Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Page 31
SVFR
SVFR-FRÉTTIR
Ný veiðisvæði
Laxá í Mývatnssveit
og Laxá í Laxárdal
í byrjun nóvember var gengið frá samningi um að
Stangaveiðifélag Reykjavíkur taki á leigu urriðasvæðin
ofan Laxárvirkjunar næstu fimm árin. Um er að ræða
veiðisvæðin í Laxárdal og Mývatnssveit, samtals 24
dagsstangir. SVFR leigir einnig veiðihúsin að
Rauðhólum og Hofi og sér um rekstur þeirra.
Veiðisvæðin sem um ræðir eru af mörgum talin
einhveráhugaverðustu urriðasvæði í Evrópu, þangað
sækir fjöldi stangaveiðimanna víðs vegar að.
Við undimtun samnings. Frá vinstriJón Benediktsson,
GuðmundurStefán Maríasson, Gylfi Gautur Pétursson.
Aðalfundur SVFR
Aðalfundur SVFR verður haldinn á Grand Hótel Reykja-
vík laugardaginn 29. nóvember 2008.
Ekki verður kosið milli manna til stjórnar að þessu
sinni þar sem aðeins sitjandi stjórnarmenn höfðu skilað
inn framboðum sínum. Það er því Ijóst að Guðmundur
Stefán Maríasson er sjálfkjörinn í sæti formanns næsta
árið, en að auki sitja áfram næstu tvö ár þeir Gylfi
Gautur Pétursson, Marínó Marínósson og Þorsteinn
Ólafs.
Engar tillögur um lagabreytingar bárust innan til-
skilinstíma.
Venju samkvæmt verður farið yfir starfsemi félagsins
á árinu sem nú er að líða. Félagsmenn eru hvattir til að
mæta.
Söluskrá - seinkun útgáfu
Söluskrá SVFR sem hefur komið út í nóvembermánuði
kemur ekki út fyrr en í desember þetta árið. Seinkunin
mun þó ekki hafa áhrif á úthlutun veiðileyfa sem eftir
sem áður verður í byrjun janúar næstkomandi. Ástæður
fyrir seinkuninni er óvissa um efnahag landsins og þar
með óvissa í verðlagsmálum.
Forsvarsmenn félagsins vilja stíga sem fastast á
verðhækkunarbremsuna en verðtrygging í samning-
um við veiðiréttareigendur setur strik í reikninginn.
Verðbólga fer vaxandi og er óvissuþáttur og því hefur
útgáfu Söluskrár 2009 verið frestað meðan forsvars-
menn félagsins ræða stöðuna sem komin er upp við
veiðiréttareigendur.
11 '08
31