Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 49
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Þótt reglur Go séu einfaldar er mikil dýpt í spilinu. Fréttablaðið/Getty
Hægt verður að kynnast æva-
forna leiknum Go á Japanshátíð-
inni í dag.
arnartomas@frettabladid.is
Meðal viðburða á hinni árlegu Japans-
hátíð sem hefst í dag verður pallborð
tileinkað borðspilinu Go. Þótt stundum
sé litið á spilið sem asíska hliðstæðu við
skák þá teygir saga Go sig mun lengra
aftur.
„Það er orðið þó nokkuð langt síðan
ég byrjaði að spila, kannski fimmtán
ár eða svo,“ segir Hallbjörn Þór Guð-
mundsson Go-áhugamaður. „Ég hafði
verið að leita að nýju spili og fann
þetta á netinu. Það sem heillaði mig
við spilið er hvað það er spilað á stóru
borði og það er auðvelt að sjá hvað er
í gangi þótt þú sjáir ekki hvaða leikur
var leikinn seinast. Svo er leikurinn líka
lítið þekktur utan Asíu og það er alltaf
gaman að gera eitthvað sem aðrir eru
ekki að gera.“
Spilað fyrir sjóguninn
Samkvæmt fornsögum hefur Go verið
spilað í þúsundir ára. Sumar sögur segja
að kínverskur keisari hafi hannað spilið
fyrir son sinn til að kenna honum aga
og einbeitingu en aðrir að hershöfð-
ingjar hafi notað steinana til þess að
undirbúa bardaga.
„Go hefur lengi verið spilað á alvar-
legum nótum, þetta er ekki bara ein-
hver leikur sem er gripið í á börum eða
þess háttar,“ útskýrir Hallbjörn. „Fólk
hefur keppt í Go í hundruð ára, sérstak-
lega í Japan þar sem Go var ríkisstyrkt á
17. öld. Þar voru meistarar sem spiluðu
fyrir framan sjóguninn sem borgaði
stórar upphæðir fyrir þetta.“
Að spila Go hefur sem sagt verið
stundað mjög lengi í Asíu þótt saga
spilsins sé ekki jafnlöng í Evrópu.
„Ef þú talar við fólk frá Japan og Kína
um skák þá heldur það oft að þú sért að
tala um Go,“ segir Hallbjörn.
Sómi Íslands, sverð Go skjöldur
Á Íslandi er leikurinn stundaður af
Íslenska Go félaginu
„Þetta er ekkert rosalega stór hópur
en við erum að hittast á sunnudögum
á kaffihúsinu hjá Spilavinum,“ segir
Hallbjörn. „Við erum kannski svona tólf
manns sem erum að detta inn við og við
og reynum að opna á áhugamálið fyrir
fólki sem vill kynnast því.“
Þá ver félagið einnig heiður Íslands á
alþjóðlegum vettvangi.
„Við erum með landslið í evrópska
liðamótinu sem fer fram á netinu og fer
fram einu sinni í mánuði,“ segir Hall-
björn. „Þótt við myndum gjarnan vilja
þá höfum ekki haldið mikið af mótum,
það þyrfti kannski aðeins f leiri með.
Við höfum samt verið með mót á netinu
þar sem við erum aðeins formlegri og
pössum upp á tímann og svona.“
Hallbjörn hvetur fólk sem hefur
áhuga á Go til að kíkja við á pallborðið
sem hefst klukkan 15 í Veröld – Húsi
Vigdísar í dag eða að kíkja við á Spila-
kaffihúsinu á sunnudögum. n
Ævaforn en sígildur leikur
Fólk hefur keppt í Go í
hundruð ára.
Þjóðarleikvangur Frakklands, Stade
de France, var byggður í aðdraganda
heimsmeistaramótsins í knattspyrnu
sem Frakkar héldu 1998. Völlurinn var
formlega vígður þann 28. janúar 1998
með fótboltaleik milli Frakklands og
Spánar.
Alls mættu yfir 78 þúsund áhorf-
endur á leikinn, þar á meðal þá-
verandi Frakklandsforseti Jacques
Chirac, til að sjá heimamenn vinna
leikinn 1–0 þökk sé marki frá goð-
sögninni Zinedine Zidane. Frakkar
áttu svo eftir að fagna sigri lands-
liðsins á vellinum sumarið eftir þegar
Frakkland lagði Brasilíu 3–0. Það var
fyrsti sigur Frakklands á Heimsmeist-
aramótinu og var Zidane auðvitað
maður leiksins eftir að hafa skorað
tvö mörk.
