Borgfirðingabók - 01.12.2004, Síða 43
Borgfirdingabók 2004
41
árum, og enn eru engin merki um að þeim fjölgi á ný. Helst er
talið að breytingar á beitarsvæðum stórlaxa við Grænlandi geti
skýrt þessa niðursveiflu. Stórlaxahluti göngunnar er mikilvæg-
ur fýrir hrygninguna í ánum því stórlaxahrygna er ígildi tveg-
gja smálaxahrygna, auk þess sem laxveiðimenn sækjast eftir
viðureignum við stærri fiska. A meðan þetta ástand ríkir er
mælt með því að veiðimenn sleppi stórlöxunum lifandi í árnar
til að varðveita stórlaxaerfðirnar í laxastofnunum.
Veiðisumarið 2003 var um margt sérstakt, en sennilega á það
við um flest veiðiár, enda náttúran síbreytileg. Á vatnasvæði
Laxár í Leirársveit varð góð veiði er upp var staðið og hún um-
fram meðallag. Fyrri hluti tímabilsins var þó mjög erfiður sök-
um mikilla þurrka, og laxinn dreifði sér því illa. Góðar smá-
laxagöngur komu í ána og haustveiðin var mjög góð. Á sext-
ánda hundrað laxa gengu um fiskveginn í Eyrarfossi, en rnikið
af þessum laxi gengur inn í vötnin í Svínadal og veiöist tak-
markað þótt nokkur veiði sé í Selós og Þverá.
Góð stangaveiði varð í Hvítá. I henni gefur lax einkum færi
á sér við ármót bergvatnsánna, í Skugga (ármót Grímsár), í
Svarthöfða (ármót Reykjadalsár og Flóku), í Straumunum (ár-
mót Norðurár) og í Brennunni (ármót Þverár). Þegar lítið
vatn er í ánum, eins og gerðist 2003, stöðvast laxinn í ármótun-
um meira og gefur betri færi á sér en ella, og voru 861 lax
veiddir alls á þessum svæðum. Einnig hefur veiði á stöng auk-
ist á efri hluta Hvítár.
Andakílsá gaf mikla veiði árið 2003. Þar voru veiddir 245 lax-
ar sem er nálega tvöföld meðalveiði. Einnig er góð sjóbleikju-
veiði í ánni.
I Grímsá og Tunguá veiddust 1156 laxar sem er aðeins und-
ir meðalveiði árinnar. Nú er eingöngu leyfð fluguveiði í
Grímsá, og gæti það haft áhrif á veiðitölurnar. Eins og víða
annars staðar var veiðin treg framan af en haustveiðin var góð.
í Flókadalsá komu 334 laxar á land sem er nálega meðalveiði
árinnar. Flóka hefur verið mjög gjöful á laxa, enda áin frjósöm
að uppruna. Árangur fiskvegagerðar í Stekkjarfossi og Lamba-
fossi er einnig farin að skila árangri, en lax er nú farinn að
nema land á nýjum búsvæðum sem auka framleiðsluna og veið-
ina er fram líða stundir.
Reykjadalsáin kom skemmtilega á óvart 2003. Þar veiddust