Fréttablaðið - 28.01.2023, Blaðsíða 18
Þegar ég er lítil stelpa
varð ég í nokkur skipti
fyrir misnotkun af
hendi góðs vinar
fjölskyldunnar. Svo
þegar ég er unglingur
er mér nauðgað.
Myrk leyndar-
mál sköpuðu
óöryggi og
sjálfsásakanir í
huga Tinnu og
fann hún frelsi
þegar hún
prófaði kókaín.
Vítið sem hún
var föst í varð
þó verra með
neyslunni.
Fréttablaðið/
auðunn
Tinna Aðalbjörnsdóttir missti
allt í hendur stjórnlausrar
fíknar en segir stóru eftirsjána
liggja í því að hafa ekki sagt
fyrr frá kynferðisofbeldi sem
hún varð fyrir á barnsaldri. Ef
hún hefði sagt frá leyndarmál-
unum hefði ævi hennar mögu-
lega orðið öðruvísi. Tinna
segist eiga starfsfólki Hlað-
gerðarkots lífs sitt að launa.
Tinna ólst upp í Hnífsdal
á því sem hún lýsir sem
ástríku heimili. „Ég á
yndislega og ástríka for-
eldra og það var gott að
alast upp í Hnífsdal, þar sem sam-
staðan var mikil.“
Þegar Tinna var 13 ára var heimi
hennar þó snúið á hvolf þegar for-
eldrar hennar fóru í gegnum sáran
og erfiðan skilnað. „Skilnaður-
inn var mömmu og okkur öllum
erfiður en pabbi fór að búa með
móður bestu vinkvenna minna,“
segir Tinna og bendir á að erfitt geti
reynst að takast á við slíkt í svo litlu
samfélagi. Í framhaldi tók systir
Tinnu, þá aðeins tvítug, hana í fóst-
ur og hún flutti til Reykjavíkur þar
sem hún gekk einn vetur í Lauga-
lækjarskóla.
„Þetta var áfall fyrir alla fjöl-
skylduna svo mamma ákvað að
leyfa mér að fara til systur minnar
en eftir veturinn fór ég aftur vestur
til mömmu og lauk grunnskóla þar.“
Tinna segir systur sína hafa
haldið uppi miklum aga á 14 ára
unglingnum þrátt fyrir eigin unga
aldur. „Hún vildi passa upp á litlu
systur sína.“
Að grunnskóla loknum var Tinna
ákveðin í að f lytja suður. „Ég fékk
snemma mikinn áhuga á tísku og
sá það í hillingum að vera í bænum
þar sem ég kæmist í fatabúðir og
svo framvegis. Ég flutti því í bæinn
og fór í Iðnskólann í Reykjavík og
vann með skólanum.“
Lamaðist fyrir neðan mitti
Tinna segist nú oft hugsa til tæki-
færis sem hún fékk þegar hún var
18 ára. Tækifæris til að segja heil-
brigðisstarfsfólki frá leyndarmálum
sem hún hafði burðast með og áttu
eftir að hafa áhrif á allt hennar líf.
Tinna upplifði þá óhugnanlegu
tilfinningu að missa allan mátt í
fótum, oftar en einu sinni.
„Ég var í rannsóknum í lengri
tíma enda lamaðist ég alltaf öðru
hvoru í öðrum fætinum eða báðum
og stundum leiddi þetta líka fram í
handleggi. Eftir langvarandi rann-
sóknir á Landspítala og Grensás-
deild var tekinn úr mér mænuvökvi
til rannsóknar. Í ljós komu bólgnir
taugaendar sem þrýstu á mænuna.“
Það er fundur með teymi lækna
sem móðir Tinnu sat einnig, sem er
henni sérlega minnisstæður.
„Læknarnir spurðu okkur hvort
ég hefði lent í einhvers konar áfalli,“
segir Tinna og útskýrir að læknarnir
hafi tengt einkenni veikindanna við
mögulegt áfall. „Taugaáfall getur
leitt til alls konar líkamlegs ástands.
Svar mitt var nei en mamma sagði
þeim frá skilnaðinum. Ég þorði ekk-
ert að segja frá hinum áföllunum. Ég
hef oft hugsað út í það að ef ég hefði
sagt frá leyndarmálunum mínum
þarna hefði ævi mín mögulega
orðið öðruvísi.“
Varð fyrir ofbeldi á barnsaldri
Tinna segist ekki hafa viljað horfast
í augu við það sem henti hana bæði
á barns- og unglingsaldri.
