Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Page 26
The Compleat Angler
°g
The Arte of Angling.
ÁRIÐ 1954 fannst hjá bóksala í Lond-
on eintak af ófáanlegri bók, sem líklega
er önnur í röðinni af þeim, sem ritaðar
hafa verið á ensku um stangveiði. Bók-
in er rituð árið 1577 — árið sem sir
Francis Drake lagði a£ stað í ferð sína
umhverfis jörðina. Höfundur ókunnur.
Hún var prentuð í Fleet-Street af Henry
Middleton og átti að vera til sölu í búð
hans í St. Dunstan’s Churchyard. Því
stuggar ekki að ráði við seiðinu nema
í þau skipti, sem ólæti þess ganga úr hófi.
Hugsanlegt er, að hann geri sér þess
grein, að í samanburði við keppinautinn
er hann seinfær og stirður, og svo getur
meira en verið, að hann sjái ekki litla
krílið, því að það er svo lítið, að það sést
varla, þegar það liggur við raufarugga
hrygnunnar.
Hrognin.
Að lokunr nokkur orð um sjálf hrogn-
in. Þau eru ákaflega falleg, svipuð á
stærð og litlar baunir, ljósrauð á lit, seig
og gljáandi og mjúk viðkomu. Kreistu
eitt varlega, og þér mun finnast það
einna líkast því, að þú sért að kreista
lítinn gúmbolta. Kreistu það svo fastar
og þá mun það springa og innihaldið
koma í ljós — svolítill dropi af rauðgul-
um vökva — sem hefði getað orðið að lif-
andi laxi, ef forvitni þín og bölvuð fram-
hleypnin í mér hefðu ekki komið í veg
tyrir það.
miður vantar titilblaðið á bókina, og
því verður sennilega aldrei hægt að skera
úr því, hvað hún hefur heitið réttu
nafni, en hún er nú kölluð „The Arte
of Angling", 1577.
Það er erfitt að geta sér þess til, hvers
vegna svo dýrmætri og fróðlegri bók
var gloprað út úr landinu, en staðreynd-
in er sú, að Ameríkumaður keypti hana
og liún er nú í bókasafni Princeton Há-
skóla í New Jersey.
Það, sem mesta forvitni vekur í sam-
bandi við „The Arte of Angling“, er
hvort Izaak Walton liefur að einhverju
leyti verið undir áhrifum hennar þegar
hann fór að rita bók sína „The Compleat
Angler“, 76 árum síðar. Og þess hefur
verið getið til, að Walton hafi fengið alla
hugmyndina að sinni bók frá þessari, því
að svo nauðalík séu tök þessara tveggja
liöfunda á efninu.
En nú geta lesendur dæmt um þetta
sjálfir, því að báðar bækurnar, ásamt
köflunum eftir Cotton, hafa nú verið
gefnar út í einu bindi hjá Oxford. Uni-
versity Press og eru til sölu við svo lágu
verði, að flestir veiðimenn, sem langar
til að eignast þær, ættu að geta séð af
7 s. og 6 p. í því skyni.
Þýtt úr The Fishing Gazette.
Forsíbumyndin.
Kápumyndin er austan af Söndunum
lijá Hrauni í Ölfusi. Á það vel við, þar
sem sjóbirtingstíminn er nú að hefjast
og ýmsir nrunu trúlega skreppa austur
á „Sandinn" með vorinu. Kápan er prent-
uð í Litbrá, eins og síðast. — Ljósm. R. H.
16
Veidimaðurinn