Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 38
Aroni skaut
hratt upp á
stjörnuhimininn
ungum að
árum. Hann
segir rútínu
mikilvæga fyrir
sig til að halda
sér á jörðinni.
Aron vaknar
klukkan fimm á
hverjum morgni
og er mættur í
ræktina klukkan
sex.
Fréttablaðið/
Eyþór
Aron Can Gultekin er einn
vinsælasti tónlistarmaður
landsins. Þrátt fyrir ungan
aldur hefur hann gefið út
fjórar plötur og um síðustu
helgi seldist upp á þrett án
hundruð manna tónleika í
Hörpu. Aron á von á barni í
mars og er spenntur fyrir nýja
hlutverkinu.
Aron Can Gultekin var
aðeins sex t á n á r a
þegar hann gaf út sína
fyrstu plötu árið 2016,
ári síðar var hann vin-
sælasti íslenski tónlistarmaðurinn
á Spotify.
„Ég er búinn að vera ótrúlega lengi
í þessu þó að ég sé svona ungur,“
segir Aron Can, sem er nýorðinn 23
ára. „Ég hafði alltaf mikinn áhuga á
tónlist þegar ég var lítill en það hefði
enginn giskað á að ég yrði tónlistar-
maður,“ segi hann.
„Það er eiginlega fyndið hvað ég
er búinn að vera lengi í þessu en ég
tók upp fyrsta lagið mitt þegar ég
var þrettán ára gamall og gaf það
út á Youtube, var bara að leika mér
eitthvað. Svo gaf ég út meira þegar
ég var fjórtán og enn meira þegar ég
var fimmtán en svo eyddi ég þessu
öllu út aðeins seinna,“ segir Aron.
Hann segir að árið 2016 hafi hann
kynnst pródúserunum Jóni Bjarna
Þórðarsyni og Aroni Rafni Gissurar-
syni, þá hafi allt breyst og hann hafi
fundið sitt „sound“.
„Þeir eru geggjaðir og þegar ég
hitti þá, þá small bara allt saman,“
segir Aron.
„Þarna var ég allt í einu kominn
í alvöru stúdíó, fjólublá led-ljós í
loftinu og bara alvöru stemning.
Þarna prófa ég „auto tune“ í fyrsta
skiptið og þarna fæðist þetta sound.
Þessi fyrsta plata varð til á einum og
hálfum mánuði,“ segir Aron.
Allt gerðist hratt
Um leið og fyrsta platan kom út
fóru hlutirnir að gerast hratt hjá
Aroni og hann varð á meðal vin-
sælustu tónlistarmanna landsins.
Hann var tilnefndur til Íslensku
tónlistarverðlaunanna árið 2017
fyrir rappplötu ársins, rapplag
ársins og sem bjartasta vonin.
Sama ár vann lagið Silfurskotta
með Emmsjé Gauta verðlaun sem
lag ársins í f lokki rapp- og hipp-
hopp-tónlistar en Aron syngur
með Gauta í því lagi.
„Það var bara geggjað hvað þetta
gerðist allt hratt og fólk var greini-
lega tilbúið í þetta nýja sound sem
ég var að gera,“ segir Aron. „Ég hafði
verið að hlusta mikið á íslenskt
hipphopp en ég var líka að hlusta
mikið á erlenda tónlist. Byrjaði að
hlusta á tyrkneskt rapp en hlustaði
til dæmis líka mikið á Drake og The
Weeknd og það veitti mér mikinn
innblástur sem heyrist alveg í
minni tónlist,“ segir hann.
Aron segir að þrátt fyrir að
hann hafi verið ungur þegar hann
byrjaði í tónlistarbransanum hafi
honum verið tekið ótrúlega vel
af kollegum sínum. „Ég var bara
unglingur en þeir tóku mér opnum
örmum. Gauti (Emmsjé Gauti) tók
mig mikið að sér og veitti mér svo
mikla leiðsögn og gaf mér ráð.
