Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Qupperneq 19
17
niður hlíðar m.a. yfir öxlina á Snæfelli inni á miðri eynni, en svo eru
nútímavegir á milli, þar sem brunað er áfram á yfir 200 km hraða.
Þá má nefna Southern ,Í00‘ Motor Cycle Races í september ár hvert
nálægt Castletown, í þeirri keppni, eins og í T.T stórkeppninni, taka
þátt margir frægir keppendur frá Bretlandi og viðar að. Frægustu
lúðrasveitir brezka hersins, eins og Royal Horse Guards og Irish
Guards, skemmta með lúðrablæstri og hersýningum. M.a. hafa þær
skemmt í Rushen kastala, þar sem norskir konungar og Manx kon-
ungar riktu. Rushen kastali er skammt frá Castletown. Þar er sjó-
minjasafn og galdraminjasafn. Þá verður að nefna Víkingahátíðina
(The Viking Pageant), sem árlega er haldin i Peel um miðbik júlí.
Er hún haldin til að minnast fyrstu landgöngu og innrásar víkinga
fyrir meira en þúsund árum. Golfvellir eru víða, og góð skilyrði til
stangaveiða í ám og árósiun og sjóstangaveiðar eru stundaðar. Dýra-
garður er á eynni, ekki sízt vinsæll meðal barna. Og er nú bezt að
hætta upptalningunni, og klykkja út með því að Mön er fræg fyrir
kattartegund, sem að sögn er hvergi annars staðar að finna, en hún
er rófulaus.
Islendingar, sem ferðast rnn Bretland, ættu nú að ihuga, hve fljót-
legt og ódýrt er að ferðast þaðan til Manar, hafi þeir 2-3 daga aflögu,
eða helzt fleiri. Til Manar er 75 mínútna flug frá Lundúnum, og
aðeins hálftíma flug frá Glasgow, en sigling á nútíma ferjum tekur
frá 2-5 tímum. Gisting er yfirleitt ódýr á Mön, en dýrari í júlí og
ágúst en í maí, júni og september. Mön er einn sólrikasti staður á
Bretlandseyjum. En ef hann rignir, er hægt að skemmta 30.000 manns
innanhúss í Douglas.
örnefni.
Athugi menn uppdrátt af Mön, talar það sínu máli, hversu mörg
nöfn menn rekast á af norrænum uppruna: sum hafa haldizt óbreytt
eða að kalla óbreytt, eins og Laxey (þannig skrifað enn í dag), en
norrænir menn hafa vafalaust kallað ána (Laxey River), sem þama
rennur til sjávar, Laxá, og þarna eru tveir bæir, Old Laxey og New
Laxey, og einnig Laxey Bay. Laxgengd var eitt sinn mikil í ána, en
veiði er nú þorrin í henni, en sjóstangaveiði er í grennd við ósinn og
utan á vikinni. Áður hef ég minnst á Snœfell (Snaefell) (þeir hafa
líka sín Snæfell í Wales og á Skotlandi), og svo er bærinn Ramsay
2