Fréttablaðið - 21.01.2023, Side 28

Fréttablaðið - 21.01.2023, Side 28
Við leitum að liðsauka í öflugt teymi starfsfólks okkar á Þjórsár- og Tungnaársvæði, þar sem við rekum 7 vatnsaflsstöðvar og tvær vindmyllur. Í starfinu felst viðhald, eftirlit og rekstur aflstöðva og veitumannvirkja. Fjölbreytt og krefjandi starf við ástandsmælingar og greiningar á rafbúnaði. Hæfni og þekking: – Menntun á rafmagnssviði – Þekking á viðhaldi búnaðar; raf- véla- og vökvakerfa – Þekking á loftkerfum, teikningalestri og stjórnkerfum er kostur – Lipurð í mannlegum samskiptum og samstarfi – Góð tölvukunnátta Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar landsvirkjun.is/laus-storf Starf Skelltu þér í rekstur og viðhald með okkur! Hlutverk Fjarskiptastofu er að stuðla að netöryggi ásamt hagkvæmri, öruggri og að- gengilegri fjarskiptaþjónustu og efla virka samkeppni á markaði. Hjá Fjarskiptastofu starfa um 40 manns, aðallega sérfræðingar við úrlausn verkefna á sviði netöryggis, tæknimála, viðskipta og laga sem tengjast hlutverki stofnunarinnar. Verkefnastjóri á innviðasvið Fjarskiptastofu Fjarskiptastofa óskar eftir að ráða í stöðu verkefnastjóra fjarskiptainnviðasviðs. Verkefnastjóri innviðasviðs hefur það hlutverk að stýra stærri verkefnum sviðsins og er um leið faglegur leiðtogi verkefnahópsins. Innviðasvið Fjarskiptastofu ber ábyrgð á kortlagningu og greiningum á núverandi og fyrirhuguðum innviðum fjarskipta ásamt tengdum innviðum og stuðlar að uppbyggingu innviða í samstarfi við stjórnvöld og markaðsaðila. Innviðasvið stýrir skipulagi auðlinda fjarskipta (tíðna og númera) og úthlutar heimildum fyrir þær auðlindir. Einnig viðhefur sviðið eftirlit með ljósvakanum sem felur í sér mælingar, viðbragð og úrvinnslu truflana. Verkefnastjóri stýrir verkefnum sem snúa að hlutverki sviðsins, þróun á starfsemi sviðsins og nýsköpun á fagsviðinu, hvort sem er innan Fjarskiptastofu eða með samstarfsaðilum. Meðal mikilvægra verkefna er aðkoma að því að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, þróun þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu ásamt því að vinna að því að móta samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði um uppbyggingu fjarskiptainnviða. Helstu verkefni og ábyrgð: • Taka virkan þátt í að efla starfsemi innviðasviðs varðandi fjarskiptanet, kortlagningu þeirra, öryggi, áfallaþol og uppbyggingu • Koma að því að móta samstarf og samvinnu á fjarskiptamarkaði • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi um uppbyggingu fjarskiptainnviða • Ráðgjöf og upplýsingagjöf varðandi fjarskiptanet og uppbyggingu þeirra • Vinna náið með sviðsstjóra að því að innviðasvið framfylgi markmiðum og stefnu varðandi þróun fjarskiptaneta landsins Hæfnikröfur • Háskólanám sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verk-, tækni- eða tölvunarfræði • Brennandi áhugi á fjarskiptatækni, nýsköpun og tækniþróun • Reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla af vinnu tengdum fjarskiptanetum • Þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku, og búa yfir ríkulegri samskiptafærni meðal annars að geta miðlað tæknilegum upplýsingum. • Samstarfshæfni, jákvætt viðhorf og eiga auðvelt með að vinna í hóp. • Hæfni til ákvarðanatöku við flóknar og krefjandi aðstæður Frekari upplýsingar um starfið: Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Fjarskiptastofa leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið. Krafist verður sakavottorðs. Við ráðningu þarf að gangast undir og standast bakgrunnsskoðun og öryggisvottun Ríkislögreglustjóra. Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2023. Fjarskiptastofa lítur svo á að umsókn gildi í 6 mánuði frá dagsetningu hennar, nema umsækjandi ákveði umsókninni skemmri gildistíma. Sótt er um starfið á www.starfatorg.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorleifur Jónasson, sviðsstjóri, thorleifur@fjarskiptastofa.is 6 ATVINNUBLAÐIÐ 21. janúar 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.