Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Page 18
Fossbrúnin, þar sem farvegur
árinnar þrengist og hvítfyssið
byrjar. Þetta er einn stórbrotn-
asti veiðistaðurinn i Laxá, og
sumum finnst hann taka öllum
öðrum fram, vegna tvisýnunnar
og sþenningsins, sem er þvi sam-
fara, að setja þar i lax.
Ljósmyndari: Baldvin Svein-
björnsson.
an tímann, að fossinn er hans þrautalend-
ing í baráttunni við andstæðingmn. Þar
geti hann losað sig úr klóm veiðimanns-
ins, hrist sig af eða slitið.
Eða er það bara þreytan, sem segir til
sín, og þá sjálfsagt að láta berast með
straumnum?
Hvernig sem í öllu liggur, sé ég að
hverju stefnir og að nú er hætta á ferð-
um. Augljóst er að sá grái ætlar sér fram
af.
Hafi veiðiskjálftinn verið áður byrj-
aður, varð ég hans að minnsta kosti ekki
verulega var fyrr en nú, er ég sé fram á
að til úrslita muni draga, enda skelf ég
nú á beinunum.
Ekki verð ég þess var að sá grái skjálfi,
en um leið og hann lætur sakka undan,
hr’stir hann línuna ólundarlega einu
sinni eða tvisvar.
Ég reyni að halda stönffinni vel reistri,
til þess að geta gefið mjúklega eftir, er
aðal-hnykkurinn kemur á, um leið og
hann fer fram af brúninni.
Nú er ekki lengur stætt á snösinni, er
laxinn og slíflygsan berast óðfluga með
straumnum. Ég tek því sem snarlegast til
fótanna, inn fyrir vik það, er verður neð-
an við snösina, og hleyp niður bakkann,
sem þarna er allhár. Hleyp sem fætur
toga, því að nú er mikil ferð komin á
laxinn, og gerist nú allt með skjótum
hætti. Eg hendist niður slívaxnar, flug-
hálar, hallandi klappirnar um leið og ég
finn að allt húrrar fram af fossbrúninni.
Veiðifélagi minn er kominn á undan
mér að brúnni, og leggur hönd sína milli
hvassrar briinarinnar á brúarstöplinum
og línunnar, til þess að forða henni frá
hnjaski. Um leið og ég skýzt undir brúna
finn ég að toppurinn rekst aðeins í, og
ég finn til með mínum ágæta Milward.
Er ég kem fram undan brúnni, er eins
og komið sé í annan heim. Hér er allt
með mesta friði og spekt. Óhugnanlega
rólegt finnst mér. Laxinn er sjálfsagt
farinn af í ósköpunum, og farinn sína
leið. Þá er sú dýrð úti, að hafa lax á. Stutt
gaman og skemmtilegt það, með eftir-
fylgjandi tómleikatilfinningu. Ég finn að
8
Veidimaðurinn