„Þegar ég er lítil stelpa varð ég í
nokkur skipti fyrir misnotkun af
hendi góðs vinar fjölskyldunnar.
Svo þegar ég er unglingur er mér
nauðgað. Bæði þegar ég var 13 ára
og 16 ára.“
Undanfarin ár hefur Tinna aftur
á móti verið í ýmiss konar sjálfs- og
áfallavinnu og segir þá sérfræðinga
sem hún hafi leitað til vera á sama
máli, að framhaldið hefði verið
annað ef hún hefði fengið aðstoð við
að vinna úr áföllunum fyrr.
„Þeir sem ég hef leitað til segja
allir að ég hafi þróað alkóhólisma
út frá áfallasögu. Sjálf er ég sann-
færð um það því ég átti svo marga
spretti í lífinu þar sem ég var ekki
svona alkóhólísk.“
Varð móðir aðeins nítján ára
Tinna kynntist barnsföður sínum
17 ára og varð fljótt barnshafandi,
eða aðeins 18 ára gömul. Líkamlegu
einkennin minnkuðu mikið á með-
göngu og fjöruðu svo endanlega út.
„Ég var svo hamingjusöm og það
varð mér svo dýrmætt að verða
móðir,“ segir Tinna sem telur bætta
andlega líðan þannig hafa orðið
henni til lækningar.
„Ég var heilsteypt í móðurhlut-
verkinu. Ég er sjálf alin upp á fallegu
og ástríku heimili þar sem allt var í
röð og reglu og vildi það sama fyrir
son minn,“ segir Tinna sem upp-
lifði móðurhlutverkið aldrei sem
byrði þrátt fyrir að vera aðeins 19
ára gömul.
„Við höfum alltaf verið samrýnd,
ég og strákurinn minn, og við eigum
náið og gott samband,“ segir Tinna
um einkasoninn sem nú er 22 ára.
Tinna segir að á þessum árum
hafi fólk í kringum hana mikið
notað kókaín þegar það skemmti
sér. „Ég var lengi sú eina sem not-
aði ekki og var oft út undan vegna
þessa. Þetta þótti bara eðlilegt og
þykir enn þá, en það er það ekki.“
Tinna hafði eins og fyrr segir
alltaf haft mikinn áhuga á tísku
og eftir að hafa sett upp sína fyrstu
tískusýningu bauðst henni að stíl-
isera keppnina Ungfrú Ísland.is.
Hlutirnir gerðust hratt og Tinna fór
að vinna fyrir módelskrifstofuna
Eskimo. „Ég varð framkvæmda-
stjóri Ford-keppninnar ásamt því
að sjá um sjónvarpsþætti um undir-
búning og keppnina. Ég vann mikið
að búningum auglýsinga ásamt því
að finna módel og leikara í verk-
efni fyrir Eskimo,“ segir Tinna sem
þarna um 2003 var komin á kaf í
tískugeirann sem hana hafði alltaf
dreymt um.
Upplifði frelsi í fyrsta skipti
Það var svo eitt kvöldið þar sem
hún var úti á lífinu að hún prófaði
í fyrsta sinn kókaín.
„Ég veit ekki af hverju ég vildi það,
ég hef líklega bara verið forvitin og
þetta var orðið svo eðlilegt.“
Tinna, sem alltaf hafði þjáðst af
miklu óöryggi og kvíða, upplifði
frelsi undir áhrifum kókaíns.
„Það er skrítið að segja frá því
en þannig lýsa alkóhólistar því að
prófa í fyrsta skipti – það gerist eitt-
hvað innra með þeim. Það er frelsið
frá þessu víti sem maður er fastur í,
í eigin líkama. Maður nær að deyfa
sársaukann, manni líður vel og
maður opnast,“ lýsir Tinna en bætir
við að vítið endurskapist svo með
fíkninni, þessari eilífu leit aftur að
vellíðaninni, frelsinu.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
Við eigum öll skilið
þúsund tækifæri
16 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 28. jAnúAR 2023
lAUgARDAgUR