Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 28
Tæknimaður í tæknideild
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 6. febrúar 2023. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar
fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Uppsetning á tæknibúnaði
• Uppfærslur og uppsetning á tölvubúnaði
• Lagna- og tengivinna
• Bilanaleit og viðgerðir á raf- og hugbúnaði
• Tæknileg ráðgjöf um val á búnaði fyrir viðskiptavini
Helstu verkefni og ábyrgð:
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Iðnmenntun sem nýtist í starfi
• Samskiptahæfni og þjónustulund
• Aðlögunarhæfni, sveigjanleiki og jákvæðni
• Íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Við bjóðum upp á góðan vinnustað og virkt
starfsmannafélag með reglulegar
starfsmannaferðir. Góður vinnuandi er hjá
okkur og fær starfsfólk frelsi til að taka þátt í
að móta starf sitt.
Vinnuumhverfi og fríðindi sem við bjóðum upp
á eru bifreið til afnota, farsími og fartölva
ásamt vinnufatnaði.
Friðrik A. Jónsson ehf. óskar eftir að ráða til sín iðnmenntaðan einstakling í spennandi starf tæknimanns í
tæknideild. Starfið felst í uppsetningum, viðgerðum og almennu viðhaldi á raftækja- og tæknibúnaði.
kopavogur.is
Spennandi tækifæri fyrir
metnaðarfullan leiðtoga
Leikskólastjóri í leikskólanum Austurkór
Leikskólinn Austurkór er sex deilda leikskóli í Kórahverfinu í Kópavogi. Skólastarfið einkennist af
flæðandi dagskipulagi, námslotum byggðum á gildum skólans, lýðræðislegum starfsaðferðum og
útinámi. Starfshópurinn hefur byggt upp metnaðarfullt starf í fallegum skóla sem einkennist af notalegu
vinnuumhverfi og mikilli liðsheild.
Kópavogsbær er barnvænt samfélag sem er í stöðugri þróun og staða leikskólastjóra við Austurkór er
tækifæri fyrir áhugasaman leikskólastjóra með framsæknar hugmyndir og faglegt frumkvæði til að þróa
áfram metnaðarfullt starf með börnum og öflugum starfsmannahóp.
Leitað er að stjórnanda sem hefur góða hæfni í mannlegum samskiptum, er skipulagður og umbótadrifinn
og hefur metnað til að ná árangri í starfi. Viðkomandi þarf að vera leiðtogi í sínum skóla, veita faglega
forystu og búa yfir hæfni og frumkvæði til að skipuleggja skapandi leikskólastarf í samvinnu við
starfsmenn, forráðafólk og menntasvið.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
· Reynsla af starfi og stjórnun í leikskóla
· Framhaldsmenntun (Diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða
· Forystuhæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum
· Fagleg forysta, sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og metnaður til að ná árangri í starfi
· Reynsla af rekstri leikskóla og gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana æskileg
· Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig bæði í ræðu og riti
Umsóknarfrestur er til og með 13. febrúar 2023. Ráðið verður í stöðuna eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfið má finna á ráðningarvef Kópavogsbæjar https://kopavogur.alfred.is/
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt í gegnum ráðningarkerfið Alfreð.
Erum við
að leita
að þér?