Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 46
Danshöfundurinn Lee Proud flutti til Íslands fyrir tilviljun. Hér nýtur hann þess að starfa og elskar land og þjóð. Lee kynntist unnusta sínum hér og hyggur nú á brúðkaup. Það eru tíu síðan ég kom hingað fyrst og vann í minni fyrstu sýningu á Íslandi. Fyrir mér eru þetta merk tímamót af því ég elska að vera hér,“ segir danshöf- undurinn og leikstjórinn Lee Proud. Hann fæddist í Newcastle á Englandi en býr í London og er með annan fótinn á Íslandi. Lee fékk snemma áhuga á dansi og byrjaði ungur í dansskóla, hann segir það ekki hafa verið hefðbundið áhugamál fyrir strák í Newcastle á þeim tíma. „Ég hafði alltaf haft svo gaman af því að syngja og svo fljótlega þróað- ist það í dans. Mig langaði að læra að dansa þegar ég var níu ára en það var ekki hefðbundið fyrir strák úr verkamannastétt í Newcastle fyrir rúmum 40 árum,“ segir Lee. „En ég fékk að gera það og mamma mín og pabbi fóru með mig í dansskólann á hverjum laugardegi. Skilyrðið var að tvíburasystir mín átti að vera með mér, dansskólinn var ódýrari en barnapía og mamma og pabbi gátu útréttað á meðan við vorum þarna. En þetta var smá eins og ég væri Billy Elliot,“ segir Lee. Flutti ungur til London Þegar Lee var aðeins þrettán ára gamall flutti hann til London og fór í skóla þar. Í skólanum lærði hann hefðbundin fög en einnig söng og dans. „Við byrjuðum alltaf daginn í landafræði, stærðfræði, ensku og þessu hefðbundna en svo seinni- partinn lærðum við raddtækni, ballett, djassballett og hvers kyns söng og dans,“ segir hann. Spurður hvort ekki hafi tekið á að f lytja svo ungur að heiman segist hann haf gleymt sér í söng og dansi. „Ég var svo þakklátur fyrir að vera kominn þangað, ég naut þess að syngja og dansa,“ segir Lee en hann hlaut styrk til að nema við skólann þar sem skólagjöldin voru há. „Þetta var bara eins og í Billy Elliot, ég var eins og hann. Ljómaði allur þegar ég var loksins kominn þarna og var að upplifa drauminn,“ segir Lee. Hann var aðeins þrettán ára þegar hann tók þátt í sinni fyrstu stóru sýningu, Bugsy Malone á West End í London, en með honum í sýningunni lék meðal annars Cath- erine Zeta-Jones. Síðan þá hefur Lee komið fram og unnið í óteljandi sýningum um allan heim. Á menntaskólaárunum tók hann sér pásu frá dansinum í örskamma stund og var í hljómsveitinni The Proud Ones. „Þetta var skemmti- legt og okkur gekk vel. Við komum meira að segja lagi í þriðja sæti á breska kántrílistanum og fórum í tónleikaferðalag með David Bowie, svo einhvern veginn flosnaði þessi hljómsveit upp og við fórum að gera eitthvað annað,“ segir Lee og ekki er að greina vott af hroka í röddinni þrátt fyrir velgengnina. Góðan daginn Spurður að því hvernig það hafi komið til að Lee kom til Íslands segir hann það skondna sögu. „Ég hafði verið að sjá um sviðshreyfingar og dans í mörgum, mörgum sýningum í Bretlandi og mér hafði gengið mjög vel. Voru boðin fleiri og fleiri verk- efni og hafði unnið til verðlauna og það var farið að spyrjast út,“ segir hann. „Svo kom það upp að íslenskur leikstjóri spyr leikstjóra sem ég var að vinna með hvort hann gæti mælt með einhverjum fyrir sýningu á Íslandi og hann sagði honum frá mér, íslenska leikstjóranum leist vel á og ég fékk að vita að hann myndi hringja í mig eftir nokkra daga,“ segir Lee sem ákvað að nýta þessa daga til að læra að segja góðan dag- inn á íslensku. „Svo tek ég fundinn á Skype heima hjá mér og heilsa leikhús- stjóranum með góðan daginn og braut þannig ísinn, honum fannst það svo fyndið og með þessu góðan daginn hef ég fengið fullt af verkefn- um