Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Page 48
Skriðuflói. Þennan magnaða og gjöfula veiðistað er hægt að veiða bæði úr Hofsstaðalandi og Hofsstaðaey.
fyrr en komið er þangað upp eftir, að svonefndum Skipthólma,
sem er stór hólmi, neðarlega í Miðkvísl.
Neðan við Skipthólmann, undir Björgunum, voru af-
burðagóðir veiðistaðir, sinn hvorum megin kvíslarinnar. Að
vísu þurfti að vaða nokkuð fram Geirstaðamegin. Úr Geldinga-
ey þarf ekki að vaða til að ná fram í fiskinn. Þessi veiðistaður
spilltist við stífluna sem sett var í Miðkvísl, en virðist hafa náð
sér ár frá ári síðan hún var fjarlægð.
Ofan við Skipthólmann er lítil vík sem heitir Fúlavík og má
heita veiðistaður. Breiðan þar ofanvið og upp að svonefndum
Veraldarofsa, var ágætur veiðistaður en var nær uppgróin af
völdum stíflunnar og tekur sennilega langan tíma að ná sér.
En sú kemurtíð.
Héðan röltum við yfir að silungastiganum, - með öðrum
orðum að hinni frægu Miðkvíslarstíflu, sem fjarlægð var. Þar er
afbragðsgóður veiðistaður, sem kallast Brunnhellishróf.
Þarna er snarbratt og miklu erfiðara að standa að veiðinni en
Helgeyjarmegin.
Neðan við Brunnhellishrófið beygir áin til norðurs og mynd-
ast þar í henni margir hólmar, og heitir Brunnhellissker sá
næsti við Geldingaey og þar norðan við nokkuð stór hólmi í
eigu Geirastaða og heitir Hrúthólmi og þarerVeraldarofsinn,
gamall dráttur sem Arnarvatn og Geirastaðir áttu saman.
Nafnið gæti bent til þess að veiðistaðurinn hefði ekki ávalt
verið nytjaður af æskilegri stillingu. Besti veiðistaðurinn hérer
af nefinu, sem gengur syðst úr Hrúthólmanum, beint niður af
Brunnhellisskerinu. Framan við þetta Hrúthólmanef er gjá í
ánni og í henni og þar um kring er tíðum mikið af silungi. Hér
má vaða úr Geldingaey að sunnanverðu. Einnig má vaða í
Brunnhellisskerið og svo ofan úr því. Að öðru leyti er
veiðistöðum vart nafn gefandi á þessari breiðu allt niður að
Skipthólmanum.
Nú göngum við til baka upp frá Miðkvíslarstíflu og komum
að veiðistað sem fyrrum var ágætur og enn er ekki fráleitur,
rétt ofan við stífluna, þar sem heitir Hóll. Upprunalega hét
nefnilega þessi kvísl Laxár Hólskvísl - nýja nafnið varð til á
teikniborðum verkfræðinganna. Við Hól má veiða hvort
heldur úr Geldingaey eða Helgey.Tökustaðurinn var helst við
bakkann Helgeyjarmegin, en þangað má auðveldlega kasta
úr Geldingaey. Þetta er lygn veiðistaður og leynist ekki ef
fiskur er þar á hreyfingu. Hér hafa fengist nokkrir ágætavænir
urriðará þurrflugur.
Þá komum við þarna að tveimur litlum skerjum, neðst í
Miðkvíslinni og heita Narfasker. Ofan við þau var svonefndur
Skipsdráttur þar sem dregið var á í gamla daga. Efst á hon-
um, á móti Kaffiklettunum, sem eru merktir á kortið í Helg-
eynni, ofan við Áshólmann, þar er flúð í ánni þótt hún virðist
vera nokkuð lygn þarna. Þar er góður veiðistaður en þarf að
kasta nokkuð langt. Þó má vaða dálítið fram á móts við
Kaffiklettana.
Efst í Miðkvísl er stór hólmi, sem heitir Slæðuhólmi og
dregur nafn af ádrætti sem þar var. Þá var farið fram efst við
Hólmann úr Geldingaey. Oftast var dregið á hesti, riðið í hólm-
ann og niður með honum og síðan var tekið að í Geldinga-
eynni, beint vestur af hólmanum. Þarna fengust einu sinni
milli 30 og 40 urriðar í einum drætti og var talið að þeir hefðu
verið að minnsta kosti 100 kílógrömm samtals. Á stöng má
veiða sunnan undir Slæðuhólmanum og vestan við hann líka.
Annars spilltust allir veiðistaðir í ofanverðri Miðkvísl við stíflu-
gerðina með þeim hætti að for myndaðist á botninum. Eftir
að stíflan var fjarlægð er áin farin að hreinsa botninn að nýju
og vel þess virði að huga að þessum fornu veiðistöðum á ný.
Þá erum við komin kringum Geldingaey, sex kílómetra
hring, rösklega klukkustundar óslitna för gangknáum manni,
en Geldingaey er tveggja stanga veiðistöð og langstærsta
eyjan í Laxá. Síðar verður boðið upp á tvöfalt lengri göngu
með ánni í annarri miklu minni eyju - og er eitt af flatarmáls-
undrum Laxár í Þingeyjarsýslu.
48
11 V8