Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 30
Marta og Sinclair hafa
skorað á fimm Heims-
meistaramótum en
Ronaldo er fyrsti karl-
maðurinn til að afreka
það.
Hér er að verða til hinn
eðlilegi píramídi
fótboltans sem við
þekkjum úr hinum
stóra heimi.
Hjörvar Hafliða-
son, sparkspek-
ingur
Cristiano Ronaldo - Portúgal
Cristiano Ronaldo er fyrsti
karlmaðurinn í sögunni til að skora
á mm Heimsmeistaramótum,
hann skoraði eitt mark í sigri á
Ghana á mmtudag.
Ronaldo er næstelsti leikmaðurinn
til að skora á Heimsmeistarmaótinu
(37 ára og 292 daga), aðeins Roger Milla sem skoraði
fyrir Kamerún 1994 er eldri (42 ára og 39 daga).
Fæddur: 5 febrúar,
1985 í Funchal
Staða: Framherji
Félag: Án félags
Fyrsti landsleikur:
Ágúst árið 2003 gegn Kasakstan
Leikmaðurinn:
118 mörk
08 mörk á Heimsmeistaramótum
(2006, 10, 14, 18, 2022)
192 landsleikir
Heimild: Transfermarkt Mynd: Getty © GRAPHIC NEWS
hoddi@frettabladid.is
Cristiano Ronaldo er fyrsti karl-
maðurinn í sögunni til að skora
á f imm Heimsmeistaramótum.
Ronaldo skoraði eitt mark í 3-2 sigri
Portúgals á Gana á fimmtudag.
Sögubækurnar og Ronaldo ná vel
saman en þessi magnaði íþrótta-
maður hefur í mörg ár skrifað sig á
spjöld sögunnar.
Ronaldo fagnar 38 ára afmæli
sínu í febrúar en hann er nú án
félags eftir að samningi hans við
Manchest er United var rift. Ronaldo
spilaði á sínu fyrsta heimsmeistara-
móti árið 2006 og nú 16 árum síðar
er hann enn í fullu fjöri.
Ronaldo skoraði á sínu fimmta
Heimsmeistaramóti með marki úr
vítaspyrnu. Hann er kominn í hóp
með Mörtu frá Brasilíu og Christine
Sinclair frá Kanada sem báðar hafa
skorað á fimm Heimsmeistara-
mótum.
Ronaldo hefur hins vegar ekk-
ert raðað inn mörkum á þessum
mótum ef litið er á heildina því í
18 leikjum eru mörkin nú átta. Þar
á meðal er þrenna gegn Spáni á
Heimsmeistaramótinu í Rússlandi
árið 2018. Ronaldo skoraði fjögur
mörk í heildina á því móti en árin
2006, 2010 og 2014 hafði Ronaldo
bara skorað eitt mark á hverju móti.
Ronaldo rifti samningi sínum
við Manchester United tveimur
dögum fyrir leikinn gegn Gana en
hann hafði fengið nóg af félaginu og
vildi burt. Hann þarf því að sanna
ágæti sitt á þessu móti til að minna
stærstu félög Evrópu á að enn sé nóg
eftir á tankinum hjá þessum full-
orðna knattspyrnumanni. Ronaldo
hefur á ferli sínum oft verið bestur
með bakið upp við vegg og byrjar
með látum á stórmótinu í Katar. n
Cristiano Ronaldo
í hóp góðra kvenna
Sparkspekingurinn Hjörvar
Hafliðason vonast til þess að
hér á landi sé að verða eðlileg-
ur félagaskiptamarkaður. Svo
virðist sem slíkur markaður
sé að verða til í fyrsta sinn í
sögunni. Félög sem eiga mikla
fjármuni eru í meira mæli að
kaupa leikmenn af þeim sem
minna hafa á milli handanna.
hoddi@frettabladid.is
Breytt landslag virðist vera að eiga
sér stað í íslenskum fótbolta. Rík-
ustu lið landsins hika nú ekki við
að kaupa leikmenn og borga oft og
tíðum væna summu fyrir. Á árum
áður skiptu leikmenn varla um félag
nema þeir væru samningslausir og
kæmu þá frítt.
Segja má að Valur hafi á undan-
förnum árum breytt landslaginu
og f leiri fylgja í kjölfarið. Valur
keypti sem dæmi Guðmund Andra
Tryggvason frá Start í Noregi sum-
arið 2021 og var kaupverðið sagt
vera um og yfir 10 milljónir króna.
