Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 34
leysi ásamt gífurlegum sveiflum í
skapi. Ég gat dottið niður í depurð
án þess að neitt væri að og ég var
miklu styttri í spuna en ég átti að
mér að vera. Ég fann fyrir orku
leysi á æfingum og margir bentu
mér góðlátlega á að ég væri nú að
eldast og það myndi hægjast á fólki
með aldrinum. Einnig byrjaði ég
að þyngjast aftur. Eftir Fossavatns
skíðagöngukeppnina áttaði ég mig
á því að það var ekki allt með felldu
og pantaði mér tíma hjá heimilis
lækni. Hann pantaði blóðprufu
og þá kom í ljós að ég var komin á
bullandi breytingaskeið.
Ásdís segir að einkennin hafi alls
ekki verið augljós og það hafi tekið
tíma að komast að því hvað var í
raun í gangi. „Hjá mér voru þau í
raun ekki augljós. Þeir sem ég talaði
við, sem reyndar voru ekki læknar,
voru með alls konar skýringar, ég
væri að eldast, orkuleysi væri eðli
legt þegar þú eldist, og það hægist
á fólki með aldrinum. Það væri lík
lega bara stress og kannski jafnvel
kulnun í gangi.
Aðrir töldu þetta vera ofþjálfun.
Enginn sagði, ætli þú sért ekki
bara komin á breytingaskeiðið.
Ég hef einmitt tekið eftir því að
konur eru almennt ekki greindar
með breytingaskeiðið og kulnun
virðist vera mjög algeng greining á
breytingaskeiðinu. Margar konur
fara ungar á breytingaskeiðið og
þær virðast eiga mjög erfitt með að
fá greiningu.“
Hvað gerir þú til að komast
gegnum breytingaskeiðið?
„Ég hef verið að glíma við hátt
kólesteról sem ég held niðri með
mataræði. Minn læknir mælti ekki
með því að fara á hormóna þar sem
kólesterólið væri svo hátt og ég
ákvað því að halda áfram að gera
tilraunir með mataræði. Ég hef náð
að halda einkennunum alveg niðri
með því að vanda mig í mataræði
og þar spilar sykurinn stórt hlut
verk. Ef ég sleppi sykrinum finn ég
ekki fyrir neinum einkennum og
sem bónus virðist sykurleysið hafa
róandi áhrif á þvagblöðruna þann
ig að ég þarf ekki lengur að vakna á
hverri nóttu til að pissa.
Helmingur mannkyns mun á
einhverjum tímapunkti í lífi sínu
fara á breytingaskeiðið. Ef þú ert á
miðjum aldri og finnur fyrir óeðli
lega miklum skapsveiflum, orku
leysi, depurð, þunglyndi, þá myndi
ég panta tíma hjá mínum lækni og
fá hormónamælingar. Ég hef aldrei
fundið fyrir algengum einkennum
eins og hitakófum og nætursvita og
vonandi slepp ég alfarið við það,“
segir Ásdís að lokum. n
Ég fann fyrir orku-
leysi á æfingum og
margir bentu mér góð-
látlega á að ég væri nú að
eldast og það myndi
hægjast á fólki með
aldrinum.
Breytingaskeið kvenna hefur
verið mikið í umræðunni
upp á síðkastið og ljóst að
breytingarnar og einkenni
eru ekki eins hjá öllum.
Konur virðast finna mismik-
ið fyrir breytingunum sem
verða á breytingaskeiðinu
auk þess sem þær fara ólíkar
leiðir til að komast gegnum
þetta skeið lífsins.
sjofn@frettabladid.is
Ásdís Ósk Valsdóttir fasteigna
sali þekkir vel hvernig er að fara
gegnum breytingaskeiðið og segir
að einkenni hafi ekki verið augljós.
Hún fann síðan leið til þess að
komast gegnum breytingaskeiðið
og líður vel í dag. „Síðustu fimm ár
hef ég verið að gjörbreyta mínum
lífsstíl úr því að vera sófakartafla
sem vann sér til húðar og spáði
lítið í mataræði í það að átta mig
á mikilvægi þess að hafa jafnvægi
milli einkalífs og vinnu og einblína
á hollt mataræði og hreyfingu. Ég
hef gert margar litlar breytingar en
stærsta breytingin var þegar ég fór
í ástandsmælingu hjá Greenfit og
sá svart á hvítu hvar mín heilsu
farsvandamál lágu og hvað ég gæti
gert til að laga þau.“
Ásdís fór að finna fyrir breyt
ingum á líðan sinni og líkama fyrir
tveimur árum en tengdi það ekki
strax við breytingaskeiðið þó svo
að einkenni væri í raun til staðar.
„Fyrir tæpum tveimur árum fór ég
að finna fyrir meiri þreytu og orku
Fór að finna fyrir meiri þreytu og orkuleysi
Ásdís Ósk Vals-
dóttir fasteigna-
sali hefur náð að
finna sér leið til
komast gegnum
breytinga-
skeiðið án þess
að taka horm-
ónalyf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
elin@frettabladid.is
Flestir hafa heyrt um þau einkenni
sem koma fram á breytingaskeið
inu. Færri vita kannski að matar
æði getur slegið á þau einkenni.
Rannsókn sem gerð var árið 2016
sýndi að mikil neysla á fæðu úr
jurtaríkinu getur slegið á einkenni
breytingaskeiðs.
Rannsakendur skoðuðu ein
kenni við tíðahvörf hjá konum frá
45 ára aldri. Af þeim stóra hópi
sem tók þátt voru 123 konur vegan
og grænkerar. Í ljós kom að tíðni
einkenna var lægst hjá konum sem
voru vegan. Vísindamenn draga
þá ályktun að vegan mataræði geti
hjálpað konum sem vilja draga
úr einkennum án lyfja. Vegan
mataræði er ríkt af soja og getur
dregið úr fjölda æðahreyfinga
breytinga, þar á meðal hitakófum
hjá konum á tíðahvörfum. Rann
sóknin var birt af North American
Menopause Society í tímaritinu
Menopause.
Konur sem breyttu mataræði
sínu yfir í vegan og borðuðu að
minnsta kosti hálfan bolla af
sojabaunum á dag sögðust hafa
minnkað hitakófin og að þær
upplifðu bætt lífsgæði með nýju
mataræði.
Mataræði við tíðahvörf
n Heilkorn
n Belgjurtir, flestar baunir
n Hnetur og fræ
n Grænmeti
n Ávextir og ber
Plöntu
bundið
mataræði
ætti að hafa
á matseðlinum
þótt þú sért ekki
hundrað prósent
vegan. Það þarf þó að
bæta við vítamínum og
fæðubótarefnum á vegan
fæði, til dæmis B12, Dvíta
míni og joði. Grænmetisríkt fæði
er heilsubætandi.
Þeir sem borða lítið af mjólk og
eggjum þurfa einnig að huga að
þessum efnum. Önnur vítamín
og steinefni sem er rétt að hafa í
huga þegar valin eru matvæli úr
jurtaríkinu eru B2 og
B6vítamín, kalk, járn,
selen og sink. n
Mataræðið hefur áhrif
Fallegur grænmetisdiskur. Konur
á breytingaskeiði ættu að borða
meira úr jurtaríkinu.
Hnetur
og fræ hafa
góð áhrif á líðan
kvenna á breyt-
ingaskeiðinu.
10 kynningarblað A L LT 26. október 2022 MIÐVIKUDAGUR