Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 18
Það geta ýmsar breytingar átt sér stað í líkamanum á breytingaskeiðinu, konur fá hitakóf, eiga í erfiðleikum með þyngd- arstjórnun, verkir í liðamótum eru algengir, minnkandi beinþéttni og svefntruflanir. Tanya Svavarsdóttir rekur Heilsuskóla Tanyu. Til hennar leita margar konur sem eru að upplifa breyt- ingaskeið. Tanya telur hreyfingu vera mikilvæga til að taka minnka einkenni við tíðahvörf. elin@frettabladid.is Tanya segir hreyfingu tvímæla- laust hafa góð áhrif. „Það geta ýmsar breytingar átt sér stað í líkamanum á breytingaskeiðinu, konur fá hitakóf, þær eiga í erfið- leikum með þyngdarstjórnun, verkir í liðamótum eru algengir, minnkandi beinþéttni, svefn- truflanir, nætursviti, minni stjórn á þvagblöðrunni og minni áhugi á kynlífi. Regluleg hreyfing getur haft mjög jákvæð áhrif á líðan kvenna á breytingaskeiðinu og getur hjálpað til við að lina öll þessi einkenni. Auk þess geta æfingar aukið sjálfstraust, bætt andlega líðan og dregið úr streitu og kvíða,“ segir hún. Tanya segir að yfirleitt séu konur mjög duglegar að hreyfa sig á þeim aldri sem breytingaskeiðið gerir vart við sig. „Þetta eru konur, sem hafa alið upp börnin sín og vita hvað þær vilja í lífinu. Þær hafa meiri tíma til að hugsa betur um heilsuna og setja sig í fyrsta sæti, hugsanlega í fyrsta skipti á ævinni. Fifty is the new thirty,“ segir Tanya og bætir við að konur á þessum frábæra aldri fái oft ný áhugamál. „Þær fara að dansa, stunda jóga eða spila golf. Öll hreyfing er til bóta ef hún er regluleg en líka skemmtileg og umfram allt í góðum félagsskap. Hjá mér æfa konur á öllum aldri, en þær eldri hafa verið að æfa saman hjá mér svo áratugum skiptir og við eldumst saman. Við æfum kannski öðruvísi með hækkandi aldri og getum ekki lengur gert allt sem við gátum þegar við vorum tvítugar, en það skiptir ekki máli. Við kunnum að meta það sem lífið hefur upp á að bjóða og hver æfingahópur á hverju námskeiði í Heilsuskól- anum mínum er alveg einstakur. Það er lærdómsríkt og gefandi að æfa í hóp og styðja hver aðra, ekki bara í æfingunum heldur alla leið í gegnum lífið. Þær tala líka um það margoft hversu hreyfingin er jákvæð, gerir þær glaðari, léttari í lund og líkam- lega sterkari. Það er fjöldi kvenna, sem hefur sagt mér að ástundun reglulegra dansæfinga hafi hjálpað þeim að komast í gegnum skilnað, sorg, sjúkdómsgreiningu, ein- manaleika og andleg veikindi,“ segir Tanya. „Konur á breytingaskeiðinu geta gert allt sem þær vilja. Það er best að velja sér hreyfingu sem þeim finnst skemmtileg og spennandi, við eigum að hlakka til að mæta á æfingu. Regluleg hreyfing þarf að vera hluti af daglegum lífsstíl en ekki eitthvað tímabundið sem er gert til að ná ákveðnum árangri. Ef æfingin er ekki skemmtileg hætta þær að mæta. Langur göngutúr, sundsprettur, að dansa eða hjóla eykur vellíðan. Konur þurfa samt að stunda einhverja styrktar- þjálfun til að viðhalda vöðva- og beinmassa og fyrirbyggja bein- þynningu. Með því að vera sterkar fá konur tækifæri til að viðhalda færni við daglegar athafnir og verða sjálfstæðari. Það má ekki gleyma að þjálfa einnig liðleika og jafnvægið. Að hafa gott jafnvægi, frá praktísku sjónarmiði, fyrir- byggir fall og slys,“ segir hún. Tanya bendir á að mataræði skipti líka máli. „Konur á breyt- ingaskeiðinu ættu að borða ferskar afurðir en ekki unnar matvörur. Jafnframt er gott að hafa jafn- vægi í næringarefnum dagsdag- lega og gæta þess að fá nægilega mikið prótein úr fæðunni. Neysla fjölbreytts og litríks grænmetis og ávaxta hjálpar konum að fá ráðlagðan skammt af vítamínum og steinefnum, sem eru nauð- synleg fyrir líkamlega starfsemi, eins og kalsíum (sem við töpum úr beinunum á breytingaskeiðinu) og D-vítamín. Það er ekki eigingjarnt að hugsa vel um sig. Þegar okkur líður vel, þá getum við hjálpað öðrum á heimilinu og í kringum okkur að líða betur,“ segir Tanya. n Hreyfing skiptir máli á breytingaskeiðinu Tanya segir að hreyfing skipti miklu máli, sérstaklega þegar fólk eldist. MYND/AÐSEND Kröftug og náttúruleg bæti- efni sem geta reynst vel á breytingaskeiðinu. Katrín Amni Friðriksdóttir, fram- kvæmdastjóri og annar eigandi ICEHERBS, segir að náttúran búi yfir mikilli virkni og leyndar- málum þegar kemur að því að fara í gegnum breytingaskeiðið. „Þetta tímabil í lífi kvenna er mjög ein- staklingsbundið og því þarf hver og ein að finna sína leið sem getur verið mjög erfitt. Sumar glíma við líkamleg vandamál, hvort sem það eru liðverkir og hitakóf eða margt annað. Aðrar glíma við svefn- röskun og andlegt ójafnvægi. Það leita margar til okkar hjá ICEHERBS eftir náttúrulegum bætiefnum sem hjálpa til við að vinna gegn ýmsum einkennum breytingaskeiðsins. Margar konur kjósa að styðjast alfarið við nátt- úrulegar lausnir á meðan aðrar vilja nýta sér þær í bland við aðrar meðferðir,“ segir Katrín. Stelpur, pössum svefninn Sofðu rótt og Magnesíum með fjallagrösum eru afar kröftugar blöndur fyrir bættan svefn. Þessar vörur geta aukið slökun, svefn og svefngæði til muna. „Svefninn fer úr skorðum hjá mörgum konum á breytinga- skeiðinu. Svefninn er lykilatriði í því að okkur líði vel og er því alltaf fyrsta skrefið. Ef svefninn er í ólagi getur það ýkt einkenni og við finnum það líklega öll, að eftir svefnlausar nætur, er rökhugsun og lundarfar sjaldan upp á marga fiska. Þá getur hjálpað mörgum að bæta svefninn með inntöku á náttúru- legum bætiefnum.“ Konur eiga skilninginn skilið Katrín Amni Friðriksdóttir er framkvæmdastjóri og annar eigandi ICEHERBS. Hún segir náttúruna búa yfir mikilli virkni sem geti haft góð áhrif á konur á breytingaskeiðinu. MYND/ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR Verum góðar við lifrina okkar Mjólkurþistill er að sögn Katr- ínar ævaforn og vinsæl lækninga- jurt. „Hann hefur löngum verið notaður til að styðja við starfsemi lifrarinnar með því að hjálpa til við hreinsun hennar. Lifrin er í fullri vinnu við að halda líkam- anum í jafnvægi og getur hún orðið ansi þreytt. Við mælum oft með mjólkurþistli eftir góðar grill- veislur og skemmtileg partí. En það má ekki gleyma að lifrin sinnir margvíslegum hlutverkum sem geta haft áhrif á jafnvægi horm- ónastarfseminnar. Þar á meðal kynhormóna og skjaldkirtils- hormóna. Með því að hjálpa til við hreinsun lifrarinnar er mjólkur- þistillinn eins og aðstoðarmaður sem hjálpar lifrinni við starf sitt. Mjólkurþistillinn virðist enn fremur slá á hitakófið hjá sumum konum en eins og ég segi, þá eru áhrif bætiefna mjög einstaklings- bundin,“ segir Katrín. Töfrar túrmeriks Katrín segist ekki geta hætt að dásama sterku túrmerikblönduna frá ICEHERBS. „Túrmerikið er auðvitað stórkostleg lækningajurt sem löngum hefur verið þekkt sem víðtæk náttúruleg lausn. Hún eykur kraft og virðist hafa gríðar- lega góð áhrif á liðverki, bólgur og einnig meltinguna. Gigtareinkenni eru algeng á breytingaskeiðinu og hjá mörgum er túrmerikblandan okkar ómissandi. Okkar blanda inniheldur einnig svartan pipar sem margfaldar upptöku túr- meriks og íslensk fjallagrös sem eru þekkt sem gingseng Íslands, enda stútfull af næringarefnum, steinefnum og trefjum.“ Burnirótin gríðarlega vinsæl „Virkni burnirótarinnar gegn streitu og þreytu hefur ekki farið fram hjá neinum. Meiri orka frá ICEHERBS inniheldur burnirót og íslensk fjallagrös og hefur verið gríðarlega vinsæl hjá konum á besta aldri sem glíma við leiðinda heilaþoku og stressvesen og streitu. Eins og við vitum getur breytingaskeiðið skollið á af krafti og er slen og orkuleysi eitt af fyrstu einkennum hjá fjölmörgum konum. Virka efnið í burnirótinni er svokallað adaptógen, sem er nátt- úrulegt efni sem eykur viðnám líkamans við þreytu, streitu og kvíða. Burnirótin er hreinlega algjör kraftaverkajurt og ættu í raun sem flestir að nota hana sem vilja skýrari huga. Einnig getur hún haft góð áhrif á kynhvötina, en margar konur glíma við kyn- deyfð á breytingaskeiðinu.“ Hlúum betur að okkur Katrín fagnar aukinni umræðu um breytingaskeiðið. „Fyrir mitt leyti þá róar það mig að sjá hvað umræðan um þetta tímabil hefur opnast mikið. Ég sé það enn betur að við sem konur verðum að hlúa vel að okkur, hlusta á líkama okkar og ekki horfa fram hjá einkennum breytingaskeiðsins. Þetta eru raunveruleg einkenni og það er ýmislegt hægt að gera svo okkur líði betur. Ég held að alheimurinn skuldi okkur konum að sýna skilning á þessu áhrifamikla tíma- bili, því við göngum allar í gegnum þetta á okkar hátt. Það er svaka- legt að vita til þess hvað mörgum konum hefur liðið illa í svo langan tíma og mætt litlum skilningi. Við hjá ICEHERBS erum að hlusta á hvað er í gangi. Við viljum leggja okkar af mörkum til að hjálpa til í þessari vegferð og þróa vörur sem geta stutt konur í gegnum þetta tímabil ævi- skeiðsins. Ég legg áherslu á að við erum hvorki að veita læknisráð né að selja lyf en hins vegar trúum við á lækningamátt jurta enda getur hann verið stórfenglegur. Við heyrum nær daglega frá konum sem deila með okkur jákvæðri upplifun sinni af vörunum okkar og þær hjálpa þeim að eiga betri daga og nætur á þessu tímabili lífsins. Það styrkir og hvetur okkur til að gera sífellt betur.“ n Vörurnar frá ICEHERBS fást í öllum betri matvöruverslunum, apótekum, heilsuvöruversl- unum og glæsilegri vefverslun iceherbs.is. 6 kynningarblað A L LT 26. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.