Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Síða 43
stofni rákasilungs frá Whatcomvatni til
þess að fá fram blendingsþrótt. Voru
kynblendingarnir síðan aldir upp í til-
raunastöðinni, og var fylgzt með þeim
þar. Vaxtarhraði og veiðimagn kynbætta
rákasilungsstofnsins, Whatcom-stofnsins
og kynblendinganna var borið saman. —
Rúmiega 26 þúsund silungum var sleppt
á árunum i 954—55 í Echovatn til þess að
fá samanburð á því, hvernig hinir ein-
stöku stofnar spjöruðu sig í náttúrunni.
Kynbætti stofninn óx jafnan nrest, en
kynblendingarnir voru harðgerðastir, og
veiddist mest af þeim. Eru niðurstöðurn-
ar hinar markverðustu. Þær sýna, að
heppilegast er að nota kynblendingana til
þess að sieppa í vötn með miklu veiði-
álagi.
Laxakvnbætur.
j
Árið 1949 hóf Donaldson kynbætur á
kóngslaxi með sama markmiði og regn-
bogasilungi áður. Kóngslaxastofninn,
sem hann byrjaði að kynbæta, var 4 ára,
þegar liann kom úr sjó kynþroska, og
gekk 0,1% af honurn aftur upp í eldis-
tjarnir Tilraunastöðvar Fiskifræðideild-
arinnar. Flestir laxanna, sem upp komust,
voru veiddir á leið þeirra til eldisstöðv-
arinnar. Árið 1955 komu nokkrir kóngs-
laxar aftur þriggja ára, og hafa síðan
þriggja ára fiskar verið notaðir til undan-
eldis. Afkomendur þriggja ára laxanna
frá 1955 uxu örar og komust betur af í
sjónum heldur en kóngslaxastofninn, sem
kynbótatilraunirnar hófust með 1949.
Gengu 30 sinnum fleiri kóngslaxar frá
árganginum 1955 upp í eldistjarnirnar
heldur en af laxinum, sem sleppt var
1949. Kynbætur á kóngslaxi eru nýhafnar
og eru niðurstöðurnar, sem þegar hafa
fengizt, mjög athyglisverðar og gefa von-
ir um, að mikils megi vænta af laxakyn-
bótum í framtíðinni.
Átthagavísi silfurlaxins.
Við tilraunaeldisstöðvar eru iafnan
skilyrði til þess að gera margháttaðar til-
Seiðin ganga úr tilraunastóðinni um lítinn laxa-
stiga, áleiðis til sjávar, þegar þau hafa náð göngu-
stcerð. Þau koma aftur sömu leið sem fullvaxnir
laxar. — Ljósm. frá L. R. Donaldson.
raunir og rannsóknir. Hefur þetta sann-
azt við Tilraunaeldisstöð Fiskifræðideild-
arinnar. Frá einni slíkri tilraun skal
greint hér. Eru niðurstöður hennar mik-
ilvægar fyrir fiskirækt.
í janúar 1952 voru nálega 72.000 stálp-
uð silfurlaxaseiði flutt frá Sooseldisstöð-
inni í Washingtonríki, þar sem þau höfðu
verið alin frá vorinu áður, um 30 krn
leið norður til Tilraunaeldisstöðvar
Veiðimaðurinn
33