthlutar á þessu ári sem þýðir að samtals er úthlutað 1,1 ma. króna. Vel hefur tekist að styðja við dreifingu verkefna um land allt. Enda mjög mikilvægt að enginn lands- hluti verði eftir þegar kemur að grænu orkuskipt- unum. Sjóðurinn er áfram að þróast og færa út kvíarnar frá því að vera með í raun einungis eitt einfalt verk- efni fyrir nokkrum árum síðan, sem var að styðja við uppbyggingu hleðslustöðva um landið, yfir í það að styðja við allsherjar græn orkuskipti. Í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu stendur nú yfir vinna við endurskoðun stofnana- fyrirkomulags og þar með einnig styrkjakerfisins. Til skoðunar er að efla sjóðinn enn frekar. Orkuskiptaverkefni eru mikilvægustu verkefni samtímans. Ég því vil hvetja alla til að kynna sér sjóðinn og sækja um við úthlutun næsta árs. n Aukinn kraftur í orkuskipti Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslags- ráðherra FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 Fréttaumfjöllun fyrir alla. í opinni dagskrá á virkum dögum á Hringbraut og frettabladid.is SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 26. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.