Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Page 26
FLUGUHNÝTING
C
BJÖRGVIN GÍSLASON LJÓSTRAR UPP S(NU SKÆÐASTA LEYNIVOPNI
FISKAR
HORFA UPP
UNDIR PULLUNA
TEXTI: BJARNI BRYNJÓLFSSON • MYNDIR: SIGURJÓN RAGNAR
FLUGUHNÝTING
„Mér dattfyrst í hug
að skírafluguna
Titanic því hún átti ekki
að geta sokkið en gerir
það nú samt að lokum
ef hún er nógu lengi í
vatninu og verður
fyrir skakkaföllum
af völdum fiska. “
Björgvin Gíslason tónlistarmaður veiðir helst ekki
lax. „Ég er silungsveiðimaður. Ef ég slysast til að
veiða lax þá sleppi ég honum bara," segir hann og
kímir.
Eins og margir silungsveiðimenn hnýtir Björgvin allar sínar
flugur sjálfur og hefur gert um árabil. Hann á þvíjafnan nokk-
ur leynivopn í boxunum. Ein allra skæðasta flugan sem
hann hefur búið til ber hið kómíska nafn„Pullan". Þetta
er þurrfluga af bestu gerð sem hentar íslenskum að-
stæðum einstaklega vel þar sem flotmagn hennar
er mikið. „Margir halda að ekki sé hægt að veiða
með þurrflugu nema í blankalogni og sólskini.
Þetta er alger misskilningur. Fiskurinn þarf líka að
éta í roki og rigningu. Ég nota þurrflugur við allar
aðstæður og Pullan hentar vel til þess því hún flýtur
svo vel. Þetta er samt ekkert sérstaklega endingargóð
fluga og þar sem fiskurinn er mjög gráðugur í hana tætist
vængurinn oft upp. Hún virkar þó áfram þótt hún fljóti væng-
laus í vatnsskorpunni. Hún er það eðlileg að ég hef oft þurft
að sækja hana lengst niður í kok á silungum enda virðast þeir
líta þannig á að Pullan sé raunveruleg fluga. Þannig eiga góð-
ar flugur að vera. Pullan virkar mjög vel á sjóbleikju, sérstak-
lega í ósa- og strandveiði. Hún minnir dálítið á þangflugur,
þessar svörtu sem eru minni en maðkaflugur. Ég hef líka veitt
grimmt á hana uppi í Veiðivötnum. í sumum vötnum þar nota
ég ekkert annað."
Björgvin kveðst hafa farið að hnýta Pulluna þegar skipt var
um parket heima hjá honum. Við það verk var notuð þétt-
islanga úr frauðplasti sem Björgvin segist hafa ágirnst sem
vængefni í flugur.„Upphaflega efnið var glærara í sér og með
rákum sem minntu á æðar í vængjum flugna. Ég er löngu bú-
inn með það og nota nú annað efni sem ég fæ í bygging-
arvöruverslunum en það virkar alveg jafn vel."
Pullan er vissulega dálítið tvírætt nafn og skemmtilegt.Já,
já, það átti að vera tvírætt. Mér datt fyrst í hug að skíra fluguna
Titanic því hún átti ekki að geta sokkið en gerir það nú samt
að lokum ef hún er nógu lengi í vatninu og verður fyrir skakka-
föllum af völdum fiska. Vængurinn er úr pulsulaga efni og svo
er eitthvað á sænsku sem kallað er„pulle". Mér fannst nafnið
Pullan hafa yfir sér skemmtilega tvíræðan hljóm. Ég hef hnýtt
dálítið með vini mínum Engilbert Jensen og hann á dálítið í
þessari flugu. Leiðbeindi mér með vænglagið og fleira. Hann
er reyndar búinn að hanna sína eigin útgáfu úr CDC-anda-
fjöðrum og með þynnra vængefni. Hann kallar sína flugu
Sprellann. Pullan er sem sagt komin með Sprella. Báðar eru
hárugar og virka mjög vel," segir Björgvin glottandi.
„Ég hef veitt á þessa flugu í nokkuð mörg ár en aldrei Ijóstr-
að upp leyndarmálinu á bak við hana. Eftir síðastliðið sumar
get ég ekki þagað yfir henni lengur. Ég veiddi ofboðslega vel
á hana í sumar og gaf hana mörgum. Ég er Ármaður og er
stoltur af því og hjá mér eru engin leyndarmál þegar ég hitti
menn á bakkanum."
11 '08
27