Morgunblaðið - 24.09.2022, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. SEPTEMBER 2022
Stein Ingólf
Henriksen (Brói)
✝
Stein Ingólf
Henriksen
(Brói) fæddist
10. janúar 1942.
Hann lést 5.
september
2022.
Útför Bróa
fór fram 15. september 2022.
Meira á: www.mbl.is/andlat
Minningar á mbl.is
Elsku amma. Að-
faranótt dagsins
sem þú kvaddir
þetta jarðlíf gat ég ekki sofið. Ég
hugsaði um þig alla nóttina og
var viss um að nú kæmi símtalið.
Fréttirnar af andlátinu bárust
seint kvöldið eftir. Ég sá hins
vegar ekki skilaboðin þá, því ég
hafði farið snemma í háttinn enda
haldin svefnleysi. Þessa næstu
nótt svaf ég þó eins og engill, og
þegar ég vaknaði og sá hvað hefði
komið fyrir þarna um kvöldið
mátti ég vita það. Það var kominn
tími til að þú fengir þína lang-
þráðu hvíld. Hvíld var það sem þú
þráðir því í gegnum lífið var alltaf
eitthvert fífl í kringum þig, eins
og þú orðaðir það þegar við skoð-
uðum spilin. Amma, ég er svo
þakklát fyrir þennan tíma sem ég
fékk til þess að kveðja þig. Dauð-
inn gerir ekki boð á undan sér en
það dýrmætasta sem nokkur
maður getur gefið öðrum er tími,
og hann áttir þú alltaf fyrir okk-
ur. Ég á svo margar góðar minn-
ingar frá okkar samveru og er
svo þakklát fyrir það hvernig þið
afi studduð mig í einu og öllu. Þið
reynduð alltaf að brúa bilið, ef
eitthvað vantaði upp á. Þið borg-
Sæunn Axelsdóttir
✝
Sæunn Hall-
dóra Axels-
dóttir fæddist 25.
febrúar 1942. Hún
lést 12. september
2022.
Útför Sæunnar
fór fram 19. sept-
ember 2022.
uðuð fyrir mig
heimavistina svo ég
kæmist í Mennta-
skólann á Akureyri
og ferðir til útlanda
svo ég gæti fylgt
skíðunum eftir.
Ég sakna þess að
geta ekki sest inn
með þér og drukkið
kaffi. Það var svo
gott að tala við þig,
þú varst svo ráða-
góð. Ég skildi heldur ekki hvern-
ig þú gast haldið tölu yfir alla
strákana sem ég sagði þér að ég
væri skotin í. Þú sagðir að þú að
þú hefðir líka verið ung og við
hlógum og hlógum. Samband
okkar á köflum var þetta haltur
leiðir blindan því þegar ég fékk
skjaldkirtilskrabbameinið þá
varst þú að greinast með park-
inson og við hjúkruðum hvor ann-
arri og héldum jólin saman, bara
við tvær. Ég lýk þessu á broti úr
ljóði sem Ísól frænka þín skrifaði
til pabba og mér finnst svo fal-
legt, en það er svona:
Margar geymdar myndir á
misjafnar þó að telja.
En ef ég andans augum frá
úr þeim mætti velja
Mundi ég þær sýnir sjá
er sætt mér ylja kynni.
Og þær margar yrðu frá
okkar samverunni.
Þín Gulla litla,
Gunnlaug Helga
Ásgeirsdóttir.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Okkar ástkæri
REYNIR ÁSTÞÓRSSON,
Bleikjukvísl 20, Reykjavík,
lést á öldrunardeild Landspítalans á
Vífilsstöðum föstudaginn 16. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þökkum starfsfólki öldrunardeildar fyrir hlýhug
og umhyggju.
Páll Reynisson Ragnheiður Sif Ragnarsdóttir
Reynir Pálsson
Elskuleg móðir, amma, systir og mágkona,
SIGURBORG ÞÓRARINSDÓTTIR,
lést í Brákarhlíð Borgarnesi 9. september.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Þórarinn Jóhannesson
Jakob Fannar Möller
og fjölskyldur
Elsku hjartans móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
GUÐNÝ SVAVA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Strandbergi,
myndlistarkona,
til heimilis í Reykjavík,
lést í svefni á Vífilsstöðum snemma
morguns 19. september. Útför hennar fer fram í
Fossvogskapellu fimmtudaginn 29. september klukkan 15.
Guðjón Bragi Benediktsson Clarivelle Rosento
Rafn Benediktsson
Erla Ósk Benediktsdóttir Garðar Gylfason Malmquist
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SAMÚEL EINARSSON,
tónlistarmaður og rakari frá Ísafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
þriðjudaginn 20. september, eftir
skammvinn veikindi. Útför hans fer fram frá Ísafjarðarkirkju
laugardaginn 1. október klukkan 14.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk krabbameinsdeildar Landspítala
og Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða fyrir einstaka umönnun og
kærleik.
Guðríður Sigurðardóttir
Sigurður Samúelsson Guðný Jóna Þórsdóttir
Elísabet Samúelsdóttir Atli Freyr Rúnarsson
og barnabörn
Elskuleg systir okkar og mágkona,
SIGURBJÖRG ÁRDÍS LÁRUSDÓTTIR,
til heimilis að Fellsenda,
Dalasýslu,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Akranesi föstudaginn 16. september.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
mánudaginn 26. september klukkan 13.
Ísabella Lárusdóttir Lárus Stefán Ingibergsson
Elínborg Lárusdóttir Birgir Snæfeld Björnsson
Rannveig Lárusdóttir Guðmundur E. Björnsson
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar ástkærs
eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
GRÉTARS SAMÚELSSONAR
húsasmíðameistara.
Sérstakar þakkir fá félagar í Karlakórnum
Fóstbræðrum fyrir fallegan söng við útförina og starfsfólk
Heru líknarheimaþjónustu Landspítalans fyrir alla aðstoð
og aðhlynningu.
Þóra Þórisdóttir
Ólafía Svandís Grétarsdóttir Sigmar Knútsson
Vilhjálmur Þór Grétarsson
Grétar Þór Grétarsson Íris Jensen
og barnabörn
Ástkær unnusti minn, sonur, bróðir
og vinur,
ÓLAFUR JÓN ÓLAFSSON,
lést 15. september.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni
fimmtudaginn 29. september klukkan 13.
Gyða Björg Þórsdóttir
Ólína Sigþóra Björnsdóttir
Elín, Jakob, Ólöf Kristín, Björn Sigþór,
Ómar Ari og Justin Leifur
Elskulegur frændi okkar og vinur,
ÞORKELL K. JÓNSSON,
Litla-Botni,
Hvalfirði,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
21. september. Útför hans fer fram frá
Akraneskirkju mánudaginn 10. október klukkan 13.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Kristín Sigurbjörg Pétursdóttir
Kristjana Björg Sveinsdóttir
Petra Steinunn Sveinsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
SVANHILDUR EYJÓLFSDÓTTIR,
Sléttuvegi 29,
lést á Landakoti 13. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Magnús Kristinsson
Kristinn P. Magnússon Eva Charlotte Halapi
Guðný Magnúsdóttir Einar Örn Jónsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÍÐUR TH. ERLENDSDÓTTIR
sagnfræðingur,
sem lést laugardaginn 17. september,
verður jarðsungin fimmtudaginn
29. september frá Fríkirkjunni í Reykjavík.
Útförin hefst klukkan 15.
Ragnhildur Hjaltadóttir
Kristján Hjaltason Rannveig Einarsdóttir
Erlendur Hjaltason Aðalheiður Valgeirsdóttir
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir Guðmundur Magnússon
og fjölskyldur
Elsku pabbi okkar, afi og langafi,
JÓN ÁGÚST ÓLAFSSON,
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
lést á Landspítalanum Fossvogi
20. september.
Útförin fer fram frá Seltjarnarneskirkju
fimmtudaginn 29. september klukkan 11.
Arnar Jónsson
Ellen Jónsdóttir
Snædís, Björn, Kata
Eggert, Jón, Inga, Katrín
Friðgeir, Erna
Egill, Anna, Óli
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
MARGRÉT JÓHANNSDÓTTIR,
lést á Heilbrigiðisstofnun Vesturlands á
Akranesi 17. september.
Útför hennar fer fram frá Staðarhólskirkju
þriðjudaginn 27. september klukkan 14.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat.
Þorgeir Ólafsson
Jóhann Þorgeirsson Beatriz Rosario
Steingrímur Þorgeirsson Sigrún Anna Ólafsdóttir
og barnabörn