Veiðimaðurinn - 01.03.1962, Side 60
Frá stjórn S.V.F.R.
EINS o.g á s.l. vori var haldinn almenn-
ur félagsfundur í Lido, sunnud. 25. þ. m.
Var hann mjög vel sóttur.
Eftir að formaður hafði gert grein fyr-
ir því helzta, sem gerzt hefur í félags-
starfseminni á þessum vetri, og farið
nokkrum orðum um væntanleg veiði-
svæði félagsins á sumri komanda, urðu
fjörugar umræður um ýms félagsmál, og
stóð fundurinn frá kl. 2 til kl. 5,30.
Formaður skýrði frá því, að nrjög lít-
ið framboð hefði verið á veiðiám á þess-
um vetri. Var þar aðeins um að ræða
Vatnsdalsá, sem félagið bauð auðvitað í
eins hátt og frekast þótti fært, en einstakl-
ingar buðu miklu hærra, að sögn með
útlendinga að baki sér.
Félagið mun hafa sömu veiðisvæði og
s. 1. sumar, sumstaðar einhverja viðbót.
Til dæmis hefur félagið nú tryggt sér
viku í Laxá í Þingeyjarsýslu, næstu 5 ár.
Er hér um að ræða 10—12 stanga svæði
í þeim hluta árinnar, sem Laxárfélagið
Jrefur. (Laxamýraland, Hólmavað o. s.
frv.)
Vegna almennra verðhækkana mun
verð veiðileyfa liækka á flestum veiði-
svæðum um 15—20%.
Kastkennsla félagsins hefur verið mjög
vel sótt í vetur. Hefur kennslunefndin
yfir að ráða nú allt að 5 kennslustundiun
á viku, og komast færri að en vilja.
Laxaklak félagsins að Stokkalæk geng-
ur að óskum, og er gert ráð fyrir að fé-
lagið hafi til ráðstöfunar um % miljón
seiða þaðan á vori komanda. Einnig hef-
ur félagið hafið undirbúning að bygg-
ingu nýs klakhúss að Völlum á Kjalar-
nesi, sem ráðgert er að reyna að koma
upp í sumar. Eru þar hin beztu skilyrði.
Eins og þeim er kunnugt, sem voru á
árshátíð félagsins í vetur, var þar stofnað
til tveggja nýrra og sérstæðra verðlauna,
sem keppa á um innan félagsins og á
veiðisvæðum þess. Frú Lára Árnadóttir,
kona Steingríms Jónssonar fyrrv. raf-
magnsstj., gaf kr. 2000,00, til sjóðsmynd-
unar. Á sá sjóður að standa straum af
verðlaunaveitingu til þess félagsmanns,
sem veiðir flesta „matarlaxa“, eins og
hún orðaði það, en þar á hún við 4—7
punda laxa. í sjóðinn bættist frá öðrum
konum í hófinu aðrar 2000 kr. Verð-
ur reglugerð samin fyrir sumarið, í sam-
ráði við gefanda. Hér eftir verður því
engu síður hægt að vinna til verðlauna
með því að veiða marga smálaxa en einn
stóran. í öðru lagi tilkynnti Hákon Jó-
hannsson kaupm. í Sport, að hann
myndi gefa verðlaunagrip, sem sú kona
hlýtur, sem veiðir stærstan lax á veiði-
svæðum félagsins. Koma til greina bæði
félagskonur og konur félagsmanna, þótt
þær séu ekki í félaginu, en með bænd-
um sínum á veiðum. Það skal tekið fram,
að þær rnega veiða laxinn á hverja leyfi-
lega beitu sem er.
Fjáröflunarnefnd félagsins hefur ákveð-
ið í samráði við stjórnina, að lialda veg-
legt skemmtikvöld í Lidó, föstud. 6.
apríl n. k. Verður þar spilað Bingó, méð
mjög verðmætum og mörgum vinning-
um. Ágóðanum verður varið til veiði-
húsbygginga félagsins og viðhalds þeirra.
Er skorað á félagsmenn að fjölmenna og
taka gesti með.
Stjórnin.
50
Veiðimaðurinn