Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 30

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 30
FLUGUHNÝTING ^ „Þegar maður er að semja tónverk er ekkertjafn mikil- vægt og nattúran. Eg skil ekkifólk sem getur hugsað sér að spilla náttúrunni. “ það eru ekki til nein lyf við sjúkdómnum," segir hann glettinn á svip. „Ég heyrði því einhverju sinni fleygt að fjárhættuspil, veiðifíkn og alkóhólismi væru einn og sami sjúkdómurinn. Ég get vel trúað því. En veiðifíknin er þá líklega eini sjúkdóm- urinn í flokknum sem drepur mann ekki og er líklega bara hollur. Veiði fyrir mér er andlegt ástand, eins konar hugleiðsla. Þegar ég er að veiðum kemst ég í nokkurs konar algleymisást- and, hugurinn hreinsast og ég gleymi öllu öðru. Mér finnst fáránlegt að borga 100,000 kall fyrir þetta ástand þegar ég get farið eitthvert og borgað 500 kall. Ég vil komast oft í þetta ástand, ekki bara einu sinni til tvisvar á sumri og þess vegna veiði ég fyrst og fremst silung og sleppi laxinum." Björgvin fer út til veiða með sína flugustöng 1. apríl ár hvert og í raun lýkur ekki veiðitímabilinu hjá honum nema þegar frost og snjór hamla veiði.„Ég fer og veiði þegar viðrar til þess á veturna. Ég hef t.d. farið í Hvammsvík til Péturs vinar míns Gíslasonar. Það getur verið gaman þar í janúar ef vel viðrar. Þingvellir að vori til eru helgur staður í mínum augum. Ég fer oft snemma á morgnana. Það er ekki vegna þess að maður veiði endilega mikið þar heldur til að sjá lífið kvikna og landið vakna til vorsins." Á síðari árum hafa margir landsþekktir tónlistarmenn komið fram sem nokkuð áberandi fluguveiðimenn. Hvað veldur? „Takturinn í fluguveiðinni og hljómfall náttúrunnar," svarar Björgvin hiklaust.„Þegar maður er að semja tónverk er ekkert jafn mikilvægt og náttúran. Ég skil ekki fólk sem getur hugsað sér að spilla náttúrunni. Fyrir mér eru veiðimenn, sem ganga illa um náttúruna og henda t.d. frá sér sígarettustubbum, subbuleg svín. Eftir að Veiðikortið kom til sögunnar hef ég á tilfinningunni að umgengnin hafi víða versnað. Það er meira drasl á vettvangi. Ég skil t.d. ekki þessa makrílveiðilubba sem úða beituna með einhverju efni. Hvernig dettur mönnum svoleiðis í hug? Með tilkomu Veiðikortsins, sem er reyndar frábært framtak, hefur veiðin breyst í almenningsíþrótt. All- mörgum finnst að fyllirí og sóðaskapur tilheyri veiðitúrum. Það er af hinu góða að fleiri fari með fjölskylduna í veiði en það má vel brýna fyrir fólki að ganga vel um náttúruna." 30 / / '08

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.