Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 122
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
60+ Á TENERIFE
5. JANÚAR Í 20 NÆTUR
með Gunnari Svanlaugs
595 1000 www.heimsferdir.is
298.900
Flug & hótel frá
20 nætur
Fararstjóri:
Gunnar Svanlaugsson
HÁLFT FÆÐI INNIFALIÐ
odduraevar@frettabladid.is
Marín Eydal
Sigurðardóttir,
tölvuleikja-
streymari
„Mér fannst
Marvel hafa verið
á toppnum 2008-
2016. Þarna
fengum við allar
Iron Man og Captain America
myndirnar plús fyrstu þrjár Aven-
gers.
Svo fannst mér þetta byrja að
dala eftir 2016. Vissulega hefur
ein og ein mynd verið góð, eins
og nýjasta Spidermanmyndin en
eiginlega engin hinna náðu mér.
Ástæðan: Það er verið að reyna
að þóknast öllum og það er
verið að reyna að setja svo mikinn
goofie húmor inn í allt. Stundum
viljum við bara taka þessu alvar-
lega en það er pínu erfitt þegar
það er verið að henda „onelin-
erum“ út um allar trissur. Mér
finnst þau einhvern veginn leggja
meiri vinnu í að gera hluti og
karaktera söluvænni í leikföngum
heldur en að gera þá áhrifameiri í
söguþræðinum.
Það sem ég vil sjá: Eitthvað nýtt
og ég vil sjá eitthvað gamalt, bara
ekki sama hlutinn aftur og aftur.
Ég vil sjá meira af X-Men, gömlu
góðu X-Men og líka Fantastic Four.
Það eru svo margar hetjur í til
dæmis X-Men heiminum sem hafa
ekki fengið að stíga á svið.
Ég væri til í að fá að kynnast
fleiri hetjum með sína persónu-
lega karaktera, ekki bara ein-
hverjar sem öllum líkar vel við.
Öllum finnst Thor, Black Widow
og allar þessar hetjur flottar, en ég
vil fá einhvern sem ég annaðhvort
hata eða elska.
Gott dæmi er Loki. Hann er
alvöru karakter, hann var brútal,
sjálfselskur og yfir höfuð bara
mjög slæmur gaur. Ég vil sjá nýjar
hetjur og fleiri skúrka með sál.
Ég vil sjá Sunspot, Magiku úr
X-Men og Silver Surfer úr Fantastic
Four og svo marga aðra. Nú tala
ég ekki fyrir alla en ég held að
ástæðan fyrir því að við séum að
fá leiða sé af því að við erum ekki
að sjá nýja hluti.
Við viljum sjá nýjar persónur og
ný plott. n
Marvel þarf að hysja
upp um sig buxurnar
© GRAPHIC NEWSHeimild: The Numbers, Box Oce Mojo Mynd: © 2022 Marvel
FIMM STÆRSTU KVIKMYNDABÁLKARNIR Í SAMANBURÐI
Heildar miðasölutekjur (í milljörðum $)
Kvikmyndaheimur Marvel
Star Wars
James Bond
Leðurblökumaðurinn
Kóngulóarmaðurinn
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
1960 1970 1980 1990 2000 2010 2020
$8.09 ma
$6.13b ma
$4.34 ma
$3.91 ma
$11.48 ma
Black Panther: Wakanda Forever, nýjasta útspil Marvel stúdíósins, rakaði inn 180
milljónum Bandaríkjadollara á frumsýningarhelgi sinni. Þetta er stærsta frumsýningin
í sögu Nóvembermánaðar og veltir því The Hunger Games: Catching Fire af stóli
Leiursókn Marvel myndanna
n Lykilspurningin
Ertu komin/nn með nóg
af Marvel?
odduraevar@frettabladid.is
Einn elsti köttur landsins, Siglu-
fjarðarkisan Dúlla, er einungis
fjórum árum yngri en elsti köttur í
heimi. Sá er breskur, heitir Flossie og
greindi BBC frá því að hún hefði nú
hlotið titil Guinness World Records
sem elsti köttur í heimi.
