Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 58
Flataskóli
• Umsjónarkennari
Leikskólinn Bæjarból
• Háskólamenntaður starfsmaður
Leikskólinn Holtakot
• Leikskólakennari
• Sérkennslustjóri
Leikskólinn Hæðaból
• Starfsmaður í eldhús
Leikskólinn Krakkakot
• Háskólamenntaður starfsmaður
• Leiðbeinandi
Leikskólinn Lundaból
• Starfsmaður
Leikskólinn Mánahvoll
• Háskólamenntaður starfsmaður
• Leiðbeinandi
• Leikskólakennari
Flataskóli
• Umsjónarkennari
Urriðaholtsskóli
• Atferlisþjálfi
• Leikskólakennari
• Starfsfólk í Frístund
• Umsjónarkennari
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns,
eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar má finna á ráðningarvef
Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
gardabaer.is
STÖRF HJÁ
GARÐABÆ
Frekari upplýsingar veita Pálmi Reyr Ísólfsson forstöðumaður áhættugreiningar (palmi.reyr.isolfsson@sedlabanki.is) og Telma
Ýr Unnsteinsdóttir sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 12. desember nk.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðing með góðan skilning á högun, uppbyggingu
og rekstri tölvukerfa.
Við leitum að öflugum sérfræðingi til að sinna mati og eftirliti með upplýsingatækniáhættu fjármálafyrirtækja, þ.m.t.
netöryggi. Seðlabankinn leggur áherslu á að búa yfir mikilli þekkingu á þessu sviði og vill stuðla að uppbyggingu sterkra
netöryggisvarna í fjármálakerfinu.
Um er að ræða fjölbreytt starf í deild áhættugreiningar á bankasviði. Hlutverk sviðsins er að starfrækja áhættumiðað eft-
irlit með starfsemi fjármálafyrirtækja. Eftirlitið felur m.a. í sér reglubundna vöktun á starfsemi fyrirtækjanna á grundvelli
gagnaskila, mat á áhættu og áhættustýringu.
Starfið snýr bæði að heildarsýn á tölvukerfi eftirlitsskyldra aðila, vegna mikilvægis þeirra fyrir fjármálakerfið og virku
eftirliti með UT- og netöryggisatvikum. Samskipti við innlenda banka eru stór hluti af starfinu. Mörg tækifæri gefast til
þekkingaruppbyggingar og þróunar í gegnum samstarf við önnur svið bankans, aðra seðlabanka og erlendar eftirlits-
stofnanir.
Sérfræðingur í
upplýsingatækniáhættu
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Eftirlit með umgjörð og áhættu í rekstri
upplýsingatæknikerfa og netöryggi eftirlits-
skyldra aðila
• Þróun á aðferðafræði Seðlabankans við mat
á upplýsingatækniáhættu og gerð tilmæla
• Framkvæmd og yfirferð á áhættumati
• Yfirsýn yfir þróun upplýsingatækni á fjármála-
markaði og nýrri fjártækni
• Þátttaka í vettvangsathugunum sem tengjast
upplýsingatækni
• Samskipti við eftirlitsskylda aðila og aðra
hagsmunaaðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðeigandi háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af fjármálamarkaði og/eða rekstri tölvukerfa og
netöryggi
• Þekking á rekstraráhættu eða á uppbyggingu tölvukerfa
• Reynsla af eftirliti er kostur, sérstaklega á fjármálamarkaði
• Vottun sem tölvuendurskoðandi (t.d. CISA próf) er kostur
• Greiningarhæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna
með öðrum
• Frumkvæði, öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfstæði og
metnaður í starfi
• Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á
íslensku og ensku
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af
öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda
í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því
að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins nr. 70/1996.
2022 - 2025
6 ATVINNUBLAÐIÐ 26. nóvember 2022 LAUGARDAGUR