Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Page 10

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Page 10
8 yfir af hálfu þingheims að aldrei mundu þeir hlýða þeim lögum, sem nú voru upp lesin. Ætluðu þeir slíkt vera ólög, en ekki lög. Sá jarl sér ekki annað fært þótt herlið væri til taks, en að láta undan eyjar- skeggjum, því að þeir höfðu allir vopnazt“. Og dr. Jón hætir við: Þótti Englendingum þetta drengilegt hragð og létu lögin niður falla, eins og þeirra var von og visa. Margir urðu til þess aS „gera garSinn frœgarí1. Á fyrrnefndum tíma eða nokkru fyrir aldamót, var Mön löngu orðin kunn sem sumardvalarstaður, og vafalaust mun það hafa átt sinn þátt í þvi, að heimsfrægir menn gistu eyna, dvöldu þar lang- dvölum, og var einn þeirra skozka ljóðskáldið og skáldsagnahöfundur- inn heimsfrægi, Sir Walter Scott (1771—1832). Gerist ein skáldsaga hans á eynni. Brezki stjórnmálamaðurinn Gladstone dvaldist þar einnig. Og nefni ég þessa tvo heimsfrægu menn, en nöfn þeirra eru þjóðinni vafalaust kunnast um, af mörgum, er nefna mætti. Og því fleiri sem komu, því meira var fegurð eyjarinnar rómuð. Og fyrir aldamót síðustu var svo komið, að til eyjarinnar komu á annað hundr- að þúsund sumargestir árlega. Hall Caine verður að sjálfsögðu einnig að nefna, vin og velgerðar- mann Jóns Stefánssonar en hann var óneitanlega víðkunnur höfund- ur á sínum tíma. Jón bar á hann hið mesta lof og vafalaust á hann það lof skifið, að hann hafi vakið mikla athygli á Mön með skáldsög- um sínum, en þrjár þeirra gerast á eyjunni. Ein skáldsagna hans ger- ist að nokkru á fslandi. (Sagan mun gerast bæði á fslandi og Mön og nefnist á íslenzku Glataði sonurinn. Ég man, að á hana var minnzt í blöðum hér á sínum tíma, og þótt hún vera með reyfarabrag, en ég hef ekki lesið hana, og get því ekkert sagt um hve mikið var þau ummæli að marka). Leikrit samdi hann upp úr sumum skáldsagna sinna, m.a. leikritið John Storm, sem Leikfélag Reykjavíkur lék, og fóru þau með aðalhlutverk Guðrún Indriðadóttir og Jens B. Waage, og er leikur þeirra enn ljóslifandi í minningunni. J. St. var sann- færður um langlífi frægðar Hall Caine, en ef til vill hefur það haft einhver áhrif, að Caine mun hafa reynzt honum ákaflega vel. Hann fæddist 1853 og dó 1931. Fullu nafni hét hann Sir Thomas Henry Hall Caine. Ungur stundaði hann skólanám á Mön, dvaldist þar oft, og bjó þar seinustu æviár sín.

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.