Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 37
Er því með
ólíkindum,
að mat-
vælaráð-
herra skuli
leyfa sér að
halda því
fram, að
Ísland sé
að reyna að
koma í veg
fyrir ólýð-
ræðisleg
vinnu-
brögð.
„Landsfundur Vinstrihreyfingar-
innar-græns framboðs, haldinn á
Selfossi 23.-25. október 2015, leggst
eindregið gegn hvalveiðum við
Íslandsstrendur“. Þetta er tilvitnun
í landsfundarályktanir Vinstri
grænna.
Völd og efndir
2017 komst VG ekki aðeins í ríkis-
stjórn, heldur varð formaður
flokksins, Katrín Jakobsdóttir, for-
sætisráðherra. Í 4 ár réði flokkurinn
fyrst bæði fyrir forsætisráðuneytinu
og umhverfisráðuneytinu, og nú,
5. árið, fékk f lokkurinn, Svandís
Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið. Matvælaráðu-
neytið.
Á þessum 5 árum, sem ríkisstjórn
Katrínar Jakobsdóttur hefur verið
við völd, hefur verið veitt meira af
hvölum en oftast eða nokkurn tíma
áður, og, þrátt fyrir það, að flokkur-
inn hafi stýrt sjávarútvegsráðuneyt-
inu og farið alfarið með hvalveiðar,
frá í fyrra, fóru hvalveiðar fram
með óbreyttum og fullum hætti nú
í sumar.
148 langreyðum, næst stærsta
spendýri jarðar, margt kýr með
fullgengnum kálfum, var slátr-
að;:sprengdar og tættar til dauða.
Svandís gat og henni bar
að stöðva veiðarnar
2009 setti Jón Bjarnason, þá sjávar-
út vegsráðherra, reglugerð nr.
489/2009, sem kvað m.a. á um það,
að verka skyldi hval undir þaki, í
lokuðu rými, til að tryggja hrein-
læti við vinnslu og matvælaöryggi,
en frá 1949 hafði þessi verkun farið
fram úti, undir berum himni.
Jón setti þessa reglugerð bæði til
að fyrirbyggja, að fuglar eða önnur
óværa kæmust í matvælin og til
að samræma okkar starfsramma
í matvælaiðnaði matvælalöggjöf
ESB, eins og okkur bar skylda til skv.
EES-samningi.
Þrátt fyrir það ríkidæmi, sem
Hvalur hf. byggði upp á síðustu öld,
tímdi fyrirtækið aldrei að fjárfesta
í vinnsluhúsi fyrir hvalina. Hefði
þessi reglugerð Jóns Bjarnasonar
því átt að stöðva veiðar og vinnslu
Hvals hf.
Hvalur hf. virti hins vegar þessa
reglugerð að vettugi í 8 ár, sýndi
bara Matvælastofnun, sem átti að
fylgja reglugerðinni eftir, fingur-
inn;:verkaði áfram hval, eins og var
70 árum áður.
2017 varð Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegsráðherra, og var þeim
nöfnunum, Kristjáni Loftssyni í Hval
og honum, greinilega vel til vina,
því ráðherrann setti stuttu seinna
nýja reglugerð, nr. 533/2018, þar
sem verkun hvals var aftur leyfð úti,
undir berum himni, eins og var 1949.
Einhver hefði kallað þetta dæmi-
gerða íslenzka spillingu.
Svandís hefði, eftir sína valdatöku
í sjávarútvegsráðuneytinu, ekki
aðeins getað, heldur hefði henni
borið, að ógilda spillingarreglu-
gerð Kristjáns Þórs og virkja aftur
alvörureglugerð Jóns Bjarnasonar,
nr. 489/2009, en þar með hefði Krist-
ján Loftsson neyðst til að hætta
hvalveiðum.
Svandís heyktist hins vegar á, að
taka þetta auðvelda og réttmæta
skref, leiðrétta misgjörðir forvera
síns og standa við yfirlýsta stefnu
síns f lokks um að stöðva hval-
veiðar.
Enn stóð því Kristján Loftsson
uppi sem glaðhlakkalegur sigur-
vegari, en Vinstri grænir urðu enn
að beygja sig niður í vanefndir og
duft.
Griðasvæði í Suður-Atlantshafi
Heimsálfurnar Suður-Ameríka og
Afríka mynda Suður-Atlantshaf.
Frá Íslandi og í það mitt eru 10.000
km. Að vestanverðu eru Argentína,
Úrúgvæ og Brasilía strandríkin, og
að austanverðu, Afríkumegin, eru
það Suður-Afríka, Namibía, Angóla
og Gabon.
Á síðustu öld murkuðu gráðugir
og grimmir hvalveiðimenn lífið
úr 2,9 milljónum hvala. Voru 71%
þeirra drepnir í Suður-Atlantshafi.
Viðkoma hvala er hæg, þeir ganga
lengi með, sem háþróuð spendýr,
og eignast hvalkýr bara einn kálf.
Öll þessi helztu strandríki Suður-
Atlantshafs ákváðu því um 1990, að
vinna að friðun hvala á ákveðnu
hafsvæði í Suður-Atlantshafi, til að
styðja við viðkomu og endurupp-
byggingu hvalastofna, eftir gegnd-
arlausa slátrun hvala þar.
Þrátt fyrir fátækt og mikla mat-
vælaþörf í þessum ríkjum, ákváðu
þau, að láta það ganga fyrir, að
mynda þetta griðasvæði fyrir hvali,
af þeirri hugsun og hugsjón, að við
verðum að reyna að endurreisa líf-
ríki jarðar, sem við höfum gengið
svo heiftarlega á.
Þegar lævísi og lágkúra ráða för
1998 lögðu Suður-Atlantshafs-
ríkin, sem eru þau einu, sem eiga
aðgang að Suður-Atlantshafi, raun-
verulega þau einu, sem hlut eiga að
málinu, því önnur aðildarríki eru
staðsett annars staðar á jörðinni,
mörg víðs fjarri, fram tillögu um
þetta griðasvæði á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins, en náðu ekki
tilskyldum þremur-fjórða-meiri-
hluta.
Síðan hafa þau barizt fyrir griða-
svæðinu, án árangurs, þó að allan
tímann hafi verið mikill meirihluti
innan ráðsins fyrir griðasvæðinu,
en hvalveiðiríki, með Íslendinga
fremsta í f lokki, 10.000 km í burtu,
hafa með lævísi, brögðum og lág-
kúru hindrað framgang vilja meiri-
hlutans.
Nú, á dögunum, á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Portoroz/Sló-
veníu, endurtók þessi ljóti leikur sig.
Íslenzka sendinefndin, sem Svandís
Svavarsdóttir ætti að hafa skipað,
ásamt með 14 öðrum sendinefndum,
mest smáríkja, sem ég hef sjaldan
heyrt eða séð, og ríkja, sem eru víðs
fjarri Suður-Atlantshafi, og ættu ekk-
ert að hafa um málið að segja, gengu
af fundi til að fyrirbyggja, að hægt
væri að greiða atkvæði um málið.
Við svona atkvæðagreiðslu þarf
helmingur aðildarríkja að vera við-
staddur, til að fundurinn sé álykt-
unarhæfur. Með því að ganga af
fundi, komu þessi 15 ríki því í veg
fyrir að hægt væri að taka málið til
atkvæðagreiðslu.
Ólýðræðislegt trikk og ótrúleg
útskýring matvælaráðherra
Ómerkilegt og ólýðræðislegt trikk
það, og svo leyfir matvælaráðherra
sér að senda fjölmiðlum tilkynn-
ingu um, að íslenzka sendinefndin
hafi gengið af fundi, því hún hafi
talið, að ólýðræðislegt hefði verið
að halda atkvæðagreiðsluna.
Ótrúleg tilraun ráðherra til
að afsaka málið, vegna þess, að
íslenzka sendinefndin hefur leikið
þennan leik áður, þegar hún óttað-
ist, að griðasvæðið yrði samþykkt,
t.a.m. 2011, en sá ótti var greinilega
líka til staðar nú.
2012 studdu 38 ríki, öll aðal ríkin,
sem eiga hlut að máli, tillöguna,
gegn 21 ríki. 2018 studdu 39 ríki
tillöguna, gegn 25. Hér hefur því
minni hluti ríkja, mikið undir for-
ystu Íslands, beitt meirihlutann
yfirgangi og of beldi um áratuga
skeið. Hafa grunsemdir um mútur
verið uppi. Er því með ólíkindum,
að matvælaráðherra skuli leyfa
sér að halda því fram, að Ísland sé
að reyna að koma í veg fyrir ólýð-
ræðisleg vinnubrögð.
Rúsínan í pylsuendanum er svo
sú, að Svandís Svavarsdóttir, VG,
hefur greinilega skipað alræmdasta
hvaladrápara heims, Kristján Lofts-
son, í íslenzku sendinefndina, og ber
hún skýr merki þess. n
Þegar íslenzk sviksemi og lágkúra teygja sig yfir hálfan heiminn
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir og
dýraverndunar-
sinni
Áhrifamikil skáldsaga eftir
Hauk Má Helgason sem
varpar nýju ljósi á lífið í
Reykjavík á seinni hluta
átjándu aldar.
„Tugthúsið er sérlega vel upp byggð saga,
frásagnarstíllinn þjáll og grípandi og
persónusköpun góð.“
P Á L L E G I L L W I N K E L / M O R G U N B L A Ð I Ð
„Mjög áleitin bók … Rosalega fjörugt
persónugallerí.“
E G I L L H E L G A S O N / K I L J A N
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Virka daga 10–18 | Lau 11–17 | Sun 12–16 | www.forlagid.is
MIÐVIKUDAGUR 26. október 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