Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Qupperneq 10
8
yfir af hálfu þingheims að aldrei mundu þeir hlýða þeim lögum, sem
nú voru upp lesin. Ætluðu þeir slíkt vera ólög, en ekki lög. Sá jarl
sér ekki annað fært þótt herlið væri til taks, en að láta undan eyjar-
skeggjum, því að þeir höfðu allir vopnazt“.
Og dr. Jón hætir við: Þótti Englendingum þetta drengilegt hragð
og létu lögin niður falla, eins og þeirra var von og visa.
Margir urðu til þess aS „gera garSinn frœgarí1.
Á fyrrnefndum tíma eða nokkru fyrir aldamót, var Mön löngu
orðin kunn sem sumardvalarstaður, og vafalaust mun það hafa átt
sinn þátt í þvi, að heimsfrægir menn gistu eyna, dvöldu þar lang-
dvölum, og var einn þeirra skozka ljóðskáldið og skáldsagnahöfundur-
inn heimsfrægi, Sir Walter Scott (1771—1832). Gerist ein skáldsaga
hans á eynni. Brezki stjórnmálamaðurinn Gladstone dvaldist þar
einnig. Og nefni ég þessa tvo heimsfrægu menn, en nöfn þeirra eru
þjóðinni vafalaust kunnast um, af mörgum, er nefna mætti. Og því
fleiri sem komu, því meira var fegurð eyjarinnar rómuð. Og fyrir
aldamót síðustu var svo komið, að til eyjarinnar komu á annað hundr-
að þúsund sumargestir árlega.
Hall Caine verður að sjálfsögðu einnig að nefna, vin og velgerðar-
mann Jóns Stefánssonar en hann var óneitanlega víðkunnur höfund-
ur á sínum tíma. Jón bar á hann hið mesta lof og vafalaust á hann
það lof skifið, að hann hafi vakið mikla athygli á Mön með skáldsög-
um sínum, en þrjár þeirra gerast á eyjunni. Ein skáldsagna hans ger-
ist að nokkru á fslandi. (Sagan mun gerast bæði á fslandi og Mön
og nefnist á íslenzku Glataði sonurinn. Ég man, að á hana var minnzt
í blöðum hér á sínum tíma, og þótt hún vera með reyfarabrag, en ég
hef ekki lesið hana, og get því ekkert sagt um hve mikið var þau
ummæli að marka). Leikrit samdi hann upp úr sumum skáldsagna
sinna, m.a. leikritið John Storm, sem Leikfélag Reykjavíkur lék, og
fóru þau með aðalhlutverk Guðrún Indriðadóttir og Jens B. Waage,
og er leikur þeirra enn ljóslifandi í minningunni. J. St. var sann-
færður um langlífi frægðar Hall Caine, en ef til vill hefur það haft
einhver áhrif, að Caine mun hafa reynzt honum ákaflega vel. Hann
fæddist 1853 og dó 1931. Fullu nafni hét hann Sir Thomas Henry
Hall Caine. Ungur stundaði hann skólanám á Mön, dvaldist þar oft,
og bjó þar seinustu æviár sín.