Rökkur : nýr flokkur - 01.06.1975, Síða 67
Framhald af 2. kápusíðu
„Skáldsaga þessi er upphaflega valin til birtingar af The Literary
Guild, bókmenntafélagi í New York. Sama árið (1954), sem hún kom
út í sérútgáfu þess, komu fjórar aðrar, og síðar fleiri í kjölfarið.“
Bæta má því við, að einungis úrvalsbækur hljóta slíka viðurkenn-
ingu af hálfu þessa mikilsmetna bókmenntafélags.
Axel las þýðingu þá, er hér um ræðir, sem síðdegissögu í Ríkis-
útvarpi Islands smnarið 1973, og vakti sagan óvenjulega athygli hlust-
enda. Kom þýðingin síðan út í fyrra haust í bókarformi á vegum
Bókaútgáfunnar Rökkurs, eins og fyrri þýðingar Axels.
Skal þá stuttlega vikið að höfundinum, Harvey Fergusson, en ævi-
ferill hans er í megindráttum á þessa leið, eftir þeim heimildum, sem
ég hefi getað aflað mér:
Hann var fæddur í Albuquerque, Nýja Mexico, 1890. Eftir að
hafa stundað háskólanám, gerðist hann blaðamaður og rithöfundur.
Starfaði hann árum saman sem blaðamaður við kunn amerísk blöð,
en vann einnig að kvikmynda gerð. Hann hefir samið fjölda skáld-
sagna, en þeirra mun sú, sem hér er gerð að umtalsefni, áreiðanlega
vera talin merkust, enda hlaut hún eigi aðeins hina miklu viður-
kenningu The Literary Guild, heldur einnig sérstaklega lofsamleg
ummæli ritdómara amerisku stórblaðanna New York Herald Trihune
og The New York Times.
Hin síðari ár ævi sinnar átti Harvey Ferguson heima i Berkeley
í Kaliforníu, og hefi ég ekki fundið upplýsingar um dánarár hans.
En eftir útgáfu hins kunna uppsláttarrits Who’s Who in America fyrir
árin 1962 63, er hann horfinn þaðan, og virðist mér það benda til
þess, að hann hafi þá verið látinn.
Hverf ég þá aftur að þýðingu Axels af skáldsögunni, en bakhjarli
hennar fæ ég ei betur lýst en í þessum kafla forspjalls hans:
„Aðalvettvangur sögunnar er smábær í Nýja Mexico, Don Pedro,
og nefnist hún á frummálinu The Conquest of Don Pedro, en sögu-
hetjan hafði að marki í ævintýralegum leiðangri, að koma þar fót-
um undir sig, leggja bæinn og sveitimar í grennd undir sig, sigra —
og hann kom, sá og sigraði í þeirri baráttu, og er af því dregið heiti
sögunnar á frummálinu, en „eigi má sköpun renna“, sarmaðist hér
sern oftar, og það heiti hefi ég valið henni í þýðingu minni.“
Þetta heiti þýðingarinnar hittir ágætlega í mark. 1 hinu gagnorða
forspjalli lýsir Axel þvi einnig glögglega, hvernig, að lokinni borgar-
styrjöldinni í Bandaríkjunum á siðastliðinni öld (1861-1865), fram-