Borgfirðingabók - 01.12.2004, Side 136
134
Borgfirdingabók 2004
nesinga - ekið eftir troðningum dágóða leið og að lokum - öll-
um að óvörum - birtist mikill og þéttur skógarreitur.
Um hann var gengið upp og niður, út og suður og staðfest
var að rík þörf væri á frekari aðstöðu og umtalsverðri grisjun á
gróðri - en öll voru sammála um að svæðið byði upp á margvís-
lega möguleika til útivistar.
Næstu vikur unnu nemendur að hugmyndasmíðum sínum,
fóru aftur í skoðunarferðir um svæðið - upplifðu sannkallað
vetrarveður, snjó og frost, slagveður og blíðu.
Þar kom að því að skiladagur á verkefni rann upp - verkefn-
in voru hengd upp á veggi skólans og nemendur kynntu hug-
myndir sínar íyrir gestum sem boðið hafði verið, m.a. Páli bæj-
arsþóra, Magnúsi B. Jónssyni rektor LBH ásamt fjöldamörgum
öðrum sem áhuga höfðu á málinu.
Það sem kom líklega flestum á óvart og ef til vill nemendum
sjálfum, var að þarna litu 9 ólíkar hugmyndir dagsins ljós - afar
áhugaverðar, hver annarri betri, en sameiginlegt öllum var
mikið og frjótt ímyndunarafl.
í stuttu máli voru hugmyndirnar eftirfarandi:
Ein hugmynda lagði áherslu á markvissari og meiri skógrækt
(Félagslundi) ásamt áherslu á að skilgreina svæðið sem sér-
hannað fyrir hreyfihamlaða, og voru ýmsum svæðum gefnar
einkunnir fyrir hvernig aðgengi væri að þeim: 1. einkunn, 2.
einkunn, 3. einkunn. Gert var ráð fyrir þremur gerðum göngu-
stíga, malbikuðum, með kurli og með möl. Félagslundir skyldu
vera og reiðvegur færður norður fyrir tjörnina
I annarri hugmynd var unnið með mjög sterka skírskotun til
Egils sögu og gerð góð grein fyrir hvernig tengja mætti svæðið
sögusviðinu og Borg - göngutenging.
(Deilur Þorsteins Egilssonar við nágranna sinn Steinar Ön-
undarson á Anabrekku)
í þeirri tillögu var auk þess lögð áhersla á eftirfarandi atriði:
Ný aðkoma, framhjá Borg. Reiðleiðir yrðu aðskildar frá öðr-
um vegum.Tjaldstæði yrðu við nýja aðkomu. Votlendu svæði
austan reiðvegar yrði haldið óbreyttu. Greniskógur aukinn við
nyrstu borgina. Birkiskógur yrði umhverfis tjaldsvæðið. Lands-
mót skáta yrði haldið þarna árið 2007. Skátar yrðu með útivist-
arskóla.