Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Blaðsíða 51

Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Blaðsíða 51
Séð úr Hofsstaðalandi yfir efri enda Hofsstaðaeyjar. Þar er hinn fornfrægi veiðistaður Gaflinn sem oft gefur vel. Pollurinn heitir hins vegar staður sem liggur meðfram bakkanum Hofsstaðamegin. Garðsendi, góður veiðistaður þótt silungurinn þar sé stund- um helst til smár og er þó á öllu von. Þá taka við strengir, sem ekki borgar sig að kasta á, allar götur ofan að Ferjustað, sem er við Ferjuflóa. Hér er veiði að fá alveg uppi í strengjunum, en þarf að kasta nokkuð langt, helst yfir undir eyna. Það er merkilegt því þegar veitt er úr eynni þarf að kasta nokkuð langt áleiðis til lands. Veiðivon er alveg niður undir hólmann á Ferjustaðnum. Næsti veiðistaður er svo Höfði, sem er á móti þeim veiðistað, sem Gálufit nefnist á eynni. Veitt er í Höfðavikinu, sem er mjög góður veiðistaður og gefur oft vænan silung. Síðan má veiða kringum Gálufitjarskerið, en þar er bratt og ógott að standa að veiðinni. En nú er komið í Skriðuflóa. Þar er gott að veiða efst uppi í strengjunum. Sunnan til er flóinn ekki djúpur, en þegar þrengir að til norðurs dýpkar hann mikið. Þar er ekki margt um silung, en þeir sem fást eru yfirleitt stórir. Næsti veiðistaður er Geldingatóftarflói, sem er fremur lítill og lokast neðanvert af hólma. Oft er mikið af smáum silungi í sjálfum flóanum, en í strengjunum ofan við hann er stór silungur. Þarna er stórgrýti í botninum og kasta þarf þannig að flugan berist milli steinanna. Hér er prýðilega skemmtilegt að veiða, ef maður sleppur við festur. Nú styttist leiðin að landamerkjum Hamars og ekki nema einn veiðistaður eftir, svokallað Stekkjarvik, auðþekkt á fjárhelli í bakkanum. Hér má tíðum fá nokkra gogga en sjaldan stórsilung. Hofsstaðaey í eyna er göngubrú rétt sunnan við túnið á Hofsstöðum, bílslóð þangað innanvert um túnhliðið, fram á brekkubrúnina þar sem farartækið er skilið eftir. Þessu sinni göngum við ofan með austurlandinu á eynni, gagnvart veiðistöðvunum, sem lýst var í Hofsstaðalandi, og tefjum ekki fyrr en á móts við Garðsenda, beint niður frá bænum, sem fyrr getur. Hér er gott að veiða úr eynni, ekki síður en úr landi, en talsverð hætta á festum í grófu grjóti. Hér er smásilungurinn algengari en sá væni. Nú látum við ekki glepjast aftanganum, sem gengurfram í ána hér neðan við, tefjum ekki heldur í smávikunum þar sem e.t.v mætti þó grípa upp stöku bröndu og nemum ekki staðar fyrr en niðri á Ferjustað. Hér er góður veiðistaður, einnig úr eynni og best að kasta niður af horninu á hólmanum. Eins er ágætur veiðistaður neðan við hólmann, nokkuð langur. Á Ferjustað er mjódd í eyna, breiddin verður hér ekki nema tæpir tíu metrar. Þar fyrir neðan breikkar eyjan mjög mikið. Enn sniðgöngum við nokkur goggavik og skundum ofan að Gálufit, en hún er, sem fyrr segir, andspænis Höfðanum. Þar er góður veiðistaður, einkum þegar kastað er niður að horninu á skerinu og einnig fyrir neðan skerið. Neðan og norðan við skerið eru þrjú vik, sem sjaldnast bjóða upp á teljandi veiði, og ekki ástæða til að drepa við fæti fyrr en við Skriðuflóann. Skriðuflóinn er ekki síðri til veiða úr eynni en frá landi. 11 '08 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.