Veiðimaðurinn - 01.11.2008, Síða 60
Séð yfir Halldórsstaðaveiðar frá hlaði bæjarins.
með öllu landinu norður fyrir Arnarbæli, en svo nefnist allhár
klettur sem gnæfir frammi við ána og mjór bakki fyrir framan.
Sunnan við Arnarbæli er nokkuð góður veiðistaður. Spölkorn
þar neðan við endar Árgilsstaðaflói á flúðum og þar norðar
fellur áin grunn allt að Presthólma. í Presthólmakvíslinni er
veiði í svifi uppi við landið og eins frammi undir hólmanum.
Einnig má veiða af sunnanverðum hólmanum. Norðan hólm-
ans er sveigja á ánni við vesturbakkann, fremur grunn, en þó
er þareinnig veiðivon.
Þá komum við að Bæjarpolli, sunnanvert við suðurend-
ann á Laugaeyjum og veiðum nú úr landi. Ekki lætur pollur
þessi rmikið yfir sér en hér dregur úr straumi og myndast lygna
við landið, sandur við bakka á parti en dýpkar svo norður að
flúðum. Hér er nokkuð þröngt um þakkastið, en Bæjarpoll-
urinn er eigi að síður skemmtilegur og á það til að gerast
þýsna líflegur.
Norðan við ofangreindan poll fer áin að falla heldur bratt,
en spölkorn neðar finnum við þó litla lygnu í Syðra-Laugar-
hvammi og er auðséð af veginum. Þetta er minniháttar
veiðistaður. Sama gildir um lygnuna í Ytra-Laugarhvammi
sunnan gömlu mæðiveikigirðingarinnar. Þarersíðasti urriða-
veiðistaður Laxár vestan árinnar.
Hólar
Enn bíður okkar gangan frá landamerkjum Hamars á austur-
bakkanum og að endamörkum ofan virkjunar og byrjum þá
við landmerki Hóla sem eru um Hellnagil. Þaðan í frá og
norður á móts við Ljótsstaði, eru mörg vik með svifi við
bakka, veiðistaður við veiðistað ofan með öllum bökkum. Á
móti Ljótsstöðum tekur við Húsabakki og nær út á móts við
Beygjuna að vestan. Þar er kjarr í hrauninu og viðbúið talsvert
flugnatap. Frá Beygjunni og norður að Ferjuflóa heitir
Hjallsendabakki, og við hann nokkrir veiðistaðir.
Þá erum við sem sagt komin í Ferjuflóann austanmegin. Þar
má heita samfelldur veiðistaður allt að Hádegisvaði.
Austur af Auðnahólmanum er smápollur sem veiða má í
frá landi. Sunnan við Nestá er góður veiðistaður þar sem
straumurinn fellur að landinu. Svo fellur áin í flúð um Nestána
og þar er veiðistaður og [ smápollum þaðan í frá norður að
girðingu má veiða, þótt ekki geti talist meiriháttar veiðistaðir.
Norðan girðingarinnar heitir Auðnabakki og við hann nokkrir
veiðistaðir, en þá taka við Syðri- og Ytri-Hamarbakkar.
Auðnabakka og Hamarbökkum skiptir klöpp framan í
hólunum, og heitir Andaklöpp. Við bakkana og í Pollhvammi
60 " os