Fréttablaðið - 26.11.2022, Blaðsíða 50
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Magnea Magnús hefur verið
bókaormur allt sitt líf. Hún
setti á fót Facebook-hópinn
Bókagull – Umræða um
góðar bækur fyrir þrettán
árum en hópurinn telur í
dag rúmlega sautján þúsund
manns. Þar skapast líf-
legar umræður um alls kyns
bækur.
Facebook-hópurinn Bókagull –
Umræða um góðar bækur, var
stofnaður fyrir þrettán árum og
telur rúmlega sautján þúsund
meðlimi. Þar fer fram lífleg og
skemmtileg umræða um góðar
bækur eins og heiti hópsins gefur
til kynna og er hópurinn virkur
allt árið, segir Magnea Magnús,
stofnandi hans.
„Við hjónin áttum Bókaverslun
Þórarins Stefánssonar á Húsavík í
fimmtán ár og þar vorum við auð-
vitað mikið að ræða um bækur og
þurftum meðal annars að fylgjast
vel með umræðum um jólabæk-
urnar. Mér fannst vanta umræður
þar sem fólk gæti rætt saman um
bækur og þá ekki bara fyrir jólin
og var að spá í þetta í einhvern
tíma. Eftir mikla hvatningu frá
vinkonu minni heitinni, sem vann
hjá okkur, henni Svanhildi Diego
bókaormi, skellti ég mér í þetta og
hún hjálpaði mér að finna nafnið
með mér.“
Mikil vinna tengd hópnum
Mjög líf legar umræður skapast
reglulega um ólíkar bækur að
hennar sögn og því gott að leita
ráða í hópnum. „Mér finnst til
dæmis frábært að geta farið á
bókasafn og fundið ummæli í
Bókagulli um bók sem ég er að spá
í að lesa.“
Hún segir mikla vinnu fara í að
halda hópnum hreinum, til dæmis
með því að henda út róbótum,
auglýsingum og öðru sem henni
finnst ekki eiga heima í hópnum.
„Maðurinn minn, Friðrik Sigurðs-
son, er kominn með mér í þetta
því stundum kemur tímabil sem
ég er alveg búin að fá nóg. Það sem
hefur komið mér á óvart er hvað
sumir virðast ekki gera sér grein
fyrir því hvað það er dýrmætt að
umræður í hópnum snúist bara
um bækur. Hvað fólki finnst um
bækur sem það hefur lesið og
hvort það mæli með þeim eða
ekki. Það þarf að leggja á sig mikla
vinnu svo að svona hópar týni
ekki upphaflegum tilgangi sínum.
En Bókagull er þrettán árum síðar
enn eins og ég vildi hafa hópinn
upphaflega, það er að hann inni-
haldi umræður um góðar bækur,
Lyktin af nýjum bókum er algjörlega einstök
Magnea Magnús
stofnaði Face
bookhópinn
Bókagull – Um
ræða um góðar
bækur, fyrir
þrettán árum.
MYND/AÐSEND
Magnea Magnús varð snemma bókaormur og fastagestur á bókasöfnum og í bókabílum.
því allar bækur eru jú góðar, bara
misgóðar.“
Var bókasjúk stelpa
Magnea hefur verið bókaormur
frá því hún man eftir sér. „Ég var
bókasjúk sem stelpa og fór sem
barn og unglingur nánast í hverri
viku í bókabílinn eða í strætó á
bókasafn. Þá tók ég þær tíu bækur
sem var hámarkið og Ingunn,
æskuvinkona mín, tók svo aðrar
tíu bækur og þessar 20 bækur
dugðu okkur í viku.“
Skandinavísku krimmarnir eru
í miklu uppáhaldi þessi árin að
hennar sögn en svo koma nokkrir
íslenskir, amerískir og breskir
höfundar sterkir inn. „Bókalestur
gefur mér alveg ótrúlega mikið.
Ég hef reyndar minna getað lesið
síðasta árið vegna heilahristings
og ég sakna þess að geta gleymt
mér í góðri bók. Mér finnst líka
gott að handleika bækur og lyktin
af nýjum bókum er algjörlega
einstök. Af nýútgefnum bókum
þessa dagana er ég mest spennt
fyrir Drepsvörtu hrauni eftir Lilju
Sigurðardóttur og Saknaðarilmi
eftir Elísabetu Jökulsdóttur en
þessir höfundar eru í miklu uppá-
haldi hjá mér.“ n
FORLAGSFJÖR Á BÓKAMESSU
• Höfundar afgreiða og árita
bækur sínar
• Föndur fyrir börnin
• Gefins plaköt og bókamerki
V i ð t ö k u m v e l á m ó t i y k k u r í H ö r p u u m h e l g i n a k l . 1 1 – 1 7
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
4 kynningarblað 26. nóvember 2022 LAUGARDAGURBók amessa