Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 20
Margrét Ágústsdóttir er
ótrúleg ofurkona þegar
kemur að hreyfingu. Hún
stundar þríþraut og lætur
ekki aldurinn stoppa sig. Til
að verja liði tekur hún Active
JOINTS frá Eylíf.
Margrét segist vera búin að stunda
þríþraut í ellefu ár en því fylgir
mikið álag á líkamann. „Á þessum
aldri og eftir miklar líkamlegar
æfingar í gegnum árin þurfti ég
að finna eitthvað sem héldi liða-
mótunum góðum. Ég var búin að
prófa ýmislegt þegar ég rambaði
á Active JOINTS frá Eylíf fyrir
svona tveimur árum. Síðan hef ég
ekki fundið fyrir neinu í liðunum.
Active JOINTS virkar svona vel
fyrir mig. Þess vegna finnst mér í
góðu lagi að mæla með því fyrir
aðra. Ég vil að fólk viti af þessu
fæðubótarefni,“ segir Margrét.
„Ég var farin að finna fyrir
eymslum í liðunum eftir strangar
æfingar, sérstaklega á morgnana
þegar ég fór fram úr. Ég finn ekki
fyrir því lengur. Að keppa og æfa
mikið fylgir meiðslahætta. Ef það
gerist þarf að slaka aðeins á, ég fer
til sjúkraþjálfara og passa upp á
mig,“ heldur Margrét áfram. „Fyrir
tveimur árum náði ég mér í bein-
mar í hné og þarf stundum að nota
spelku frá Össuri ef ég finn mikið
fyrir því. Liðirnir eru fínir og það
þakka ég Active JOINTS.“
Byrjaði eftir fimmtugt
„Ég var komin yfir fimmtugt
þegar vinnufélagi minn þáverandi
kynnti mig fyrir þríþraut og ég
kolféll fyrir íþróttinni. Mér fannst
þetta ofboðslega skemmtilegt,
góður félagsskapur og æfingarnar
meiriháttar fyrir líkamann. Ég
æfði mikið, 8-10 tíma á viku. Ég féll
vel í þennan hóp og fannst einstak-
lega gaman að keppa. Mér finnst
alltaf gott að reyna á mig líkam-
lega,“ segir Margrét. „Þríþrautin
samanstendur af sundi, hlaupi og
hjólreiðum. Vegalengdirnar eru
mislangar, allt frá sprettþraut sem
ég klára á 45 mínútum upp í heilan
járnkarl sem er 16 tíma vinna. Ég
æfi og keppi með Þríþrautardeild
Breiðabliks,“ segir Margrét sem
hefur keppt mikið í sumar. „Þrí-
þrautin á hug minn allan og mig
langar ekkert að hætta,“ bætir hún
við. Ætla að halda áfram svo lengi
sem ég get og finnst gaman.
Tók þátt í járnkarli
Í sumar fór Margrét til Danmerkur
og tók þátt í hálfum járnkarli. „Það
var ótrúlega gaman. Keppnin felst
í 1.900 metra sundi sem fram fór
í höfninni á Helsingjaeyri. Síðan
hjóluðum við í 90 kílómetra um
Norður-Sjáland og hlupum síðan
hálft maraþon í miðbæ Helsingja-
eyrar. Þetta fannst mér óskaplega
skemmtilegt. Við eigum að gera
það sem við höfum ánægju af, sér-
staklega þegar aldurinn færist yfir
og ekki fyrir neinum að sjá nema
okkur sjálfum.“
Margrét segist reyna að hvíla
einu sinni til tvisvar í viku.
„Stundum eru æfingar tvisvar á
dag,“ segir hún. Margrét keppir í
sínum aldursflokki en hún viður-
kennir að hópurinn sé ekki stór.
Það er merkilegt að Margrét var
aldrei í íþróttum þegar hún var
yngri. „Áhuginn vaknaði þegar
ég var dregin inn í þetta komin
yfir miðjan aldur,“ segir hún og
hlær. „Ég fann strax hvað þetta var
gaman og hentaði mér vel. Ég æfi
þessar þrjár greinar sem þríþrautin
er, en með fram því þarf ég að gera
styrktaræfingar og teygjur. Það er
afar mikilvægt,“ segir hún.
CrossFit í pásunni
„Síðasta keppnin er hjá mér núna
um helgina. Það er sprettþraut sem
fram fer í Reykjanesbæ. Sprett-
þrautin er stysta vegalengdin,
þá er synt 400 metra í sundlaug,
hjólað 10 kílómetra og hlaupið 2,5
kílómetra. Eftir þá keppni ætla ég
að taka smá pásu og gera eitthvað
allt annað til að hvíla hugann á
þríþrautinni. Núna verður það
CrossFit. Það hef ég gert einu sinni
áður og finnst skemmtilegt. Ætli ég
taki ekki einn og hálfan mánuð í
því áður en þríþrautin hefst aftur,“
segir þessi ofurkona. „Næsta sumar
fer ég svo í hálfan járnkarl í Svíþjóð
með félögum mínum í Breiðabliki,“
segir Margrét sem hefur eignast
marga vini í kringum sportið.
„Þetta er svolítið extreme sport og
hentar ekki öllum. Hins vegar ættu
allir að reyna að finna eitthvað við
sitt hæfi, hreyfing á þessum aldri
er mjög mikilvæg þótt hún þurfi
ekki að vera keppnis. Ég er mjög
orkumikil og finnst gaman að vera
til. Þríþrautin gefur lífinu lit,“ segir
hún.
Margrét tekur þrjú hylki af
Active JOINTS frá Eylíf á morgnana
eins og mælt er með. „Ég fann mjög
fljótlega eftir að ég byrjaði að taka
Active JOINTS að liðleikinn var allt
annar. Ég er því ákveðin í að halda
áfram að taka Active JOINTS. Mér
finnst mikill plús að Active JOINTS
er íslenskt fæðubótarefni með
hreinum efnum úr okkar náttúru-
auðlindum.“
Heilsan er dýrmætust
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active
JOINTS, Stronger BONES, Smooth-
er SKIN & HAIR, Happier GUTS,
og Stronger LIVER er nýjasta
varan. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er
stofnandi Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig langaði
að setja saman þau frábæru hrá-
efni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta
varan okkar er Active JOINTS sem
inniheldur fjögur íslensk nær-
ingarefni og sýna margra ára rann-
sóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“
segir Ólöf Rún.
„Við vöndum til verka, sækjum
í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af
landi, og notum hreina, íslenska
náttúruafurð og hrein hráefni sem
eru framleidd af viðurkenndum
íslenskum framleiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bætiefnin
frá Eylíf eru ekki erfðabreytt. „Þau
stuðla að heilbrigði og sveigjan-
legri líkama því þá erum við færari
um að takast á við verkefnin í
dagsins önn. Við vitum öll að
heilsan er okkur dýrmætust og
því er svo mikilvægt að gæta vel að
henni og fyrirbyggja ýmis heilsu-
farsvandamál. Heilbrigð melting
er grunnur að góðri heilsu og þess
vegna vildum við hjá Eylíf bjóða
upp á hágæðavöru fyrir melting-
una,“ segir Ólöf Rún. n
Fæðubótarefni kemur ekki í stað
inn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi
konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur
segir til um. Geymist þar sem börn
ná ekki til.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumaður auglýsinga: Kolbreinn Kolbeinsson, kolbeinn@frettabladid.is, s. 550 5656.
utanvegahlaup og hitt og þetta, og
því fylgir líka undirbúningur við
að skoða leiðir og þvælast á vett-
vangi, því á einni slíkri keppnis-
helgi þarf að djöflast um og labba
f leiri tugi kílómetra, og þá er
ekki verra að vera með liðina vel
smurða,“ segir Einar ánægður með
árangurinn.
„Þegar maður hefur glímt
við verki og er í yfirvigt er ríkt í
manni að reyna að komast hjá því
að hreyfa sig af því maður veit að
því fylgir áreynsla og vont nudd á
hnjám, en þegar það hverfur, eins
og hefur gerst hjá mér með Active
Joints, þá tekur smá tíma að sann-
færa hausinn um að kvíða því ekki
lengur að hlaupa upp í móti eða
skjótast það sem þarf. Hausinn
þarf að venjast því að hafa ekki
lengur áhyggjur af verknum en
svo kemur að því að hann segir:
„Þetta verður allt í lagi: verkurinn
er farinn. Gott! Hlaupum bara af
stað!“ og þá gerir maður einmitt
það,“ segir Einar kátur.
Kominn á fullt með gítarinn
Einar segir mikinn lífsstílslétti að
finna ekki lengur seyðing eða sting í
hnjánum og hann er ekki frá því að
Active Joints hafi góð áhrif á fleiri
liði líkamans.
„Svei mér ef ég er ekki líka orðinn
fimari í fingrunum því ég er farinn
að setjast oftar niður með gítarinn
og kannski það sé Active Joints að
þakka. Hver veit nema maður semji
jólalag,“ segir hann glettinn og hlær.
„Undanfarin ár hef ég verið
heldur rólegri í tónlistinni en ég
vildi, en nú er ég aðeins farinn að
spá og spekúlera meira og í febrúar
ætla ég að halda kassagítarstón-
leika hér og þar á landinu með þeim
sem hafa gert flest lögin mín þekkt.
Þar tökum við lagið, ég og Gunni
Óla, Magni, Skímó og kannski Klara
í Nylon: fyrst og fremst okkur til
skemmtunar og þeim sem hafa
gaman af því að hlusta á okkur,“
segir Einar, fullur tilhlökkunar og
létt að vera laus við verkina.
„Ég mæli hiklaust með Active
Joints og Happier Guts frá Eylíf og
svo finnst mér ekki verra að vita
til þess að bætiefnin frá Eylíf eru
framleidd hér heima; úr íslenskum
hráefnum úr hreinni, íslenskri
náttúru.“
Eylíf vörurnar fást í öllum apó
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaup,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og
Melabúðinni. Ókeypis heimsend
ing ef keypt er fyrir 7.000 krónur
eða meira á eylif.is.
Einar Bárðarson stundar mikla hreyfingu í lífi sínu og starfi. Hann segist ekki geta verið ánægðari en hann er með
árangur af Active Joints. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Ofurkona sem
keppir í þríþraut
Margrét segir að hún finni mun á liðleika eftir að hún byrjaði að taka inn Act
ive JOINTS. Margrét er mikil íþróttakona og stundar þríþraut af miklu kappi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
2 kynningarblað 26. október 2022 MIÐVIKUDAGURVÍTAMÍN OG BÆTIEFNI