Rökkur : nýr flokkur

Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Qupperneq 25

Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Qupperneq 25
23 um að vinsældir föður míns sem ljóðskálds hefðu farið sídvínandi, og á sumum að skilja, að þær væru að mestu eða öllu úr sögunni. Það eimdi eftir af áróðri í þessa átt allt þar til hin ágæta bók Hannesar skálds Péturssonar, Steingrímur Thorsteinsson, Líf hans og list, kom út 1964. Hún vakti þjóðarathygli og hefur verið gefin út á ný (off- setprentuð. — Bókaútgáfa Menningarsjóðs). 1 formála kallaði Hannes Pétursson rit sitt „ . . . hálft í hvoru vamarrit . . . og hefi ég ekki hirt um að jafna yfir þær misfellur“. Framlag Hannesar Péturssonar í hók hans til skilnings og réttara- mats á ljóðagerð skáldsins verður aldrei metið um of. En hér ber einnig að nefna annað skáld, sem ruddi í reyndinni braut að sama marki, Halldór Laxness, en það gerði hann með hinni afburða snjöllu grein sinni SKÁLD TVEGGJA SVANA, sem birt var í Vísi 21/8 1963 er hálf öld var liðin frá dánardægri skáldsins. Hún var einnig birt skömmu síðar í Sunnudagsblaði Tímans, og náði þannig, vegna birtingarinnar í þessum tveimur blöðum, til allrar þjóðarinnar. Það var fyrir hvatningu Karls Kristjánssonar fv. alþingismanns, að grein- in var einnig birt í Tímanum. Aðdáendur ljóða skáldsins hafa án vafa fagnað heilshugar framlagi þeirra ágætu manna, sem ég hefi nefnt, og annarra fjölmargra, sem ekki eru nefndir, og það geri ég líka af heilum huga og hjartans þakklæti. En ég vil ekki fara í launkofa með þá skoðun, sem ég gerði lítils háttar grein fyrir 1946, og aðhyllist enn, að vinsældir skáldsins héldust traustar me'Sal almennings úti um byggðir landsins, þrátt fyxir það, sem gert var til að reyna að draga úr þeim, og leiði að þessu nokkur rök síðar, en framlag fyrmefndra naanna og annarra til aukins skilnings og réttara mats á ljóðagerð skáldsins er að sjálfsögðu jafn mikilvægt, hvort sem menn viðurkenna eða viðurkenna ekki rök mín. II. Ég vil nú vikja nokkrum orðum að útgáfum á ljóðmælum föður míns, og einnig ljóðaþýðingunum, en þetta er ekki ótengt því, sem ég hefi vikið að hér að framan. Ég byrja þann spuna með athuga- semdum, sem ekki skipta neinu meginmáli, og fram eru bornar í anda vinsemdar, við atriði í eftirmála Hannesar skálds Péturssonar i nýútkominni, prýðisfallegri og vandaðri Helgafellsbók: LjöSmœli
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Rökkur : nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/1772

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.