Fréttablaðið - 21.01.2023, Page 23
Starf bókara í matvælaráðuneyti
Í matvælaráðuneytinu er laust til umsóknar starf bókara á skrif-
stofu fjármála. Starfið lýtur að færslu bókhalds, afstemmingu og
skýrslugerð ásamt ýmiskonar úrvinnslu úr bókhaldi.
Undir skrifstofuna heyra mál sem lúta að rekstri ráðuneytisins,
mannauðsmálum, skjalavistun og miðlun upplýsinga auk þess
sem skrifstofan veitir fagskrifstofum ráðuneytisins stoðþjónustu.
Þá fer skrifstofan með skiptingu á fjárhagsramma ráðuneytisins
og annast framkvæmd og eftirfylgni fjárlaga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Bókari hefur umsjón með bókhaldi matvælaráðuneytisins, en
ráðuneytið notar Oracle viðskiptahugbúnað. Helstu verkefni eru
merking og skráning reikninga sem og uppgjör og afstemming
ýmis konar tengd bókhaldi. Þá sér bókari um móttöku og úrvinnslu
reikninga sem berast rafrænt. Ennfremur hefur bókari samskipti
við aðrar stofnanir og viðskiptavini varðandi bókhald og sinnir
ýmsum verkefnum sem upp koma í daglegum rekstri.
Hæfniskröfur
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla og þekking af færslu bókhalds
og afstemmingu nauðsynleg.
• Góð kunnátta í töflureikni og færni í helstu notenda-
forritum nauðsynleg.
• Reynsla eða þekking á fjárhagskerfi ríkisins er kostur.
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð ásamt hæfileika
og getu til að vinna hratt og vel undir álagi.
Stjórnarráð Íslands
Matvælaráðuneytið
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi.
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efna-
hagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Starfsmenn ráðuneytisins starfa skv. kjarasamningum félags
starfsmanna Stjórnarráðsins og Félags háskólamenntaðra starfs-
manna Stjórnarráðsins eftir því sem við á.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir
hæfniskröfur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna
um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum nr. 464/1996
sem settar eru samkvæmt heimild í 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996
um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja
um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%. Sótt er um starfið á starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2023.
Nánari upplýsingar veitir
Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri — benedikt.arnason@mar.is
RÁÐNINGARRÁÐGJÖF RANNSÓKNIR
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára