Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 23

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 23
^ VIÐ VÆSI N N WILLIE GUNN TEXTI: BJARNl BRYNJÓLFSSON • MYNDIR: PÁLL KJARTANSSON Ef Frances er veiðifluga fslands mætti kalla Willie Gunn veiðiflugu Bretlandseyja. Frægð hennar hefur borist víða með breskum veiðimönnum og má sjá hana í veiðibókum um allan heim, m.a. á Kólaskaga þar sem hún er með veiðnari flugum. Viðar Egilsson hefur hnýtt nokkrar útfærslur af Willie Gunn sérstaklega fyrir Veiðimanninn. Flér á eftir fer hins vegar sagan af uppruna þessarar skæðu flugu. Af einhverjum ástæðum er Willie Gunn lítið notuð hér á landi þrátt fyrir að hún sé gríðarsterkt agn. Kannski vegna þess að Garry Dog og Munro Killer líkjast henni en báðar þær flugur eru vinsælar meðal íslenskra veiðimanna. Flugan er nefnd eftir manninum sem fyrstur veiddi á hana oggerði hanafræga. Willie Gunn fæddist í þorpinu Skerray á norðurströnd Skot- iands. Faðir hans var sjómaður og kotbóndi í þorpinu. Willie hófstörfhjá skógræktinni í Borgie-skógi árið 1929. Hann reyn- di einnig fyrir sér sem bóndi en líkaði það illa og var ráðinn veiðivörður og leiðsögumaður hjá Sutherland-býlinu þar sem hann ílentist alla ævi. Wille var veiðimaður af lífi og sál. Flann veiddi fyrsta laxinn sinn í ánni Mallart, hliðará Naver, sá vó 16 ensk pund. Stærsta lax veiðiferils síns veiddi hann hins vegar í ánni Brora og vó hann 28enskpund. Flugan sem ber nafn hans var upphaflega hönnuð og hnýtt af hinum fræga fluguhnýtara og orrustuflugmanni Dusty Miller sem bjó um tíma í Kinloss í Moray-skíri. Flugan var hárvængseftirlíking af fullklæddri fjaðraflugu, Thunder and Lightning. Miller hnýtti flugur fyrir Rob Wilson sem rak veiðibúð í Brora. Á þessum tíma, (í kringum 1940) voru hárvængsflugur af öllum stærðum og gerðum að ryðja sér til rúms og félagarnir tveir vildu gjarnan aðlaga þær hinum hefðbundnu fjaðurvængjum sem höfðu verið notaðar fram að þessum tíma. Miller hnýtti 25 gerðir af flugum og sendi þær til Wilsons. Einn daginn kom Willie í búðina til hans í Brora til að kaupa nokkrar flugur til veiða í samnefndri á. Flann leit á flugurnar frá Miller og sagði síðan:„Je minn eini, þessi er fín. Ef ég mætti ráða myndi ég nota hana." „Jæja," sagði Wilson. „Þú færð hana og við skulum skíra hanaWillieGunn." Willie tók fluguna og fór til veiða í Brora og veiddi sex laxa á hana sama dag. Næsta dag fékk hann fjóra laxa á fluguna. Fréttir af þessari kraftaverkaflugu breiddust út um Norður- Skotland eins og eldur í sinu. Fáum árum síðar var Willie Gunn orðin skæðasta vopnið í boxum laxveiðimanna í norðanverðu Skotlandi og er það enn því fluguna er að finna í boxum flestra laxveiðimanna frá Bretlandseyjum nú á dögum. Sjálfur var Willie kurteis maður og rólyndur. Hann var sagður einstaklega nákvæmur veiðimaður, góður kastari og miðlaði mörgum af reynslu sinni.Vinur hans, áðurnefndur Wil- son, sagði gjarnan sögu af Willie sem sýnir Ijóslega hversu háttvís hann var. Wilson hafði fengið að gjöf leyfi í ánni Brora. Þegar hann kom að ánni tók hann eftir Willie sem sat í rólegheitum á bakk- anum, stangarlaus að því er virtist. Wilson veiddi hylinn og gekk síðan til Willie til að heilsa upp á hann. „Fallegur dagur, Willie." Willie tók kveðjunni Ijúflega en vakti máls á því í fram- hjáhlaupi að Wilson væri ekki að veiða á réttum bakka. Flann hefði átt að veiða á hinum bakkanum en Willie sjálfur átti hyl- inn þeim megin sem Wilson hafði verið að veiða. í Hálönd- unum er það glæpur sem verðskuldar ekki vægari refsingu en hengingu að stelast inn á veiðisvæði annarra. Wilson var miður sín yfir þessu og spurði Willie hvers vegna hann hefði ekki stöðvað hann.„Það var ekki við hæfi. Ég vildi ekki eyðileggja fyrir þér ánægjunasagði Willie. Svo var ekki minnstá það meir. En fluguna sem nefnd er í höfuðið á Willie Gunn ættu menn endilega að reyna því hún virkar jafnvel á íslenskan lax og á skoskan eða rússneskan. 11 '08 23

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.