Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 19
Í dag eigum við aftur yndislegt samband og hann er farinn að trúa því að mamma detti ekki í það aftur. Hann er hættur að vera hræddur. 1. nóvember 2018 markaði nýtt upphaf fyrir Tinnu. Þá fór hún í meðferð á Hlaðgerðarkoti þar sem glíman við gömul áföll hófst loks. „Ég var alltaf rosalega feimin og þorði ekki að vera ég sjálf. Ég var alltaf grátandi ef við vorum að fara eitthvað, til dæmis í matarboð. Mér fannst ég ömurleg. Líf mitt hafði bara alltaf verið þannig.“ Ógeðslegur vítahringur Lengi vel notaði Tinna aðeins kókaín á skemmtanalífinu. „Svo kom að því að ég fór að fara meira út á djammið, kynntist mörgu fólki, fór að vera lengur úti og missa tökin. Þetta varð ógeðslegur vítahringur. Ég náði lengi að vera móðir og þó ég væri andlega fjarverandi passaði ég að það væri matur á borðum og svo framvegis en svo fór ég að missa það líka.“ Í kjölfar efnahagshrunsins missti Tinna heimili sitt og á svipuðum tíma skildu hún og barnsfaðirinn. Það var þá, árið 2013, sem stjórnin á neyslunni var úr hennar höndum og í kjölfarið, lífinu öllu. Tinna fór í nýtt samband sem hún lýsir sem skelfilegu. „Það var mikið andlegt og kynferðislegt of beldi og ég endaði á spítala með mikla áverka. Þetta var hræðilegt, ég var að koma að honum með alls konar konum í rúminu og ég dró eina út á hárinu. Þetta var algjörlega sjúkt samband og mikil neysla.“ Ég hataði karlmenn Sambandið varði í rúmt ár og segist Tinna að því loknu hafa verið búin að missa lífsviljann. „Ég var alltaf að leita í fólk sem var verra statt en ég. Ég endaði í hópi glæpamanna og mjög veikra fíkla,“ segir hún en reiðin var orðin ráðandi afl í lífi hennar. „Ég hataði karlmenn og langaði að hefna mín,“ segir Tinna sem var komin inn í hringiðu óreglu og fíkniefna. Barnsfaðir Tinnu gat ekki horft upp á ástandið og tók son þeirra til sín í byrjun árs 2018. „Þá var ástandið búið að vera mjög slæmt í eitt ár,“ segir Tinna og ekki var útlitið bjart þegar hún hafði misst einkasoninn frá sér og eins íbúðina sem hún hafði leigt. Þráin til að verða edrú var sterk og tilraunirnar margar en entust þó ekki nema nokkrar vikur í senn. Það var svo árið 2014 sem hún fór í sína fyrstu meðferð á Vogi en tveimur mánuðum síðar var hún fallin. „Ég var ekkert að tengja við AA, var greinilega ekki tilbúin að hætta. Ég gat ekki séð fyrir mér að mega aldrei aftur fá mér rauðvín, þó ég myndi hætta að taka kókaín. En auðvitað get ég bara aldrei aftur fengið mér í glas,“ segir hún. Allslaus á götunni Eftir að hafa farið vestur til móður sinnar yfir sumarið kom Tinna aftur í bæinn í ágúst og eins og hún orðar það sjálf: „Þá byrjaði ballið!“ „Ég var bara í partíum og á göt- unni frá ágúst og fram í nóvember. Ég átti hvergi heima og gisti bara einhvers staðar. Ég hataði sjálfa mig og langaði bara að deyja. Þegar rann af mér leið mér svo illa og ég komst ekki undan sænginni,“ segir Tinna sem var ákveðin í að svipta sig lífi. „Það voru allir alltaf að reyna að hjálpa mér en ég gat ekki þegið hjálpina. Ég var búin að missa son minn og allt sem ég átti. Áður en ég fór vestur til mömmu var brotist inn til mín og allt sem ég átti tekið. Ég sem hafði átt svo fallegt líf, fallegt innbú og fatnað, átti nú ekkert.“ Það grétu allir viðstaddir Fyrsti nóvember árið 2018 er í huga Tinnu upphafið að nýju lífi. Dagur- inn sem hún gekk inn á Hlaðgerðar- kot í þriggja mánaða meðferð. „Ég reyndi að taka mitt eigið líf og það heppnaðist ekki. Ég fann þá svo sterkt að ég vildi ekki fara frá syni mínum og fannst ég eiga meira skilið.“ Nokkrum dögum síðar var Tinna hjá tengdamóður sinni þangað sem barnsfaðir hennar og þrjár vin- konur komu til að hvetja hana í meðferð. „Ég varð brjáluð og réðst á barns- föður minn. Það grétu allir við- staddir enda horfðu þau á mig alveg tryllta.“ Eitthvað hafði þó gerst innra með Tinnu sem vildi komast í meðferð og pantaði sér viðtalstíma hjá SÁÁ, þangað sem hún svo mætti drukkin. Það var svo ekki fyrr en eiginkona föður hennar, sem sjálf hefur unnið með konum með fíknivanda, sótti Tinnu niður í bæ í tryllingsástandi, að hreyfing komst á hlutina. „Ég var bara farin að berja fólk – ég var alltaf í því að meiða aðra. Hún kom að sækja mig niður í bæ en ég neitaði að fara, en þegar mér var hent út úr partíi daginn eftir sótti hún mig aftur og þá var ég tilbúin. Hún fór með mig í bústað og það var pantað fyrir mig á Hlaðgerðar- kot þangað sem ég átti að hringja á hverjum degi þar til ég fengi pláss.