Hana 22 ára gömlu Dúllu á Siglu-
firði vantar því einungis fjögur ár í að
verða elsti köttur í heimi. Rósa Ólafs-
dóttir, eigandi Dúllu, segir hana enn
í fullu fjöri þó aldurinn sé farinn að
segja til sín.
„Hún er svolítið farin að missa
sjónina og sefur meira en vanalega.
Hún er orðin svolítið kölkuð og það
kemur fyrir á kvöldin að hún fer
að breima, eða svona eins og þegar
læður kalla á kettlingana sína,“
segir Rósa.
Blaðið ræddi við Rósu
fyrr á árinu og þá
kvaðst hún ekki viss
hvort Dúlla væri elsti
köttur landsins, en
ljóst er að hún gerir
allavega atlögu að titl-
inum.
Dúlla er sannkall-
aður aldamótaköttur og
kom í heiminn þann 6. maí
árið 2000 og hefur Rósa
átt hana alla sína tíð. „Hún
sefur svona 22 klukkutíma á
sólarhring, hún er komin með
gláku en fer út alltaf á morgnana
í svona hálftíma og svo inn aftur og
heldur áfram að sofa,“ segir Rósa
aðspurð hvernig Dúlla beri
aldurinn. Kötturinn
hefur verið mann-
blendinn alla sína
tíð. „Hún hefur
gert mikið af því
að fara hérna fyrir
utan sundlaugina
á Siglufirði, sitja
þar og láta vor-
kenna sér. Svo er fólk
að fara með hana heim
og koma með hana í bíln-
um, þó að við búum rétt
hjá,“ segir Rósa hlæjandi.
„Hún er með þann-
ig andlit að það er ekkert
hægt að standast það neitt.
Maður hefði kannski átt að reyna
að græða eitthvað á því!“ n
Á einungis fjögur ár í heimsmetið
Dúlla
gæti verið
elsti köttur
landsins.
Ásgeir
Kolbeinsson,
athafnamaður
„Ég er kannski
ekki kominn
með leiða á þeim
en þolið er alveg
að detta niður
og maður fer að
missa áhugann
ef þeir fara ekki að spyrna í bráð-
lega.
Þeir voru náttúrlega frábærir en
síðan eftir Endgame, þegar þeirra
greinilega formlegu heimssýn á
þennan Marvel heim þar sem allt
saman tengdist lauk, þá greinilega
var einhver fundur þar sem þeir
ákváðu að þeir gætu ekki hætt
því þetta væri svo mikil peninga-
maskína.
Þá var farið í alls konar vitleysu
eins og Eternals-myndina, sem
var ein sú mesta froða sem maður
hefur séð. Virkilega leiðinleg
mynd um guði sem voru vondir og
vildu útrýma öllum.
Algjörir Marvel-fíklar verja þetta
og segja þetta hluti af einhverju
stærra, en ég er bara góður, ég
þarf það ekkert.“
Ásgeir hefur séð allar nýjustu
Marvel-myndirnar, til að mynda
um Dr. Strange, Thor og Black
Panther.
„Þetta er allt með stimpli sem
heitir úff. Dr. Strange and the
Multiverse, ég segi bara úff. Ég var
spenntur fyrir Multiverse en þetta
er ekki að heilla mig. Sumt er
skrifað á klósettpappír en annað
er bara skrifað í einhverri góðri
þynnku og ég held að þetta falli í
seinni hópinn.
Svo þetta með Christian Bale,
þessi frábæri leikari, honum hefur
verið selt þetta konsept að hann
yrði meiriháttar illmenni í frábærri
Thor-mynd. Hann skammast sín
örugglega í dag fyrir að hafa tekið
þátt í þessu, enda myndin hræði-
leg eins og fyrri Thor-myndirnar
voru góðar. Það er óþolandi þegar
svona er búið til bara til þess að
koma krónum í kassann.
Það er það sama með Black
Panther 2. Af hverju hét þetta bara
ekki eitthvað annað? Að blanda
Black Panther-stimplinum í þetta
er algjör steypa. Allt of róleg og
minni hasar. Ég væri til í að lesa
handritið sem þau hugsuðu fyrir
Chadwick Boseman áður en hann
dó. Það hefur örugglega allt farið
í pappírstætarann frekar en að
vinna með það.“ n
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
78 Lífið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