Skrá yfir vita og sjómerki á Íslandi - 01.01.1931, Side 70
68
1 húsinu eru ýmsar matvörur og áhöld. Frá höfðanum liggi'r
stikuröS, sem fylgja má til bæja.
Hælið á Kálfafellsmelum er úr tré og stendur á 10 m. háuffl
roksandshól um 1 sjóm. frá ströndinni. Húsið sést langt að i
logni og björtu veðri, en i dimmviðri sést það trauðla. í þvi
eru rúm handa 14 mönnum, vistir meðul og umbúðir, verk-
færi og smíðaáhöld, tjöld, sleðar, sokkar og vetlingar, ullar-
peysur, eldavél og steinolía, eldflugur, 1 rautt og 1 hvitt ljós-
ker, segldúgsbátur, kompás og uppdráttur af nágrenninu. Enn-
fremur er fest upp í húsinu leiðbeiningar handa skipbrots-
mönnum, hvernig þeir geti náð hjálp, eða hvernig þeir geti
komist til byggða. Veggirnir á hælinu eru rauðir með hvítuin
krossi. Þakið er flatt, og á því grindur til að setja Ijósin í, og
hlíf er skyggir á ljóskerið sjávarmegin.
Skammt frá hælinu stendur sjómerki, 12 m. há stöng með
kringlóttlri plötu efst, og er hún rauð með lóðréttri hvítri rönd.
Merkið stendur á 63° 40' 47" n. br„ 17° 25' 35" v. 1.
Eindregið skal ráðið frá því að leita á Skeiðarársand beint
upp til jökulsins, með því að þá hljóta menn óumflýjanlega að
komast á ófærar slóðir, nema þeir séu nákunnugir staðhátt-
um. Skal farið með ströndinni, annaðhvort til Ingólfshöfða eða
Máfabótar.
Milli Ilvalsýkis og Eldvatnsóss er öruggast að fara eftir sjó-
merkjum, sem eru í sambandi við skipbrotsmannahælið í Máfd'
bót. sem byggt Var 1913.
Sjómerkið er hér um bil 17 m. há, rauð- og hvitmáluð járn-
grind með toppmerki: ferhyrnd plata með mjóu horni upp og
niður. Merkið stendur á 03° 42' 34" n. br„ 17° 45' 37" v. 1. fyrh'
ofan Skaftárós og Veiðiós, um 2000 m. frá sjó, 0 m. yfir sjávar-
mál.
Skiphrotsmannahælið stendur 390 m. N frá sjómerkinu, 7 ®-
yfir sjávarmál. Það er 0x6 m„ hvítt með stórum, rauðum krossi
á Iivorri hlið. í húsinu eru rúm handa 12 mönnum, fatnaðuÞ
vistir, kol, steinolia, rúmföt, verkfæri og áhöld af ýmsu tagh
meðalakassi, bátur, sleðar og kaðlar handa skipbrotsmönnunn
er vilja leita byggða eða bíða i húsinu. Ennfremur uppdrsettir
og leiðbeiningar á íslenzku, dönsku, ensku, þýzku og frakk-
nesku um, hvernig megi komast til byggða.
Ennfremur eru settir upp þessir leiðarstaurar: Fyrir aust-
an Veiðiós 4 meðfram fjörunni (á tvo þeirra eru festir kass:U
með kortum og leiðarvísum); frá austasta staurnum eru 1
staurar i beinni línu heim að Sléttabóli. Fyrir vestan Skaftar'
ós eru 7 staurar meðfram fjörunni (2 þeirra með kortum ob
leiðarvísum); frá vestasta staurnum eru 7 staurar í beina lílUl
á Steinsmýrarbæina. Milli stauranna er hér um bil 1 km. í Máfa
J