Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 112
JOEBOXER.IS | KRINGLAN 4-12 (1. HÆÐ) | 103 REYKJAVÍK | S. 5332009
Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur túlkar líf formóður sinnar, Sigríðar Jónsdóttur, í ljóðabálknum Urtu.
fréttablaðið/ernir
Urta er fjórði ljóðabálkur Gerðar en
áður hafa komið út bálkarnir Blóð-
hófnir, Drápa og Sálumessa.
kápa/forlagið
Urta er nýr ljóðabálkur
eftir Gerði Kristnýju. Í
honum sýnir hún fádæma
tök á íslensku tungumáli í
skorinortum orðum sem lýsa
lífsbaráttu manna og dýra á
árum áður.
ragnarjon@frettabladid.is
Nýjasta bók Gerðar Kristnýjar,
Urta, segir frá konu sem tekst á við
lífsbaráttuna og missi hér á Íslandi
fyrir um hundrað árum síðan.
„Samband mannsins við nátt-
úruna og samband mannsins við
dýrið,“ segir Gerður Kristný um
umfjöllunarefnið. „Við erum í raun
undirseld sömu kröftum og sömu
lífsbaráttunni. Svo lifum við núna
á umbrotatímum. Það er margt að
breytast, eins og hugmyndir okkar
um tungumálið og þjóðerni og
kyn. Þá getur verið rosalega gott að
skríða inn í fortíðina og dvelja þar,“
segir Gerður.
„Þú sérð líka þegar litið er yfir
hvað verið er að skrifa núna, þá eru
rithöfundar mjög mikið í fortíðinni.
Bæði í ár og í fyrra og ég held að við
séum bara aðeins að bíða af okkur.
Við erum í vari á meðan umbrotin
ganga yfir og á meðan við lærum
inn á nýjan veruleika.“
Hófst með drepsótt
Bókina byggir hún á langalang-
ömmu sinni, Sigríði Jónsdóttur,
sem fæddist árið 1845 og bjó á
Stóra-Fjarðarhorni í Kollafirði á
Ströndum. Um tilurð bókarinnar
segir Gerður að eins og svo margt
sem varð til á tímum farsóttarinnar
hafi ferlið byrjað með veikindum.
„Það brast á með drepsótt hjá
mér og þá lögðust öll ferðalög niður
en ég var vön að fara í upplestrar-
ferðir til útlanda og geta lesið upp í
skólum og stofnunum.“
Í fyrstu bölvaði hún faraldrinum
en byrjaði svo að sjá í þeim ljósa
punkta. „Fyrst var þetta frekar leið-
inlegt ástand en svo áttaði ég mig á
því að nú gat ég loksins gert allt sem
ég hafði ekki haft tíma til að gera.“
Hún hafi brátt treyst sér í ferðalög
að nýju sem leiddi til heimsóknar á
kunnuglegar slóðir.
„Ég fékk inni í íbúðinni fyrir ofan
Sparisjóð Strandamanna á Hólma-
vík og var þar í tíu daga. Ákvað þá að
yrkja loksins um langalangömmu
mína. Hún átti nítján börn og var
ljósmóðir og hún missti fótinn og
hún missti manninn sinn, ásamt
því að missa nokkur börn.“
Gerður segir að ein sagan um for-
Lífsbarátta manna og dýra á hjara veraldar
móðurina hafi verið stórfurðuleg.
„Ég hafði heyrt þessa furðulegu
sögu af henni sem mér finnst óskilj-
anleg. Að einhvern tímann kom
hún heim til sín og sagðist ekki geta
lengur unnið sem ljósmóðir vegna
þess að hún hefði hjálpað urtu að
kæpa,“ segir hún.
Selir voru áður álitnir viðsjár-
verðar og dularfullar verur sem oft
rötuðu í þjóðsögur. Gerður segir
þó ekki ljóst hvers vegna björgun-
araðgerðin hafi leitt til þess að hún
ætlaði að segja starfi sínu lausu.
„Þetta er eitthvað tengt þjóðsög-
unum um seli, að þeir séu óhreinar
verur og að maður ætti ekki að
koma of nálægt þeim. Nema þetta
hafi bara verið hennar leið til að
segja að hún væri þreytt og lúin og
fyndist bara vera nóg komið. Nú
gætu aðrar ljósmæður tekið við
héraðinu,“ segir hún og bætir við að
selir séu gæddir eiginleikum sem
mannfólkið tengi við.
„Það er talað um að selirnir
hafi augu drukknaðra sjómanna
og einnig er sagt að selurinn hafi
mannsaugu. Við finnum alltaf ein-
hverja tengingu við selinn.“
Harðneskjulegar aðferðir
Þessi tenging okkar við selinn hafi
þó ekki stoppað okkur frá því að
hafa nytjar af dýrunum, enda geti
allt verið hey í harðindum.
„Ég las upp á Sauðfjársetrinu á
Ströndum um daginn. Þar hitti ég
mann sem sagði að maður þyrfti
að herða sig fyrir selaveiðarnar. Þá
hugsaði ég hvað hann ætti nú eigin-
lega við en svo segja svona menn
yfirleitt aldrei neitt meira. En hann
sagði mér að þær veina, mömmurn-
ar. Kóparnir festast í netinu og voru
oft lifandi þegar komið var að. Mæð-
urnar eru þarna nálægt þegar komið
er að og þær veina þegar þeim er
slátrað,“ segir Gerður og bætir við að
þær aðferðir sem notaðar voru áður
þyki í dag nokkuð harðneskjulegar.
„Bændurnir voru vanir að slátra
kópunum með árunum. Mamma
fór einu sinni með pabba sínum en
sagðist aldrei ætla aftur. Vegna þess
að kóparnir fundust svo oft lifandi
og þá var bara árin gripin.“
Gerður segir að hennar upplifun
af selum sé allt önnur. Hún lýsir
þeim sem forvitnum og fullum af
persónuleika.
„Ég sé selina meðal annars í
Skerjafirðinum og þeir eru líka
sjáanlegir á Seltjarnarnesinu. Þeir
eru bara svo forvitnir og það er svo
mikill karakter í þeim. Þeir mæta
svona og kíkja á hvað sé í gangi. Svo
ef maður fer niður í fjöru og syngur
aðeins þá mæta þeir strax.“ n
Hel
vindur sér inn
um hélaðar dyr
dvelur lengi
velur stelpu
gerir frostmark
á fölt enni
felur mér
gröfina
gapandi kok
(úr Urtu)
Það er talað um að
selirnir hafi augu
drukknaðra sjómanna
og einnig er sagt að
selurinn hafi manns-
augu. Við finnum alltaf
einhverja tengingu við
selinn.
68 Menning 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFréttabLaðiðmenninG FréttabLaðið 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR