Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Page 54

Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Page 54
Kastgrein no. 10: Tvíhendis beituk. með spinnhjóli. 1. Þórir Guðmundsson .................. lengsta kast 127,83 2. Halldór Erlendsson.................. lengsta kast 123,83 3. Guðmundur Einarsson ................ lengsta kast 114,60 3. Heimsmeistaramótið. Haldið í Osló í ágústmánuði. Mikið mót og glæsilegt. Skilyrði misjöfn og árangur eftir því. Aðeins einn þátttak- andi mætti frá Islandi, Albert Erlings- son. Fleiri óskuðu þó eftir þátttöku, meðal annarra Halldór Erlendsson. Eins og sjá má á úrslitum í Kastmóti íslands, hlaut Halldór lang hæstu samanlagða stigatölu. Af einhverjum annarlegum ástæðum var Halldóri synjað um þátt- töku í móti þessu. En svo er málum háttað, að at’ íslands hálfu er Kastklúbh- ur ísiands eini aðilinn að Alþjóða kast- sambandinu og ræður því hverjir fá að taka þátt í alþjóðamótum héðan. Beztu afrekin: Röð þeirra efstu, úr öllum 10 kast- greinunum. (Stigatöluna hef ég því nrið- ur ekki.): 1. Heimsmeistari, Jon Tarantino, Bandaríkj unum. 2. Rune Fredriksen, Svíþjóð. 3. Sverre Scheen, Noregi. í einhendis fluguköstunum, kastgrein no. 3, varð heimsmeistari, sem vænta mátti, Jon Tarantino með 50.10 m og lengsta kast 51.60. En furðu vakti það, að vegna óhagstæðra skilyrða meðan Sví- inn Fredriksen kastaði, náði hann aðeins 15. sæti með 40.68 metrum, með ná- kvæmlega sömu tækjum og hann hafði nokkru áður sett glæsilegt sænskt met. við hagstæðar aðstæður í sænska meistara- mótinu, með 56.50 m. Þá vakti það ekki síður furðu, að með einhendis flugu- stöng i(veiðistöng), í kastgrein no. 2, náði Svíinn Larsson 51.53 m löngu kasti. en þar má línan ekki vera sverari en .056“ (B). t tvíhendis flugukastinu varð ungi Norðmaðurinn J. Kolseth heimsmeist- ari 4. árið í röð, á nýju heimsmeti 62.49 m meðalt. 65.62 m lengst, og bætti „heimsmet“ Tarantinos, sett fyrr sama dag. Svíarnir höfðu, sem fyrr, einkarétt á kastgrein no. 7, lengdarköstum með kast- hjóli tvíhendis, og varð Fredriksen fyrst- ur með 97,09 m og 102.45 m lengsta kast. En í einhendis spinnkasti sigraði Font- aine, Bandaríkjunum, núverandi forseti Alþjóðakastsambandsins, með feikna- köstum — 85.43 m og 88.03 m lengst. í hittiköstum með kasthjóli varð Fred- í'iksen hinn sænski enn fyrstur, með 88 stig, og með spinnhjóli annar Svíi, Jo- Iiansson, fyrstur, einnig með 88 stig. í tvíhendis spinn-lengdarkastinu, með 30 gr. lóði, varð í annað skipti í röð sig- urvegari Þjóðverjinn Stubbe, með 157.12 m, og ennþá með sína „ódýru heimagerðu bambusstöng, en nú með glassfieber toppi“. Aðrar kastgreinar eru minna kunnar hérlendis ennþá, því miður. Hæsta stigatölu þjóða hlutu Banda- ríkjamenn, þá Norðmenn og síðan Svíar. 44 Vfiuimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.