Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 48
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda
tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir |
Nú eru auðvitað fimmtíu
ár síðan að gosið var og
okkur fannst því við hæfi
að sýna Eldeyjuna.
Ester Bíbí, verkefnastjóri hjá Kvik-
myndasafni.
26 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 28. jAnúAR 2023
LaUGaRDaGUR
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Björgunarafrekið við Látrabjarg eftir Óskar Gíslason fékk dreifingu víða um heim. Mynd/Aðsend
Jean-Luc Godard lést í september.
FréttAblAðið/Getty
Fimmtíu ár eru liðin frá Heimaeyjargosinu sem tekið er fyrir í Eldeyjunni. Mynd/Aðsend
Eldgos og franskir frumkvöðlar
verða á dagskrá sýningaraðarinn
ar Bíóteksins sem hefst á sunnu
daginn.
arnartomas@frettabladid.is
Bíótekið, röð kvikmyndasýninga á
vegum Kvikmyndasafns Íslands, hefst
í þriðja skipti sunnudaginn 29. janúar
í Bíó Paradís. Dagskráin hefst með
tveimur íslenskum heimildarmyndum
sem gera grein fyrir íslensku björgunar
starfi, Eldeyjunni frá 1973 og Björgunar
afrekinu við Látrabjarg frá 1949.
„Nú eru auðvitað fimmtíu ár síðan að
gosið var og okkur fannst því við hæfi að
sýna Eldeyjuna,“ segir Ester Bíbí Ásgeirs
dóttir, verkefnastjóri hjá Kvikmynda
safninu.
Eldeyjan var gerð af þeim Páli Stein
grímssyni, Ásgeiri Long og Ernst Kettler
og sýnir í myndum bæði jarðhræring
arnar og björgunarstarfið sem unnið
var í kringum Heimaeyjargosið. Á sýn
ingunni mun gestum einnig bjóðast
að hlýða á frásögn frá fyrstu hendi af
gosinu.
„Við verðum með spjall eftir sýning
una þar sem Ólafur Lárusson, sem upp
lifði gosið og er björgunarsveitarmaður í
dag, mun ræða við áhorfendur um þessa
reynslu sem hann hefur,“ segir Ester.
Björgunarafrekið við Látrabjarg segir
svo frá því þegar meðlimir í björgunar
sveitinni Bræðrabandinu, undir stjórn
Þórðar frá Látrum, björguðu breskum
skipbrotsmönnum af togaranum Dhoon
árið 1947, eða fyrir 75 árum.
„Við verðum líka með sérfræðing frá
Kvikmyndasafninu sem mun ræða um
þessar myndir frá öðrum vinkli.“
Frönskum risa vottuð virðing
Samhliða því að skyggnst verður inn í
þetta sögulega björgunarstarf verður
einnig boðið upp á tvær myndir úr
frönsku nýbylgjunni, þar á meðal Pierrot
le Fou eftir leikstjórann JeanLuc Godard
sem lést í september síðastliðnum. God
ard er af mörgum talinn einn áhrifamesti
leikstjóri frönsku kvikmyndasögunnar
og leikstýrði meðal annars myndum á
borð við Alphaville og À bout de souffle.
„Við vildum sýna honum og hans
verkum virðingu með því að sýna eina
af eldri myndum hans,“ segir Ester og
bætir við að tekist hafi vel til með Bíó
tekið eftir að það fór af stað í fyrra.
„Þetta hefur verið rosalega vel sótt og
vel tekið í þetta.“
Rauða þráðinn í Bíótekinu segir Ester
vera að á hverjum sýningarsunnudegi
verði eitthvað íslenskt úr safninu.
„Þar erum við að fara niður í okkar
eigin safnkost en svo erum við líka með
aðrar myndir sem gerðar hafa verið
upp á öðrum kvikmyndasöfnum eða
öðrum stofnunum,“ útskýrir hún en á
erfitt með að segja til um hversu margar
myndir séu til á safninu. „Við erum með
langflestar útgefnar myndir sem gerðar
hafa verið á Íslandi og svo erum við líka
með gríðarstórt af filmum sem stundum
koma úr einkaeigu eða frá kvikmynda
gerðarmönnum sem tóku mikið efni en
notuðu aðeins hluta þess í myndir sínar.“
Dagskrá Bíóteksins í heild má finna á
heimasíðu Kvikmyndasafnsins. n
Björgunarstarf og
frönsk nýbylgja
1813 Skáldsagan Hroki og hleypidómar, eða Pride and
Prejudice, eftir Jane Austen er gefin út í Bretlandi.
1825 Hið Konunglega norræna fornfræðafélag er stofnað
í Kaupmannahöfn.
1855 Fyrsta járnbrautarlestin fer frá Atlantshafi til Kyrra-
hafs á Panamajárnbrautinni.
1887 Í Montana-fylki í Bandaríkjunum falla til jarðar
stærstu snjókorn sem sést hafa á jörðinni, 38 cm
breið og 20 cm þykk.
1907 Sláturfélag Suðurlands, SS, er stofnað sem sam-
vinnufélag bænda. Það hét fyrst Sláturfélag
Árnesinga og Rangæinga.
1912 Tólf íþróttafélög stofna Íþróttasamband Íslands,
„bandalag íslenskra íþrótta- og fimleikafélaga“, í
Bárubúð.
1935 Ísland verður fyrsta land í heimi til að lögleiða
þungunarrof.
1981 Bandaríski leikarinn Elijah Wood fæðist.
2013 EFTA-dómstóllinn fellir úrskurð sinn í máli ESA gegn
Íslandi og sýknar Ísland af öllum liðum ákærunnar
og hafnar öllum kröfum sem gerðar eru á hendur
landinu.