Það er enn þannig í dag að ég veit
alltaf að ég get hringt í hann ef mig
vantar ráð,“ segir hann.
Aron minnist þess þegar hann
keppti í Rímnaf læði, rappkeppni
unga fólksins sem haldin er af Sam-
fés. „Þá var Emmsjé Gauti kynnir.
Þetta er svo klikkað af því að hann
var idolið mitt og svo þremur árum
seinna er ég bara mættur í stúdíó
með honum. Svo hef ég hitt og
unnið með svo mörgum af þessum
fyrirmyndum mínum og er orðinn
einn af þeim.“
Hvernig fannst þér að vera allt í
einu orðinn einn af þeim?
Hef alltaf verið slakur gaur
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
„Það var og er bara geggjað,“ segir
Aron. „Ég hef sjúklega gaman af
þessu og tónlist hefur alltaf verið
mitt áhugamál númer eitt og núna
fæ ég að vinna við það, sem er sturl-
að,“ bætir hann við.
„Núna veit ég líka hvað ég geri
þegar það kemur nýr ég, einhver
ungur og efnilegur, þá mun ég taka
á móti honum með kærleika og ást
alveg eins og var gert við mig, það
skiptir svo miklu máli.“
Spenntur að verða pabbi
Aron Can er alinn upp í Grafarvogi
og segist elska hverfið. „Svo mikið
að hérna keypti ég mína fyrstu íbúð
og hér ætlum við fjölskyldan að búa,
verðum í geggjuðum málum með
litla barnið,“ segir Aron en hann og
kærastan hans, Erna María Björns-
dóttir, eiga von á sínu fyrsta barni
í mars.
„Ég get ekki beðið, er ekkert eðli-
lega spenntur,“ segir Aron. „Ég veit
ekkert hvað ég er að fara út í og segi
það í lagi sem ég skrifaði í síðustu
viku: Ég veit ekkert hvernig ég ætla
að ala þig upp en það kemur í ljós,
ég elska ekkert meira en son minn
og hann er ekki kominn,“ segir
hann.
„Ég veit bara að hann mun fá alla
þá ást sem hann á skilið. Frá mér og
mömmu sinni, öllum vinum okkar
og fjölskyldu, við eigum bæði gott
bakland og ég er bara ótrúlega
ánægður með það hvernig lífið er
að þróast. Er þakklátur fyrir lífið og
fagna öllu þessu nýja.“
Aron og Erna María eru búin að
vera saman í sex ár og segist hann
aldrei hafa verið hamingjusamari.
„Ég er að springa úr gleði.“ Spurður
að því hvernig þau Erna María hafi
kynnst segir Aron þau tæknilega séð
hafa þekkst síðan hann var lítill.
„Hún og Talía systir mín voru
bestu vinkonur. Þær eru fjórum
árum eldri en ég og voru saman í
bekk þannig að þegar ég kynnist
henni er ég bara litli krúttlegi bróðir
hennar Talíu, en svo missa þær sam-
band og ég hitti hana ekki í mörg ár,“
segir Aron.
„Svo þegar ég er sextán ára þá var
ég á leiðinni til Keflavíkur með vini
mínum að sækja upptökuvél sem
við notuðum við tónlistarmynd-
bandið við Enginn mórall. Hann
spyr mig hvort mér sé ekki sama þó
að vinkona hans komi með og ég
segi auðvitað bara já,“ segir hann.
„Þá er það bara Erna María sem
ég hef ekki séð í mörg ár og þarna
kynnumst við upp á nýtt og á allt
öðruvísi hátt. Þarna er ég ekki
lengur litli krúttlegi bróðirinn og
við lendum einhvern veginn saman
Það er
sturluð
tilfinning
að standa
uppi á
sviði og
heyra
þrettán
hundruð
manns
syngja
lögin þín.
Þetta er
það
skemmti-
legasta sem
ég hef gert.
38 Helgin 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttAblAðið