Fréttablaðið - 26.11.2022, Side 2
Þær eru eiginlega
starfsmenn og við-
skiptavinir á sama
tíma.
Laura Pasztor,
verslunarstjóri
Krónunnar í
Seljahverfi
Pönkast í Pútín
Rússneska femíníska andófspönksveitin Pussy Riot flutti tónlistargjörninginn Riot Days í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld. Sveitin er þyrnir í síðu Vladímírs Pútín
Rússlandsforseta enda hafa meðlimir hennar oft mótmælt gjörðum Kremlarstjórnar með ýmis konar aðgerðum. Hafa þær þurft að dúsa í fangelsi vegna þeirra.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Endurnar eru margar fyrir framan Krónuna. Þær eru mjög mannblendnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ODDUR ÆVAR
Andahópur hefur gert sig
heimakominn fyrir framan
Krónuna í Seljahverfi. Versl-
unarstjóri segir þær hafa
slegið í gegn enda í raun bæði
viðskiptavinir og starfsmenn
sem mæti á sama tíma á
hverjum degi.
odduraevar@frettabladid.is
DÝRALÍF „Þær koma hingað á hverj-
um einasta degi og hafa gert það
núna í rúmlega mánuð,“ segir Laura
Pasztor, verslunarstjóri Krónunnar í
Seljahverfi, um andahóp sem hefur
gert sig heimakominn fyrir utan
verslunina svo athygli hefur vakið.
„Þær eru greinilega frekar svangar
og viðskiptavinir hafa verið að gefa
þeim, enda eru þær rosalega gæfar
og koma þess vegna bara aftur
og aftur,“ segir Laura. Þegar ljós-
myndara blaðsins bar að garði kom
andaskarinn á sprettinum á móti
honum.
Gæfar endurnar hafa vakið
athygli íbúa. „Fólk segir að þær viti
hvar eigi að sníkja mat,“ skrifar íbúi
nokkur í umræðum um endurnar
á samfélagsmiðlum. „Jú, í lágvöru-
verðsverslun.“
Laura segist halda að mögulega
sé ekki öllum viðskiptavinum jafn
skemmt yfir öndunum sem geti
verið nokkuð ágengar, svo gæfar
eru þær.
„En langf lestir elska þær. Þær
virka líka þannig á okkur að þær
virðast vera kátar og margir hafa
keypt brauð hérna til að gefa þeim
og aðrir hafa tekið myndir af sér
með þeim hér, enda þyrpast þær
að fólki ef það gefur þeim einhvern
gaum,“ segir Laura.
Hún viðurkennir hlæjandi að
þetta sé í fyrsta skiptið sem anda-
hópur hafi gert sig heimakominn
fyrir framan verslunina. Þær séu
vinsælar meðal starfsfólks.
„Við elskum þær. Þær eru líka
svo sætar og mjög almennilegar,
við erum farin að verða þeim mjög
kunnug. Stundum labba þær meira
að segja inn í búðina og þá höfum
við þurft að reka þær út,“ segir Laura
hlæjandi.
Hún er til í að fallast á að þarna
séu nýir starfsmenn Krónunnar á
ferðinni. „Það mætti alveg segja það.
Þær eru eiginlega starfsmenn og við-
skiptavinir á sama tíma,“ segir Laura
sem bætir því við að þær séu alltaf
tímanlega á ferðinni.
„Þær birtast alltaf um hádegisbil,
rúmlega ellefu eða tólf en alls ekki
snemma.“
Þetta gefur til kynna að þær séu
ekki A-týpur. „Nei, alls ekki!“ n
Svangar í Seljahverfi og
hafa algerlega slegið í gegn
Ragnar Þór
Ingólfsson,
formaður VR
bth@frettabladid.is
KJARAMÁL „Nei, við munum ekki
slíta viðræðum, það hefur verið
samþykkt að við mætum á fund
næsta þriðjudag,“ segir Björn Snæ-
björnsson, formaður Einingar-Iðju,
sem situr í samninganefnd Starfs-
greinasambandsins.
Landssamband íslenskra versl-
unarmanna hefur einnig tekið
ákvörðun um að halda áfram við-
ræðum. Virðist VR því eitt á báti
með þá ákvörðun að slíta viðræðum
vegna kjarasamninga.
Björn segist aðspurður telja að VR
eigi aftur endurkomu ef aðstæður
spilist þannig. „En við erum ekkert
á leiðinni út.“
Björn segist bjartsýnn á meðan
viðræður séu í gangi. Boðað hefur
verið til næsta fundar með Sam-
tökum atvinnulífsins hjá ríkissátta-
semjara næsta þriðjudag.
„Á meðan viðræðum er ekki slitið
er von um að þetta klárist,“ segir
Björn.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður
VR, sagði í gær óásættanlegt hvernig
samninganefnd Samtaka atvinnu-
lífsins hefði viljað nálgast skamm-
tímasamning í kjaraviðræðum á
almennum vinnumarkaði.
„Viðræður hafa þokast í rétta átt
síðustu daga en nú er ljóst að for-
sendur fyrir áframhaldandi sam-
tali eru brostnar,“ segir í yfirlýsingu
frá VR. n
VR eitt á báti varðandi slit viðræðna
HEIMA ER BEZT
MÁNUDAGA KL. 19.00
OG AFTUR KL. 21.00
kristinnhaukur@frettabladid.is
DÝRALÍF Hundaræktarfélag Íslands
(HRFÍ) heiðrar þjónustu- og afreks-
hunda ársins í dag, á nóvembersýn-
ingu félagsins, Winter Wonderland-
sýningunni. Sýningin er haldin í
Samskipahöll Sprettara í Kópavogi.
„Margar frásagnir eru til af hetju-
dáðum „besta vinar mannsins“ sem
hafa snortið hjörtu okkar,“ segir í
tilkynningu HRFÍ. „Ekki eru gerðar
kröfur um að hundurinn sé hrein-
ræktaður og allar tilnefningar eru
vel þegnar jafnvel þótt langt sé um
liðið.“
Afrekshundurinn þarf með ein-
hverjum hætti að hafa komið að
björgun manna eða dýra, liðsinnt
fötluðum eða veikum, verið til upp-
örvunar eða hjálpað á annan hátt.
Þjónustuhundar eru þeir sem
vinna allan ársins hring að þjónustu
í samfélaginu. Til dæmis björgunar-
hundar, lögregluhundar og fíkni-
efnahundar.
Afreks- og þjónustuhundarnir
verða heiðraðir klukkan 15.15. n
HRFÍ heiðrar
afrekshund ársins
Hundar eru bestu vinir mannanna.
2 Fréttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