Stade de France rúmar hátt í 81
þúsund áhorfendur og hefur verið
notaður fyrir bæði landslið Frakk-
lands í fótbolta og í rúgbí, en heims-
meistaramótið í rúgbí fer einmitt
fram í Frakklandi á þessu ári. Þá mun
stór hluti Sumarólympíuleikanna
2024 fara þar fram. n
Stade de France opnaður
Íslenska liðið á Stade de France á EM 2016.
Þetta gerðist | | 28. janúar 1998
FréTTablaðið tímamót 2728. janúar 2023
LaUGaRDaGUR
Ástkær sambýlismaður minn, sonur,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Karl Diðrik Björnsson
lést 21. desember.
Útför hans fer fram frá Garðakirkju
fimmtudaginn 2. febrúar kl. 13.
Margrét Þór
Ólafur Helgi Grímsson
Karl Thode Karlsson Kristín Arna Ingólfsdóttir
Kristján Karl Karlsson Liwen Huang
Hinrik Karlsson
Anna Margrét Th. Karlsdóttir Marvin Harrý Guðmundsson
og barnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sigurlaug Kjartansdóttir
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli,
14. janúar sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þorbjörn Datzko
Svanhvít Freyja Þorbjörnsdóttir Magnús Jónsson
Hrefna Kristín Þorbjörnsdóttir Valgeir Elíasson
Kata White Þorbjörnsdóttir Ólafur Ragnar
Benediktsson
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður og afa,
Egils Harðarsonar
vélaverkfræðings.
Axel Viðar Egilsson Katherine Anne Brenner
Ísabella Kæja Axelsdóttir
Pétur Már Egilsson Guðrún Helga Guðmundsdóttir
Ingólfur Ari Pétursson
Gréta Sól Pétursdóttir
Heiða Ósk Pétursdóttir
Elskulegur eiginmaður minn, pabbi,
tengdapabbi, afi og langafi okkar,
Einar Ómar Eyjólfsson
hárskerameistari,
Neðstaleiti 6,
lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
að morgni 26. janúar sl.
Við fjölskyldan þökkum innilega frábæra umönnun og
hlýhug starfsfólks Sóltúns. Útför verður auglýst síðar.
Bergþóra Lövdahl
Guðrún Einarsdóttir Strömberg Urban Strömberg
Gunnhildur Einarsdóttir Örn Sveinsson
Jóhanna Einarsdóttir Reynir Elís Þorvaldsson
afabörn og langafabörn
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Einar Viðar Júlíusson
Njarðarvöllum 2,
Reykjanesbæ,
áður til heimilis að
Sunnubraut 19, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum, laugardaginn 21. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, fimmtudaginn
2. febrúar klukkan 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Hrafnistu á Nesvöllum fyrir hlýja og góða umönnun.
Vilborg Einarsdóttir Þórólfur Beck
Halldóra Einarsdóttir
María Ragna Einarsdóttir Daníel H. Fjeldsted
Ólöf Hafdís Einarsdóttir Rafn Vilhjálmsson
og barnabörn
Elsku hjartans eiginmaður minn,
faðir okkar og tengdafaðir,
Gunnar Ingi Ragnarsson
verkfræðingur,
áður til heimilis að Þverá,
Laufásvegi 36,
andaðist á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Sléttuveg
þann 24. janúar. Útför fer fram í Iðnó föstudaginn
3. febrúar kl. 14.
Valdís Bjarnadóttir
Orri Gunnarsson
Tinna Gunnarsdóttir Michel van Tol
Nanna Gunnarsdóttir Owen Hindley
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
okkar ástkæru móður, tengdamóður
og ömmu,
Sigríðar Th. Mathiesen
Björtuhlíð 29, Mosfellsbæ.
Victor R. Viktorsson Salbjörg Bjarnadóttir
Júlíana S. Viktorsdóttir
ömmubörn
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigrún Jónsdóttir
frá Neskaupstað,
lést þriðjudaginn 19. janúar.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju í
Garðabæ þriðjudaginn 31. janúar klukkan 15.
Stefnir Svan Guðnason Ása Kristín Valsdóttir
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir Þórir Jóhannsson
Eydís Th. Jónsdóttir Gylfi Kr. Sigurgeirsson
Guðrún Halldóra Jónsdóttir Julian Mark Williams
ömmu- og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hörður Sófusson
Aflagranda 40,
Reykjavík,
lést 21. janúar á Landspítalanum í
Fossvogi. Útförin fer fram frá Neskirkju
miðvikudaginn 1. febrúar kl. 13.
Geirlaug Karlsdóttir
Bryndís Harðardóttir
Ragnheiður Lára Jónsdóttir
Hörður Karlsson Bylgja Dögg Sigmarsdóttir
Haukur Karlsson Elsa Sól Gunnarsdóttir
Auður Karlsdóttir Jón Stefán Hannesson
og langafabörn