Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 27
Ævintýri á
hálendi Íslands
Highland Base Kerlingarfjöll er hluti af Bláa Lóns fjölskyldunni
Nýr kafli hefst í íslenskri ferðaþjónustu þann 1. júlí þegar
ný og stórbætt aðstaða opnar í Kerlingarfjöllum. Fjölbreytt
gisting, framúrskarandi veitingaþjónusta, baðupplifun og
ótal möguleikar til afþreyingar og útivistar allt árið um kring.
Við leitum að sterkum leiðtoga og starfsfólki í Kerlingarfjöll
Rekstrar- og þjónustustjóri
Viðkomandi er ábyrgðaraðili rekstursins í Kerlingarfjöllum. Rekstrar-
og þjónustustjóri fer fyrir starfsfólki staðarins, ber ábyrgð á þjónustu
og upplifun gesta og verður hluti af lykilteymi Kerlingarfjalla.
Umsóknarfrestur er til og með 18. febrúar. Viðkomandi þarf að geta
hafið störf sem fyrst.
Starfsfólk í sumarstörf og til lengri tíma
Við leitum að jákvæðu og metnaðarfullu starfsfólki til að taka að sér
fjölbreytt störf á nýjum og spennandi vinnustað í einstöku umhverfi
íslenskrar náttúru. Umsóknarfrestur er til og með 31. mars.
Viðkomandi þurfa að geta hafið störf 1. júní nk.
Skannaðu QR kóðann
fyrir nánari upplýsingar
um störf.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára