Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 23
Bimuno er næring fyrir góðu
gerlana í meltingarveg-
inum. Bifidobakteríur eru
ein tegund þessara gerla, oft
kallaðir góðgerlar í hvers-
dagstali.
Bimuno Daily hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar síðastliðin ár og
var meðal annars valið apóteks
vara ársins 2020 í Bretlandi og
val starfsfólk breskra apóteka
2021, ásamt því að hljóta verð
laun Health & Wellbeing 2020.
Meðmæli viðskiptavina fara ekki
á milli mála og eru með þeim
bestu á hinni virtu umsagnarsíðu,
Trustpilot.com. Þar fær Bimuno 4,4
stjörnur af 5 mögulegum.
„Við eðlilegar aðstæður hefjum
við líf okkar með heilsusamlega
þarmaflóru þar sem góðgerlarnir
bífídóbakteríur eru náttúrulegur
og stór hluti af þarmaflórunni
fyrstu ár ævinnar. Lengi hafa
vísindarannsóknir sýnt fram á
samband á milli bífídóbaktería og
góðrar heilsu. Margrar tegundir
bífídóbaktería hafa sem dæmi
verið einangraðar og markaðs
settar sem fæðubótarefni til inn
töku (góðgerlar). Þá getur maður
spurt, hvernig fjölgum við þessum
góðgerlum í meltingarveginum
náttúrulega?“ segir Eva María Páls
dóttir, klínískur lyfjafræðingur
og gæðastjóri Betri Meltingar ehf.,
umboðsaðila Bimuno á Íslandi.
Lík nöfn en ekki það sama
Hver er munurinn á góðgerla-
vörum og forgerlum (e. prebiotics)
eins og Bimuno?
„Góðgerlar og forgerlar, á ensku
kallað probiotics og prebiotics, eru
lík nöfn en ekki það sama. Munur
inn á verkun fæðubótarefnanna
er talsverður þar sem góðgerlar
(probiotics) verka með því að bæta
við lifandi/frostþurrkuðum bakt
eríum í meltingarveginn. Forgerlar
(prebiotics) miða að því að næra og
örva vöxt góðra baktería (aðallega
bífídóbaktería) sem náttúrulega
eru til staðar í meltingarveginum,“
segir Eva María.
Trefjarík fæða
fjölgar góðgerlum
Eva María, gæðastjóri Betri Meltingar, til hægri ásamt Aðalheiði, sem hefur góða reynslu af Bimuno. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ebba Guðný Guðmundsdóttir segist
sofa betur síðan hún fór að taka
Bimuno forgerlana. MYND/AÐSEND
En fyrir fólk sem nú þegar tekur
inn góðgerlavörur. Getur það tekið
inn forgerlavörur að auki?
„Já, það er meira að segja til heiti
yfir það. Að taka inn góðgerla og
forgerla saman kallast synbiotics.
Með synbiotics er stutt við maga/
þarmaheilsu með því að auka
magn góðra baktería (probiotics) í
meltingarveginum og á sama tíma
veita þeim orku og næringu (pre
biotics) sem þær þurfa til þess að
vaxa og dafna.
Ein leið til að auk magn góðgerla,
þar með talið bífídóbaktería, er
er að hámarka inntöku trefja, til
dæmis með því að auka neyslu á
grænmeti og baunum, en trefjarík
fæða fjölgar góðgerlum náttúru
lega. Bimuno er trefjar og sér
sniðin fæða fyrir góðar bakteríur
í meltingarveginum, þá geta þær
fjölgað sér, sem leiðir af sér bætta
heilsu.
Forgerlafæðubótarefnið
Bimuno fæðir og fjölgar góðgerlum
og hefur sérhæfni gagnvart bífídó
bakteríum umfram önnur sam
bærileg fæðubótarefni á markaði.
Þá eru trefjarnar í Bimuno það sér
hæfðar að 3,2 grömm daglega duga
til að auka magn bífídóbaktería og
þyrfti að innbyrða mörg hundruð
grömm af trefjaríkri fæðu til að ná
sömu áhrifum. Bimuno hentar því
sérstaklega vel einstaklingum sem
eiga af einhverjum ástæðum erfitt
með að neyta trefjaríkrar fæðu
daglega og vilja bæta það upp með
einföldum hætti,“ segir Eva María.
Finnst ég sofa betur
„Ég er alveg svakalega ánægð með
Bimuno forgerlana. Mér finnst ég
sofa betur og líður mikið betur í
maganum síðan ég fór að taka þá.
Ég gef þeim mína bestu einkunn,“
segir Ebba Guðný Guðmunds
dóttir.
Aðalheiður Guðjónsdóttir hefur
góða reynslu af Bimuno.
„Ég hef notað Bimuno forgerlana
á hverjum degi síðan þeir komu á
markað á Íslandi. Þetta er frábær
trefjaviðbót og ég finn mikinn
mun á meltingunni. Þá tel ég mig
einnig ná betri djúpsvefni núna
og það er Bimuno að þakka,“ segir
Aðalheiður.
Góðgerlamagn í þarmaflóru
minnkar með hækkandi aldri en
talið er að þeir hafi jákvæð áhrif
á heilsu með fjölbreyttum hætti,
meðal annars með því að:
n Auka aðgengi og upptöku á
mikilvægum næringarefnum úr
fæðu.
n Auka magn annarra góðgerla
ásamt því að lækka sýrustig (pH)
í meltingarvegi og þar með gera
sýklum erfiðara um vik að vaxa í
meltingarvegi.
n Stuðla að myndun taugaboð-
efna sem eru mikilvæg fyrir
heilastarfsemi.
n Vernda og viðhalda þarma-
skilrúminu (e. gut barrier).
n Hafa jákvæð áhrif á ónæmis-
kerfið.
Sölustaðir vörunnar eru eftir-
farandi: Akureyrarapótek, Apótek
Suðurnesja, Efstaleitis apótek,
Íslandsapótek, Lyfjabúrið, Lyfja-
val (allar verslanir), Lyfjaver og
Heilsuver, Reykjavíkur apótek,
Apótek Vesturlands, Rima apótek,
Urðarapótek, Hagkaup Skeifunni,
Smáralind og Garðabæ, Net-
verslun www.bimuno.is
Bimuno hentar
sérstaklega vel
einstaklingum sem eiga
af einhverjum ástæðum
erfitt að neyta trefja-
ríkrar fæðu daglega og
vilja bæta það upp með
einföldum hætti.
Eva María Pálsdóttir
Bimuno® er einstakt fæðubótarefni
sem inniheldur forgerla (e. prebiotics)
og styður við vöxt góðra- eða vinveittra
gerla í meltingarveginum.
Meðal jákvæðra mögulegra
áhrifa af inntöku Bimuno útfrá
reynslu og rannsóknum eru:
• Betri melting
• Minni magaónot
• Sterkara ónæmiskerfi
• Betri svefn
Bimuno er bragðlaust duft
sem má blanda í vökva og
drekka eða hella yfir mat.
Bimuno er ein mest rannsakaða GOS vara sinnar tegundar og
styðja yfir 100 ritrýndar vísindagreinar góð áhrif vörunnar.
GOS er skammstöfun fyrir galaktósafjölsykrur.
Bimuno hefur verið rannsakað í yfir 20 klínískum rannsóknum
sem sýna að varan styður við heilsu og vellíðan.
Bimuno var þróað með það að markmiði að fæða, næra og
örva góðu bakteríurnar í neðri hluta meltingarvegarins.
Bimuno er fæðan þeirra og með því að bæta Bimuno
við fjölbreytta fæðu gerir þú það að verkum að góðu
bakteríunum fjölgar.
Betri Melting er opinber
dreifingaraðili fyrir
Bimuno á Íslandi.
* Rannsóknir sýna að dagleg notkun á
Bimuno eykur magn bífídóbaktería í
meltingarvegi á innan við 7 dögum.
Nánari upplýsingar má finna
á vefsvæði www.bimuno.is
Kt 540621-2330
betrimelting@betrimelting.is Bimuno® er skrásett vörumerki Clasado Ltd
kynningarblað 5MIÐVIKUDAGUR 26. október 2022 VÍTAMÍN OG BÆTIEFNI