Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 25
Mér finnst Energy
koma mér í rétta
gírinn fyrir æfingar og
hámarka andlega og
líkamlega getu og bæta
úthald.
Hildur Björk Guðmundsdóttir
Ég mæli meira en
100% með Saga
Cranberry+ af því þær
hjálpa mér að sleppa við
að fá sýkingu.
Sigurlaug Erla Pétursdóttir
Saga Natura er íslenskt rannsóknar- og líftæknifyrirtæki
sem byggir á rúmlega 20 ára sögu. Sérhæfing Saga Natura
liggur í þróun sértækra fæðubótarefna sem unnin eru úr
náttúrulegum efnum eins og ætihvönn og þörungum.
Náttúruleg
fæðubótarefni sem
bæta lífsgæði
Það var góð vinkona Hildar
Bjarkar Guðmundsdóttur sem
kynnti Energy orkublönduna frá
Saga Natura fyrir henni fyrir um
einu og hálfu ári síðan. „Ég hef
stundað Boot Camp síðan árið
2005 samhliða hefðbundnum
götu- og utanvegahlaupum en ég
hef keppt í alls kyns hlaupum hér-
lendis og erlendis undanfarin ár.“
Hildur hóf að taka inn Energy
fyrri hluta árs 2021 og árangurinn
lét ekki á sér standa. „Ég tek inn
Energy 2-3 sinnum í viku auk þess
sem ég laumast stundum í það
seinnipart dags ef vinnudagurinn
dregst fram á kvöld. Það er burni-
rót í Energy sem er þekkt fyrir að
draga úr þreytu og auka vellíðan
svo og koffín sem eykur orku og
afköst.“
Inniheldur mörg virk efni
Energy er vegan orkublanda sem
inniheldur mörg virk efni sem
stuðla að aukinni orku og ein-
beitingu en aðalinnihaldsefni
blöndunnar eru burnirót, koffín,
L-theanín og B- vítamín-blanda.
Burnirót á sér langa sögu sem
lækningajurt eða aftur til ársins 77
e.Kr. og stuðlar hún
að almennri vellíðan
og jafnvægi í líkam-
anum. Rótin virðist
virka vel meðal
annars gegn stressi,
einbeitingarskorti og
bæta árangur fólks
í íþróttum. Koffín
er örvandi efni
sem finnst í nátt-
úrunni, til dæmis
í kaffi, tei, kakó og
súkkulaði. Gæta
þarf þess að neyta
koffíns í hóflegu
magni og eru 105
mg af koffíni sem
Energy inniheldur
vel undir hóflegum
mörkum. Þungaðar konur og börn
ættu ávallt að forðast
koffín.
L-theanín er rann-
sakað bætiefni og
stuðlar að auknu
jafnvægi og minna
stressi.
B-vítamín blanda
Energy inni-
heldur B5, B6 og
B12. Blandan styrkir
húð og meltingar-
færi, hjálpar til við
myndun serótóníns
í heilanum og er
mikilvæg fyrir vöxt,
frjósemi og tauga-
og ónæmiskerfi.
Að lokum styður
það við flutning á
súrefni um líkamann um rauðu
blóðkornin.
Kemur manni í réttan gírinn
Áhrifin af inntöku Energy hafa
verið mjög góð að sögn Hildar,
bæði í daglegu lífi og í tengslum við
æfingar. „Mér finnst Energy koma
mér í rétta gírinn fyrir æfingar og
hámarka andlega og líkamlega
getu og bæta úthald. Frá því ég
hóf að taka inn Energy er ég alveg
hætt að taka inn Spírulína Blue og
tek ekki eins mikið af B-vítamíni
og áður enda hentar mér betur að
taka Energy. Ég get eindregið mælt
með Energy fyrir alla sem eru að
hreyfa sig. Það einfaldlega kemur
manni í rétta gírinn fyrir æfingar
og eykur einnig afköst og kraft í
daglegu lífi.“ n
Eykur afköst og kraft við æfingar og í daglegu lífi
Sigurlaug Erla Pétursdóttir heyrði
fyrst um vítamínin frá Saga Natura
á Instagram og í gegnum auglýs-
ingar á netinu. „Ég ákvað að skoða
vefinn hjá Saga Natura og lesa um
öll vítamínin. Saga Cranberry+
vakti fljótt mikinn áhuga hjá mér
þar sem ég hef alltaf verið gjörn á
að fá þvagfærasýkingu þar sem ég
er á ónæmisbælandi lyfi. Því ákvað
ég að prófa og sé ekki eftir því.“
Í ágúst 2007 lenti Sigurlaug í
því að veikjast mikið og greindist
með sjálfsofnæmissjúkdóm. „Mér
var haldið sofandi í tvær vikur í
öndunarvél og ég fór meðal annars
í hjarta- og lungnavél (ECMO-vél).
Eftir þessi veikindi þarf ég að taka
ónæmisbælandi lyf og er þar af
leiðandi viðkvæm fyrir sýkingum,
til dæmis þvagfærasýkingu.“
Sigurlaug er 34 ára gömul og býr
í Reykjanesbæ ásamt sambýlis-
manni og barni. Hún er löggiltur
bókari.
„Helsta áhugamál mitt er for-
varnarstarf en ég er gjaldkeri í
Slysavarnadeildinni Dagbjörgu og
sinni einnig nefndarstarfi innan
Slysavarnafélagsins Landsbjargar.“
Mjög öflug vítamínblanda
SagaCranberry+ er öflug vítamín-
blanda sem er sérsamsett til þess
að viðhalda heilbrigðri þvag-
blöðru og þvagrás en þvagfæra-
sýking getur framkallað einkenni
ofvirkrar blöðru.
Aðalinnihaldsefni
SagaCranberry+
eru hvannar laufa-
extrakt, trönuberja-
extrakt ásamt C- og
D-vítamíni.
Hvannarlaufaext-
rakt er unnið úr
hvannarlaufum sem
hafa sýnt virkni sína
í fækkun þvagláta.
Einnig er hvannar-
laufaextrakt ríkt
að flavónóíðum og
öðrum plöntuefnum
sem styrkja varnir
líkamans.
Trönuberjaext-
raktið sem notað er
í SagaCranberry+ heitir Oximacro
og er klínískt rannsakað. Rann-
sóknir hafa sýnt að trönuberja-
extrakt geti fyrirbyggt þvagfæra-
sýkingar.
C- og D-vítamín styrkja ónæmis-
kerfi líkamans auk þess sem
C-vítamín dregur einnig úr þreytu
og lúa.
Bætir daglegt líf
Sigurlaug byrjaði á því að taka inn
eina töflu af SagaCranberry+ á
morgnana en ákvað síðar að taka
tvær inn á fastandi maga og hefur
gert það alveg síðan.
„Ég prófaði fyrst að taka Saga
Cranberry+ í nokkra mánuði árið
2021 og á meðan ég var á því fékk
ég ekki þvagfærasýkingu. Því
ákvað ég að prófa að hætta á því og
þá byrjuðu þvagfærasýkingarnar
að koma aftur. Þannig vissi ég
100% að þær væru að virka þannig
að ég ákvað að gerast áskrifandi að
töflunum.“
Hún segir Saga
Cranberry+ hafa
bætt daglegt líf sitt
mjög mikið. „Nú
þarf ég ekki að hafa
áhyggjur af að fá
þvagfærasýkingu til
dæmis á ferðalagi
eða bara yfirhöfuð.
Ég mæli meira en
100% með Saga
Cranberry+ af því
þær hjálpa mér að
koma í veg fyrir
sýkingu. Síðan er
mjög þægilegt að
vera í áskrift og fá
sendinguna inn um
bréfalúguna.“ n
Hefur bætt lífið til muna
„Ég mæli meira en 100% með Saga Cranberry+ af því þær koma í veg fyrir
sýkingu,“ segir Sigurlaug Erla Pétursdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég get eindregið mælt með Energy fyrir alla sem eru að hreyfa sig,“ segir
Hildur Björk Guðmundsdóttir sem hefur tekið inn Energy í eitt og hálft ár
með góðum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Burnirótin er eitt af náttúrulegu hráefnunum sem Saga Natura notar í vörur sínar.
Áskriftarleiðir Saga Natura gefa
15% afslátt af öllum vörum.
Þau sem velja áskrift fá bæti-
efnin send heim án kostnaðar.
kynningarblað 7MIÐVIKUDAGUR 26. október 2022 VÍTAMÍN OG BÆTIEFNI