Fréttablaðið - 26.11.2022, Síða 117
„Engin bók í þessu jólabókaflóði
hefur komið mér jafnmikið á óvart.
Ég var algjörlega heilluð.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
„Mjög áleitin bók … Rosalega
fjörugt persónugallerí.“
Egill Helgason / Kiljan
Innbundin Rafbók
„Tugthúsið er sérlega vel upp byggð saga, frásagnar-
stíllinn þjáll og grípandi og persónusköpun góð.“
Páll Egill Winkel / Morgunblaðið
Áhrifamikil skáldsaga eftir
Hauk Má Helgason sem varpar
nýju ljósi á lífið í Reykjavík
á seinni hluta átjándu aldar.
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið virka daga 10–18 | Laugardaga 11–17 | Sunnudaga 12–16 | www.forlagid.is
Bækur
Eden
Auður Ava Ólafsdóttir
Fjöldi síðna: 226
Útgefandi: Benedikt
Kristján Jóhann Jónsson
Skáldsagan Eden er sögð í fyrstu
persónu. Kannski má kalla hana
varnarrit því sögukonan útskýrir
ákvarðanir sínar fyrir sér og öðrum
en þegir um ýmislegt sem kemur þó
fram smám saman. Sagan er þannig
um sumt eins og eintal sálarinnar.
Sögukonan fer í gegnum það sem
hún sér, heyrir og gerir en ef til vill
er hún líka viðtakandi og túlkandi
sögunnar. Merking orðanna er stöð-
ugt umhugsunar- og viðfangsefni í
bókinni.
Forboðnar ástir
Sögumaðurinn og aðalpersónan,
Alba Jakobsdóttir, er málvísinda-
kona. Hún og samstarfsmenn
hennar eru því uppteknari af
tungumálum þeim mun fjarlægari
og smærri sem þau eru og líklegri
til þess að hverfa og deyja. Oftlega
koma henni líka í hug framandleg
orð og hana dreymir jafnvel einstök
orð. Hún situr í góðri háskólastöðu
og hefur sótt um aðra sem hentar
betur hennar sérhæfingu. Þar er
hins vegar kominn sandur í vélina.
Hún hefur komið of nálægt náms-
sveini, sem reyndar hefur elt hana
á röndum að því er virðist, og það
mál er dregið fram þegar hún sækir
um stöðuna. Annar háskólakennari
hefur líka komið of nálægt náms-
sveini en þeir eru báðir karlkyns og
dæmendur horfa á það með blinda
auganu, enda giftast þeir. Engin
alvara er í sambandi kennslukon-
unnar og námssveinsins, ekki af
hennar hálfu að minnsta kosti. „Það
dregst bara einn líkami að öðrum
eins og gengur.“ Drengurinn semur
harmræna ljóðabók um ástamálin
og auglýsir þau eins og mest hann
má. Mamma hans sér þar að auki
mynd sem hann hefur tekið af sér
og kennaranum í rúminu og sett á
netið og þá er fjandinn laus.
Skapar sér nýtt líf
Um þetta leyti kaupir sögukonan
sér hrjóstrugan landskika, kynn-
ist kostulegu og slúðrandi þorpi og
vinnur að því að skapa sér nýtt líf
með því að planta birki og hlaða
skjólgarða úr grjóti. Hún byrjar upp
á nýtt, inn í líf hennar kemur óum-
beðinn fóstursonur, ný viðfangsefni
fylla daga hennar. Samband hennar
Ræktaðu garðinn þinn
Auður Ava
Ólafsdóttir,
rithöfundur.
Fréttablaðið/
Valli
við föður sinn rennur áreynslulaust
inn í þessa nýju veröld og þó að syrt
hafi í álinn um sinn er lengi hægt að
snúa lífi sínu til betri vegar ef sið-
ferðisgildi eru höfð í heiðri og ekki
einfölduð úr hófi fram.
Þessi bók er launfyndin og
„útundir sig“ eins og sumir myndu
segja og það orðalag hefði senni-
lega glatt málvísindakonuna Ölbu
Jakobsdóttur en víða í bókinni eru
fyndnar og frumlegar vangaveltur
um tungumálið. Bókin er líka háðsk
og beitt á köflum. Eins og stundum
áður hjá Auði fjallar þessi bók þegar
upp er staðið um gildi góðleikans og
valdeflinguna sem því fylgir að gefa
öðrum af því góða sem maður á og í
manni býr. n
NiðurstAðA: Skemmtileg og vel
skrifuð skáldsaga um vandann að
vera manneskja og leita að tilgangi
í lífi sínu. Bókin á sérstakt erindi til
þeirra sem gaman hafa af tungu-
málinu.
Eins og stundum áður
hjá Auði fjallar þessi
bók þegar upp er
staðið um gildi góð-
leikans og valdefling-
una.
LAUGARDAGUR 26. nóvember 2022 Menning 73FRéttablaðið