og alls konar öðru hér á Íslandi,“ segir Lee og hlær. Lee Proud hefur tekið þátt í upp- setningu meirihluta stórra sviðs- verka sem sett hafa verið upp á Íslandi síðasta áratuginn. Hann hefur meðal annars séð um dans og sviðshreyfingar í Mary Poppins, Billy Elliot, Mamma Mia!, Rocky Horror, Matthildi, 9 lífum og Emil í Kattholti í Borgarleikhúsinu og í Kabarett, Vorið vaknar og Bene- dikt búálfi hjá Leikfélagi Akureyrar. Hann hefur verið listrænn stjórn- andi og danshöfundur Söngva- keppninnar hjá RÚV frá árinu 2019 og samdi meðal annars dansinn sem Daði og gagnamagnið dansa við lagið Think about things. Lee vinnur núna að uppsetningu Chi- cago á Akureyri og Draumaþjóf- inum í Þjóðleikhúsinu. Þá hefur hann fengið fjölda tilnefninga til Grímuverðlaunanna og hlaut hann slík verðlaun fyrir Matthildi. Fann ástina En það er ekki einungis ferill Lee sem hefur blómstrað á Íslandi, því hér fann hann ástina. „Ég sat eitt kvöldi með Páli Óskari á Ölstofunni og þar sé ég á barnum fallegasta mann sem ég hef á ævi minni séð. Þar sem við vorum á Íslandi þekkti Palli hann auðvitað og í ljós kom að hann hafði séð sýningarnar mínar og vissi hver ég var,“ segir Lee og ljómar þegar hann segir blaðamanni frá því þegar hann sá unnusta sinn Ahd Tamimi í fyrsta sinn. Þetta kvöld urðu þeir vinir á Facebook og spjölluðu mikið saman, Ahd er leikari og stuttu seinna fékk hann hlutverk í sýningu sem Lee vann einnig í, Vorið vaknar. „Þá urðum við enn betri vinir og unnum saman á Akureyri. Svo er ég alltaf að tala um hann og eitt kvöldið í desember er ég að tala við vin minn, ætti kannski ekki að „namedroppa“ en Elton John og maðurinn hans, David, eru góðir vinir mínir,“ segir Lee auðmjúkur. „David segir við mig að ég verði bara að eiga almennileg og einlæg samskipti við Ahd og ég tek það til mín. Þetta kvöld, föstudaginn 13. desember árið 2019, spyr ég hann bara beint út hvort að við ættum að verða kærastar og hann segir já,“ rifjar Lee upp. „Þetta var stórkostlegt og daginn eftir vöknum við og hann segir: „Góðan daginn, kærasti,“ og mér leið svo vel,“ segir Lee og gleðin leynir sér ekki þegar hann talar um Ahd sem hann trúlofaðist um áramótin. „Ég bað hann að giftast mér á gamlárskvöld í Kaupmannahöfn. Ég var búinn að fylla svalirnar á íbúð- inni sem við vorum í af kertum og ég bað hans þar rétt fyrir miðnætti. Ég fór niður á hnén og bað hans, allir vinir okkar sem voru í partíi hjá okkur fylgdust með út um gluggann og svo um leið og hann sagði já byrj- uðu flugeldarnir. Þetta var ótrúlegt augnablik.“ Það er margt fram undan hjá Lee sem er bókaður út allt árið 2024. Hann vinnur að uppsetningu Sister Act í Danmörku og eins og komið hefur fram vinnur hann að Drauma- þjófnum í Þjóðleikhúsinu og Chi- cago. Svo er hann á leið til Japan þar sem hann mun leikstýra verki í hinu víðfræga leikhúsi Takarazuka Revue, leikhúsi þar sem konur fara með öll hlutverk. „Næst á dagskrá er frumsýning á Chicago og svo þurfum við að finna tíma fyrir brúðkaup,“ segir Lee . n Mig lang- aði að læra að dansa þegar ég var níu ára en það var ekki hefð- bundið fyrir strák í verka- mannastétt í Newcastle. Lee Proud flutti fyrst til Íslands fyrir tíu árum. Hann hafði þá búið lengi í London og fannst þögnin í Reykjavík yfirþyrmandi. Nú elskar hann þögnina, land og þjóð. Fréttablaðið/sigtryggur ari Fann ástina á Íslandi Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is Ahd og Lee hafa verið saman síðan árið 2018 og hyggja nú á brúðkaup. 24 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 28. jAnúAR 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.