“ Brotnaði saman í lögreglubíl Tinna ákvað að halda sér edrú þangað til að því kæmi en viku síðar var hún svo komin í lögreglubíl, handtekin fyrir að leggja hendur á neyslufélaga sinn. „Þarna, í fyrsta sinn á þessu tveggja ára djammi, fæ ég tauga- áfall. Ég bara græt í lögreglubílnum og segi: Ég verð að komast í með- ferð!“ Tinna segir lögregluþjónana hafa sýnt sér mikinn stuðning, enda annar þekkt hana eftir að hafa leikið með henni í kvikmyndum. „Þarna fékk ég bara nóg. Þetta var á mánudegi og ég fór inn á Hlað- gerðarkot á fimmtudegi.“ Þangað inn gekk Tinna algjör- lega brotin og sá fyrir sér að þriggja mánaða meðferð væri heil eilífð. En þrátt fyrir að vera í molum hið innra klæddi Tinna sig upp. „Ég var í háum hælum og hvítum síðum pels,“ segir hún og hlær. „Ég átti enga sjálfsvirðingu, hún hékk í þessum hvíta pels.“ Reiði það eina sem stóð eftir Tinna lýsir því hvernig neyslan hafi skapað mikinn tilfinningadoða. „Ég átti ekki sorg, ekki gleði og ekkert frumkvæði. Eina tilfinningin sem ég átti í neyslunni var reiði, ég gat ekki einu sinni grátið fyrr en í lögreglubílnum. Það var allt farið. Það var ekkert sem bjó innra með mér nema reiði. Ég var í miklu niðurrifi, hataði sjálfa mig meira en allt í heiminum. Þarna var ég komin með nokkuð skýran haus því ég var búin að vera edrú í nokkra daga og trúði því ekki upp á sjálfa mig hvert ég var komin. Ég var hætt að horfa í spegil því ég gat ekki horfst í augu við sjálfa mig.“ Þau björguðu lífi mínu Tinna segist hafa tekið fyrsta sporið, að viðurkenna vanmátt sinn, eftir nokkra daga og tekið því alvarlega. „Þarna áttaði ég mig á því að ég var bara algjörlega búin að missa stjórn á eigin lífi, það var ekki ég sjálf sem réði. Frá þessum degi hugsaði ég: Ég ætla að verða edrú – ég ætla að fá aftur Tinnuna mína. Ég gerði þetta af heilum hug, frá hjartanu, mig langaði að breytast og fá að vera ég, en ekki ég kvíðin, ekki ég reið, sár og áfallaröskuð.“ Tímann á Hlaðgerðarkoti nýtti Tinna til fulls og hóf vinnuna sem hún vildi óska að hún hefði hafið þegar læknarnir spurðu 18 ára hana hvort hún hefði orðið fyrir áfalli. „Ég sagði frá leyndarmálunum mínum í meðferðinni og í framhaldi fjölskyldunni. Það var rosalega erf- itt enda kenndi ég sjálfri mér um misnotkunina.“ Tinna sem sótti viðtöl í Bjarkar- hlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeld- is, og síðar Stígamót, segir það hafa verið gott að eiga öruggt skjól í Hlað- gerðarkoti á milli erfiðra funda þar. „Ég veit ekki hvort ég hefði höndl- að það að fara heim til mín, nýorðin edrú, að vinna vinnuna fyrir næsta fund.“ Það er augljóst á máli Tinnu að henni er hlýtt til starfsfólks Hlað- gerðarkots. „Ég elska þau öll sem unnu þarna,“ segir Tinna og nefnir sérstaklega Guðrúnu Einarsdóttur fyrrverandi forstöðukonu. „Ég elska hana svo mikið og við erum alltaf í sambandi, hún bjargaði lífi mínu – og þau öll.“ Eigum öll skilið þúsund tækifæri Eftir þrjá mánuði í Hlaðgerðar- koti f lutti Tinna á áfangaheimilið Dyngjuna og síðar á Brú. Uppbygg- ingarstarfið er hvorki skammvinnt né einfalt en Tinna er ákveðin í að leggja þá vinnu á sig og skráði sig í framhaldi í Grettistak, náms- og starfsendurhæfingu á vegum Reykjavíkurborgar, auk þess að hafa sótt aðstoð í VIRK. „Ég sæki líka fundi hjá fíknifræð- ingi og sálfræðingi,“ segir Tinna sem einnig er virk í starfi AA og segir það gefa sér mikið. „Ég elska að fara til sálfræðings, ég er alltaf betri eftir hvern tíma. En það er líka erfitt, ef maður er með fíknisjúkdóm þarf maður að vera orðinn mjög sterkur til að fara í gegnum erfiðar minningar.“ Tinna starfar nú að sjónvarps- þáttunum True Detective sem teknir eru upp hér á landi. „Þar held ég utan um aukaleikarana. Þetta er mikil ábyrgð og mikið nýtt að læra í svo stóru verkefni. Ég lít orðið á allt lífið sem verkefni sem ég þarf að standa mig í og klára það vel.“ Hún segir sambandið við soninn hafa styrkst á ný. „Í dag eigum við aftur yndislegt samband og hann er farinn að trúa því að mamma detti ekki í það aftur. Hann er hættur að vera hræddur.“ Lífið brosir við Tinnu rétt rúmum fjórum árum eftir að hún bjó á göt- unni, úrkula vonar um betra líf. Hún fékk frábæra aðstoð fagmanna en vinnuna vann hún sjálf. „Ég nýtti mér annan séns. En ég þurfti að sækja hann. Maður má ekki gefast upp á sjálfum sér, við verðum alltaf að halda áfram. Við eigum öll skilið þúsund tækifæri.“ n Mér fannst ég ömurleg. Líf mitt hafði alltaf verið þannig. Fréttablaðið helgin 1728. janúar 2023 lAUgARDAgUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.