Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 104
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Jón Helgason
Sörlaskjóli 28, Reykjavík,
lést 13. nóvember. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir fær Þorrasel, dagdeild aldraðra.
Gunnlaugur Jónsson Katarina Alexandra Jónsson
Sigríður Helga Jónsdóttir
Ingibjörg Guðrún Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Kristín Ingunn Haraldsdóttir
Kiddý í Haga,
lést fimmtudaginn 17. nóvember á
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, Patreksfirði.
Útför hennar fer fram frá Hagakirkju föstudaginn
2. desember klukkan 14. Útförinni verður streymt og má
nálgast hlekk á youtube.com/bit.ly/hagakirkja.
Hlekk á streymi má einnig nálgast á
mbl.is/andlat
Björg G. Bjarnadóttir Eiríkur Jónsson
Margrét Á. Bjarnadóttir Kristján Finnsson
Jóhanna B. Bjarnadóttir Árni V. Þórðarson
Hákon Bjarnason Birna J. Jónasdóttir
J. Kristín Bjarnadóttir
Haraldur Bjarnason María Úlfarsdóttir
Gunnar I. Bjarnason Regína Haraldsdóttir
og ömmubörn
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Svava Berg Þorsteinsdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Eir
11. nóvember í faðmi fjölskyldunnar.
Útför hennar fer fram frá Guðríðarkirkju í
Reykjavík, þriðjudaginn 29. nóvember klukkan 13.
Jónas Ágúst Ágústsson Halldóra Guðríður Árnadóttir
Sólveig Björk Ágústsdóttir Óskar Ísfeld Sigurðsson
Þorsteinn Valur Ágústsson Íris Dröfn Heiðudóttir
ömmubörn og langömmubörn
Elskulegur faðir, barnsfaðir, stjúpfaðir,
stjúptengdafaðir og stjúpafi,
Haraldur Sigþórsson
umferðarverkfræðingur,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
21. nóvember. Útför verður frá
Grafarvogskirkju þann 14. desember kl. 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á SEM samtökin.
Sigþór Haraldsson
Esther Hlíðar Jensen
Inga María Hlíðar Thorsteinson Egill Þór Jónsson
Aron Trausti Egilsson
Sigurdís Egilsdóttir
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Lilja Líndal Gísladóttir
Leynisbraut 10, Akranesi,
lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Höfða, þriðjudaginn 15. nóvember. Útför
hennar fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 1.
desember klukkan 13. Fjölskyldan vill koma á framfæri
sérstökum þökkum til starfsfólks Hjúkrunar- og
dvalarheimilisins Höfða.
Hjörtur Márus Sveinsson
Gísli Baldur Mörköre
Kristinn Líndal Jónsson Fanney Þórðardóttir
Márus Líndal Hjartarson Þura Björk Hreinsdóttir
Ólafur Elí Líndal Hjartarson Berglind Björk Gunnarsdóttir
ömmubörn og langömmubörn
Hjartkær mamma okkar,
tengdamamma, amma,
langamma og langalangamma,
Valdís Þorsteinsdóttir
Lóa
fyrrum stöðvarstjóri
Pósts og síma í Hrísey,
lést á Dvalarheimilinu Dalbæ Dalvík miðvikudaginn
23. nóvember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju
þriðjudaginn 6. desember kl. 13.30.
Þórdís Björg Alfreðsdóttir Steingrímur Sigurðsson
Konráð Þorsteinn Alfreðsson Guðbjörg Ingileif Jónasdóttir
Sigurður Sveinn Alfreðsson Sólborg Friðbjörnsdóttir
Sigurjón Freyr Alfreðsson Margrét Kristmannsdóttir
Blængur Elvar Alfreðsson Þórdís Þorvaldsdóttir
Kristín Anna Alfreðsdóttir Ásgeir Stefánsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Elsku móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Áslaug Bernhöft
lést á Hrafnistu við Sléttuveg
föstudaginn 18. nóvember.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju
fimmtudaginn 1. desember klukkan 13.
Ólafur Þór Jónsson Þórey Björk Þorsteinsdóttir
Þórður Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur hlýhug og
samúð við andlát elsku móður
okkar, tengdamóður, ömmu, systur,
mágkonu og frænku,
Kolbrúnar Þórarinsdóttur
sjúkraliða,
sem lést 8. nóvember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Dagný Skúladóttir Sif Hrafnsdóttir
Guðný Skúladóttir
ömmubörnin Kári, Kormákur og Lovísa
systkini, makar og fjölskyldur
Pétur Þorsteinsson óháða-
safnaðarprestur leiðir að vanda
tilhleypingateiti guðsgeldinga í
prestssetrinu í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Á morgun, fyrsta sunnudag aðventunn-
ar, hefst nýtt kirkjuár með tilheyrandi
jólaföstu. Pétur Þorsteinsson, prestur í
Óháða söfnuðinum, hefur þann sið á að
á gamlársdegi kirkjuársins býður hann
í tilhleypingateiti í prestssetrinu fyrir
svokallaða guðsgeldinga – þá sem eru af
einhverri ástæðu ógiftir og ekki í sam-
bandi.
„Við vorum einhvern tímann í Þórs-
mörk fyrir svona þrjátíu til fjörutíu
árum í byrjun aðventunnar. Í fram-
haldi voru menn að kvarta undan því að
guðsgeldingarnir væru aldrei að hittast,“
útskýrir Pétur. „Ég hef nú boðið þessum
guðsgeldingum í veislu til mín ár hvert
síðan þá.“
Í veislurnar mætir iðulega fjölbreyttur
hópur fólks til að smakka á kökum og
kaffi.
„Ég þekki ekki alla sem koma og það er
ákveðinn léttleiki yfir þessu öllu saman,“
segir Pétur. „Þetta guðsgeldingagengi sem
hingað kemur getur svo horft á hina og
skoðað hvert annað.“
Tilhleypingateitið svokallaða er til-
komið af því að hrútum í sveitinni er
hleypt út á þessum tíma líkt og Pétur
hleypir guðsgeldingunum út meðal fólks.
Gestabókin til bjargar
Hefur eitthvað orðið úr fundum fólks sem
hittist í þessum teitum?
„Já, já! Það er hér fólk sem ég gifti til að
mynda og eiga þrjú undaneldi í dag, en
þau hittust einmitt í einu boðinu,“ segir
Pétur stoltur. „Svo hafa nú menn hist þar
fyrir utan. Ég man eftir einum sérstak-
lega sem var svo orkumikill. Hann kom
daginn eftir því hann náði ekki réttu
nafni á stelpunni sem hann var að tala
við svo hann fékk að koma og skoða í
gestabókina!“
Gestabókin bjargaði þannig verðandi
ást frá glötun. Pétur býst við að kvöldið
gæti ílengst aðeins fram undir morgun
þar sem fólk sé orðið hrætt við það sem
hann kallar Fullukallafélagið.
„Það er orðin ansi mikil orka og elja í
því, svo menn halda sig kannski heima
fyrir og sleppa því að fara niður í bæ,“
segir hann. „Hér elska allir friðinn og
strjúka kviðinn!“ n
Guðsgeldingagengið fagnar saman
Pétur staðfestir að fólk hafi fundið ástina í teitunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og amma,
Þórdís Erlingsdóttir
Svölutjörn 46, Innri-Njarðvík,
varð bráðkvödd á heimili sínu,
föstudaginn 18. nóvember.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, fimmtudaginn
1. desember klukkan 15.
Jón Valgeirsson
Ívar Örn Jónsson Margrét Klara Þórisdóttir
Jóhanna Sigurðardóttir
Alexander Agnar Hersisson og París Möller Ívarsdóttir
Ég þekki ekki alla sem
koma og það er ákveðinn
léttleiki yfir þessu öllu
saman.
60 Tímamót 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