Fréttablaðið - 26.10.2022, Blaðsíða 16
Það er ótrúlega
skrítið hversu lítið
maður veit um þetta,
samt er maður með svo
margar konur í kringum
sig sem hafa gengið í
gegnum þetta tímabil.
Guðbjörg Þóra er allt önnur
eftir að hún uppgötvaði
Femarelle en hún mælir
hiklaust með að skoða vöru-
línuna fyrir allar konur sem
finna fyrir einkennum breyt-
ingaskeiðs.
Breytingaskeiðið er eðlilegur hluti
af lífsskeiði kvenna og eitthvað sem
allar konur ganga í gegnum, hins
vegar er afar einstaklingsbundið
hvernig konur upplifa tilteknar
breytingar. Sumar konur upplifa
frelsi og fagna þessum tímamótum
og því að vera komnar á þann stað
í lífinu að búa yfir meiri sjálfs-
þekkingu, visku og þroska. Hins
vegar eru sumar hverjar sem kvíða
fyrir þessum breytingum og þeim
líkamlegu og andlegu einkennum
sem geta fylgt í kjölfarið.
Fullkomlega eðlilegur kafli
í lífi kvenna
Flestar konur finna fyrir því þegar
hormónabreytingar hefjast, þó
svo að þær geri sér ekki alltaf grein
fyrir því að um upphaf breytinga-
skeiðs sé að ræða. Á meðan sumar
konur fara létt í gegnum þetta
tímabil eru aðrar konur sem upp-
lifa töluvert skert lífsgæði. Ein-
kenni þeirra hormónabreytinga
sem eiga sér stað á þessu tímabili
geta verið afar mismunandi milli
kvenna. Þau einkenni sem eru
oftast til umræðu og flestar konur
kannast við að hafa heyrt um eru
svitakóf, nætursviti og óreglulegar
eða engar blæðingar.
Algengt er að ef konur finna ekki
fyrir þessum einkennum gruni þær
ekki breytingaskeiðið þegar ein-
kennin eru í raun yfir 30 talsins og
geta verið ótrúlega lúmsk.
Hér eru nokkrir áhugaverðir
punktar sem allar konur ættu að
lesa sér til um og hafa í huga:
n Þú getur byrjað að finna fyrir
einkennum um eða jafnvel
fyrir 40 ára aldur.
n Þú getur verið byrjuð á breyt-
ingaskeiðinu þó svo að þú
sért ekki að upplifa hita- og
svitaköst.
n Þú getur verið byrjuð á
breytingaskeiðinu þó svo að
þú sért ennþá með reglulegar
blæðingar.
n 9 af hverjum 10 konum finna
fyrir andlegri vanlíðan á breyt-
ingaskeiðinu.
n Óútskýrð þyngdaraukning,
depurð og svefnleysi eru
algeng einkenni breytinga-
skeiðs.
n Það eru til ráð sem geta
hjálpað þér að endurheimta
sjálfa þig og það er þess virði.
n Þú ert ekki ein!
Meira vakandi fyrir einkennum
Guðbjörg Þóra Þorsteinsdóttir er
42 ára og býr í Þýskalandi ásamt
manninum sínum og yngsta
barni og hundinum. Saman eiga
þau hjónin þrjú börn og búa
tvö þeirra á Íslandi. Hin daglega
rútína hjá henni byrjar snemma,
en á hverjum morgni vaknar hún
á milli klukkan 6 og 7 og finnst
gott að eiga notalega og rólega
morgunstund áður en haldið er út í
amstur hversdagsleikans. Guðbjörg
Þóra er almennt heilsuhraust og
stundar hreyfingu daglega, bæði
líkamsrækt og fer í göngutúra með
hundinn.
Fyrir rúmlega ári, eða þegar hún
var rétt rúmlega fertug, byrjaði hún
að finna fyrir einkennum sem hún
síðan tengdi við breytingaskeiðið.
„Mjög góð vinkona mín gekk í
gegnum erfitt tímabil eitt sinn sem
hafði mikil áhrif á hana en enginn
vissi hvað var að hrjá hana, engum
datt í hug að þetta gæti verið vegna
hormónabreytinga. Það var ekki
fyrr en eftir 1-2 ár af mikilli van-
Fann mun á öðrum mánuði með Femarelle
Guðbjörg Þóra
býr í Þýska-
landi ásamt
manni sínum,
yngsta syni og
hundinum. Hún
byrjaði að finna
fyrir einkennum
breytinga-
skeiðsins um
fertugt.
MYND/AÐSEND
Famarelle Recharge er hannað sér-
staklega fyrir konur á aldrinum 50+,
en varan inniheldur B6-vítamín sem
stuðlar að því að halda reglu á horm-
ónastarfsemi og dregur úr þreytu
og lúa.
Femarelle Unstoppable sem er fyrir
konur 60+ en blandan inniheldur
B2 og B7 vítamín, kalk og D- vítamín
sem stuðlar að viðhaldi eðlilegra
beina.
Femarelle Rejuvenate hentar
konum sem eru að upplifa fyrstu
einkenni hormónabreytinga og
áður en óregla kemst á blæðingar.
Blandan inniheldur hörfræ, B2- og
B7-vítamín sem stuðlar að eðli-
legum efnaskiptum ásamt viðhaldi
eðlilegrar húðar, slímhúðar og hárs.
líðan að henni var bent á að þetta
gætu verið einkenni breytinga-
skeiðsins og í kjölfarið leitaði hún
sér aðstoðar. Hún er allt önnur í
dag og líður vel.
Eftir þetta fór ég að lesa mér til
um breytingaskeiðið og einkenni
og hef síðan þá verið mjög vakandi
fyrir þessu. Ég tengdi því strax
við það þegar ég byrjaði að finna
fyrir þessum breytingum á minni
líðan. Það er ótrúlega skrítið hversu
lítið maður veit um þetta, samt
er maður með svo margar konur
í kringum sig sem hafa gengið í
gegnum þetta tímabil,“ segir Guð-
björg Þóra.
Einkennin sem Guðbjörg Þóra
fann mikið fyrir voru óeðlilegar
blæðingar, mikið orkuleysi og
þreyta, hárlos, tíðari skapsveiflur
og þyngdaraukning þrátt fyrir að
stunda mikla hreyfingu og engin
breyting væri á mataræði.
Fann fljótlega mun
„Þegar ég var á Íslandi síðasta
sumar sá ég Femarelle auglýsingu
í blaði og ákvað að prófa að taka
Femarelle Rejuvenate, eða bláa
pakkann, sem er sérstaklega fyrir
konur á mínum aldri. Ég keypti
strax þrjá pakka og tók þá með
mér út en það var strax á öðrum
mánuði sem ég byrjaði að finna
mun, orkan var meiri og ég hætti
að þurfa að ryksuga upp hárin eftir
hverja sturtu. Þyngdin hefur staðið
í stað, mikið minna um skap-
sveiflur og mun meira jafnvægi.
Ég byrjaði að finna mun strax á
öðrum mánuði eftir að ég byrjaði
að taka Femarelle,“ segir Guðbjörg
Þóra.
Einstök viðbót
á breytingaskeiðinu
Fjölmargir kvensjúkdómalæknar
í Evrópu mæla með Femarelle
vörulínunni sem fyrstu meðferð
við breytingaskeiðinu þar sem
Femarelle er hormónalaus lausn
við einkennum. Vörulínan inni-
heldur 3 vörur svo allar konur ættu
að finna eitthvað við sitt hæfi.
Helsta innihaldsefni í vörulínu
Femarelle er einkaleyfisvarið efna-
samband, DT56a, sem virkar þann-
ig að það örvar estrógen-nema í
staðbundnum vef, ásamt því að
efnið slær á einkenni tíðahvarfa án
þess að hafa nokkur neikvæð áhrif
á vef í móðurlífi eða brjóstum.
Femarelle Rejuvenate hentar
konum sem eru að upplifa fyrstu
einkenni hormónabreytinga og
áður en óregla kemst á blæðingar.
Blandan inniheldur hörfræ, B2- og
B7-vítamín sem stuðlar að eðli-
legum efnaskiptum ásamt viðhaldi
eðlilegrar húðar, slímhúðar og
hárs.
Femarelle Recharge er ætlað
konum 50 ára+ en varan inniheldur
B6-vítamín sem stuðlar að því að
halda reglu á hormónastarfsemi og
dregur úr þreytu og lúa.
Síðast en ekki síst er Femarelle
Unstoppable sem er fyrir konur
60+ en blandan inniheldur B2- og
B7-vítamín, kalk og D-vítamín sem
stuðlar að viðhaldi eðlilegra beina.
Femarelle vörulínan er afar hentug
fyrir konur sem eru að ganga í
gegnum þetta margbreytilega skeið
og geta allar fundið eitthvað við sitt
hæfi. n
4 kynningarblað A L LT 26. október 2022 MIÐVIKUDAGUR