Valur keypti Orra Hrafn Kjartans-
son frá Fylki nokkrum mánuðum
síðar og borgaði fyrir hann nokkrar
milljónir.
Breiðablik hefur svo fylgt á eftir,
í haust hefur Breiðablik keypt Alex
Frey Elísson frá Fram og Patrik
Johannesen frá Kef lavík, saman-
lagt kaupverð þeirra er sagt nálægt
20 milljónum króna. Alex Freyr er
öf lugur hægri bakvörður sem ku
hafa kostað í kringum 7 milljónir
og Patrik sem skoraði 12 mörk fyrir
Keflavík í sumar kostaði Breiðablik
um og yfir 10 milljónir króna.
Mismunandi tekjumódel
Valur hefur haft nokkra sérstöðu
þegar kemur að f jármunum í
íslenskum fótbolta síðustu ár en
félagið seldi stórt land undir íbúða-
byggð og hefur það hjálpað til, auk
þess sem félagið hefur náð frábær-
um árangri í karla- og kvennaflokki
sem skilað hefur tekjum í kassann.
Breiðablik hefur í gegnum öf lugt
unglingastarf og góðan meistara-
f lokk búið sér til tekjumódel þar
sem félagið selur leikmenn til
atvinnumannaliða á hverju ári. Nú
síðast var það Ísak Snær Þorvalds-
son sem seldur var til Rosenborg í
Noregi fyrir um og yfir 40 milljónir,
nokkrum mánuðum áður var Ásgeir
Galdur Guðmundsson seldur til FCK
í Danmörku fyrir hærri upphæð en
Ísak skilaði í kassann. „Þetta er bara
jákvætt á allan hátt, hér er að verða
til hinn eðlilegi píramídi fótboltans
sem við þekkjum úr hinum stóra
heimi,“ segir Hjörvar Hafliðason,
sparkspekingur og eigandi hlað-
varpsins Dr. Football.
„Hér á Íslandi hefur í gegnum árin
ekki verið neinn félagaskiptamark-
aður, kaupverð hefur aldrei endur-
speglað laun leikmannsins. Leik-
maður sem kostaði félagið kannski
tvær milljónir var að fá um og yfir
fjórar milljónir í árslaun. Þetta er
hinn eðlilegi píramídi sem vonandi
er að verða til.“
Ekkert neikvætt við þetta
Hjörvar segir að þau félög sem hafi
meiri f jármuni geti með þessu
hjálpað félögum sem hafa minna
á milli handanna og þar fram eftir
götunum. „Fyrir félög sem til dæmis
ná ekki í Evrópukeppni, að þá geta
þessar upphæðir sem nú er talað
um skipt verulegu máli. Fyrir mér
er þetta bara jákvætt.
Vonandi er þetta markaður sem
er að verða til og verður áfram. Að
ef Valur kaupir leikmann af Kefla-
vík, að Keflavík fari þá með hluta af
þeim peningum og kaupi leikmann
af Gróttu sem dæmi. Það er ekkert
neikvætt við þetta.“
Valur og Breiðablik virðast skera
sig úr þegar kemur að fjármunum
um þessar mundir. Víkingar, sem
raðað hafa inn titlum síðustu ár,
þurfa að leita annara leiða og sömu
sögu má segja um Stjörnuna, FH
og KR. „Ég þekki ekki nákvæmlega
fjárhagsstöðu allra liða en Evrópu-
peningarnir skipta gríðarlegu máli.
Valur er að fara inn í annað tímabil-
ið í röð án Evrópu en hefur hingað
til náð að halda sjó,“ segir Hjörvar
um málið. n
Íslenska fótboltahagkerfið
að breytast til betri vegar
Ísak Snær var seldur frá Breiðabliki á dögunum og félagið hefur svo nýtt þá peninga í að kaupa hér á landi.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vil
lu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
ét
t t
il l
eið
ré
tti
ng
a á
sl
íku
. A
th
. a
ð v
er
ð g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fyr
irv
ar
a.
Skíðaferða
Fjölbrey úrval
595 1000 www.heimsferdir.is
Flug & hótel frá
124.250
Frábært verð!
Í JANÚAR & FEBRÚAR
30 Íþróttir 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR